NATO verður fyrir óbeinum áhrifum af Brexit

Leið­togar aðild­ar­ríkja NATO munu sam­þykkja gam­al­gróna tví­benta stefnu gagn­vart Rússum á leið­toga­fundi sem hófst í dag. Áfram­hald­andi sam­skipti við Rússa og auk­inn her­afli við landa­mærin í austri. Óvíst er hver við­brögð Rússa verða.

Donald Tusk, Barack Obama og Jean-Claude Junker koma sér fyrir á sameiginlegum blaðamannafundi í upphafi leiðtogafundar NATO í Varsjá í Póllandi.
Donald Tusk, Barack Obama og Jean-Claude Junker koma sér fyrir á sam­eig­in­legum blaða­manna­fundi í upp­hafi leið­toga­fundar NATO í Varsjá í Póllandi. Mynd: EPA

NATO-leið­togar von­ast til að geta treyst vest­ræn tengsl í kjöl­far ákvörð­unar Breta að segja sig úr Evr­ópu­sam­band­inu á leið­toga­fundi Atl­antsa­hafs­banda­lags­ins sem hefst í Varsjá í dag. Bæði Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra og Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra, sækja fund­inn fyrir hönd Íslands. Fund­ur­inn stendur í tvo daga, í dag og á morgun.

Á leið­toga­fund­inum er ætl­unin að sam­þykkja flutn­ing alþjóð­legra her­fylkja til Póllands og allra þriggja Eistra­salts­ríkj­anna til að mæta rúss­neskri ógn sem hefur auk­ist mikið und­an­farin ár, til dæmis með íhlut­unum Rússa í Úkraínu. Þau NATO-ríki sem eiga landa­mæri að Rúss­landi hafa lýst yfir ótta um að Rússar muni beita sömu brögðum gagn­vart sér og þeir gerðu í Úkraínu. Einnig er talið að leið­tog­arnir muni kynna nýtt eld­flauga­varn­ar­kerfi í Austur-Evrópu.

Þetta er fyrsti leið­toga­fundur hern­að­ar­banda­lags­ins síðan Bretar ákváðu að ganga út úr ESB í Brexit-þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni. Leið­togar kosn­inga­bar­áttu Evr­ópu­and­stöð­unnar í Bret­landi lögðu á það áherslu að NATO gæti orðið vett­vangur auk­ins sam­starfs Breta við önnur Evr­ópu­ríki yrði Brexit að veru­leika. Aðrir bentu á að klofn­ingur frá ESB myndi síður en svo treysta raðir NATO-ríkja í Evrópu.

Staða Breta óbreytt?

Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, skrifar í pistli í Financial Times að hann trúi að Bretar verði áfram lyk­il­þátt­tak­andi í örygg­is­gæslu Evrópu. Evrópa og NATO ættu að auka örygg­is­sam­starf sitt og ákveða að halda við­skipta­þving­unum gegn Rússum til streitu.

[adspot]

Andrzej Duda, for­seti Póllands, og Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, sögðu í morgun að styrkur hern­að­ar­banda­lags­ins liði ekki fyrir Brexit. „ESB og NATO eru nokkuð ólíkar stofn­anir,“ sagði Duda. „Bretland er eitt af sterk­ustu aðild­ar­ríkjum NATO og ég efast ekki um að þátt­taka og sam­starf í banda­lag­inu verði áfram sú sama.“

Brexit gerir það óhjá­kvæmi­lega að verkum að ESB hefur ekki eins mikil áhrif á alþjóða­vett­vangi og það gerði. Til að bæta upp fyrir það ætti Evrópa að efla hern­að­ar­mátt sinn, að mati Bogdan Klich, fyrr­ver­andi varn­ar­mála­ráð­herra Póllands.

Utan­rík­is­ráð­herrar Frakk­lands og Bret­lands, þeir Frank-Walter Stein­meier og Jean-Marc Ayrault, hafa lagt það sama til í sam­eig­in­legri stefnu­yf­ir­lýs­ingu í kjöl­far Brexit. Stefnu­yf­ir­lýs­ingin var gefin út undir fyr­ir­sögn­inni „Sterkari Evrópa í heimi óvissu“. Plaggið fór fyrir brjóstið á Banda­ríkj­unum og Kanada sem vilja ekki að Evr­ópu­sam­bandið búi til aðra hern­að­ar­blokk á meg­in­landi Evrópu.

Í sam­tali við breska blaðið The Guardian segir Krzysztof Blusz, hern­að­ar­sér­fræð­ingur í Póllandi, að útkoma þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar hefði margar óbeinar afleið­ingar fyrir sam­starf hern­að­ar­banda­lags­ins. „Útganga Breta úr ESB mun skapa þá stöðu að aðild­ar­ríkin fara að huga meira að högum sínum heima­fyrir. Löngunin er þegar til staðar en Brexit mun auka þessa heima­hneigð enn frekar. Stjórn­völd í Moskvu munu ekki missa af tæki­fær­inu til að nýta sér stöð­una.“

Gamla góða tvíbenta stefna NATO

„NATO er ekki að leita að átökum. Við viljum ekki annað Kalt stríð. Kalda stríðið er í for­tíð­inni og ætti að vera þar áfram,“ sagði Jens Stol­ten­berg í ræðu sinni í dag og lagði áherslu á að sam­tali yrði haldið áfram við Rússa. Nið­ur­staða NATO-fund­ar­ins verður því að öllum lík­indum sú sama og oft áður: tví­bent stefna um aukið sam­tal í kjöl­far orða um aukin hern­að­ar­um­svif við landa­mæri að Rúss­landi.

Óvíst er hvernig Rússar eiga eftir að bregð­ast við leið­toga­fund­inum í Póllandi. Að lík­indum verður við­bragðið tákn­ræn yfir­lýs­ing um upp­færðan her­afla og ný hern­að­ar­tæki. Lukasz Kulesa, rann­sókn­ar­stjóri hjá European Leaders­hip Network, sam­tökum sem sér­hæfa sig í rann­sókum á utan­ríkis-, hern­aðar- og örygg­is­stefnu Evr­ópu­sam­bands­ins, telur að stjórn­völd í Moskvu muni að öllum lík­indum tína til til­búnar áætl­anir og setja í nýjan bún­ing sem við­bragð við leið­toga­fundi NATO í Póllandi.

Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands, hefur talað óljóst um hvernig Rússar þurfi að auka her­mátt sinn á meðan aðrir emb­ætt­is­menn hafa sagt að Kreml muni mæta aðgerðum NATO á sama hátt; færa her­fylki að landa­mærum í vestri og efla eld­flauga­varn­ar­kerfi.

Kulesa telur að Rússar geti hins vegar gert tvenns­konar mis­tök í við­brögðum sínum við útkomu leið­toga­funds­ins. Bæði munu á end­anum leiða til þess að sam­skiptin stirðni enn frekar. Fyrstu mis­tökin, að mati Kulesa, yrðu þau ef Rússar læsu of mikið í útkomu fund­ar­ins og héldu að nú væri NATO að und­ir­búa átök. Vest­ur­veldin myndu um leið bæta í her­afla sinn við landa­mærin að Rúss­landi og fjölga aðild­ar­ríkjum frá Austur-Evrópu og Skand­in­avíu. Af Norð­ur­löndum eru Ísland, Danmörk og Noregur aðilar að NATO en ekki Svíþjóð og Finnland. Eystra­salts­ríkin hlutu öll aðild árið 2004.

Hin mis­tök Rússa væru að taka nið­ur­stöðu leið­toga­fund­ar­ins of létt. Rússar gætu allt eins metið stöð­una á Vest­ur­löndum þannig að banda­lags­ríkin gangi ekki í takt. Frank-Walter Stein­meier, utan­rík­is­ráð­herra Þýska­lands, lét til dæmis hafa eftir sér á dög­unum að her­fylk­ing NATO við landa­mærin væru eins og tákn­rænar her­gagna­sýn­ingar. Kulesa bendir einnig á að Rússar gætu talið Banda­ríkin veik­ari nú en oft áður sökum þess að nýr for­seti verður kos­inn þar á kom­andi vetri. Hann nefnir einnig að Rússar gætu talið aðgerðir aðild­ar­ríkja NATO gegn sér nokkuð bit­lausan ljá í þúfu.

„Afleið­ingar þess­ara hugs­an­legu mis­taka gætu orðið alvar­legar,“ skrifar Kulesa á vef European Leaders­hip Network. „Rússar gætu ákveðið að hefja miklar breyt­ingar á her­afla sínum sem stillt er upp við landa­mærin og gert mun meira en að spegla vest­ur­veldin hinumegin við landa­mærin. Viðbrögð NATO við slíkum til­færslum yrðu að efla mátt sinn í Austur-Evrópu til að geta auð­veld­lega brugð­ist við grein 5 í stofnsátt­mála NATO. Grein 5 vísar í skuld­bind­ingu allra aðild­ar­ríkja um að árás á eitt aðild­ar­ríki þýði árás á þau öll.

Séu stjórn­völd í Kreml hins vegar með puttan á púls­inum og taka rök­rétta ákvörðun þá verður auð­velt fyrir Pútín að sjá að aðild­ar­ríkin hafa engan sér­stakan áhuga á átökum eða auk­inni örygg­is­gæslu við landa­mærin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár