Eldgos hafið – Hraun rennur í átt að Grindavík

Lög­reglan á Suð­ur­nesjum hóf að rýma Grinda­vík með hraði í nótt. Klukkan 7:57 byrj­aði að gjósa. Almann­na­varnir hafa hækkað almanna­varn­ar­stig úr hættu­stigi upp á neyð­ar­stig. Sprunga hefur opn­ast beggja vegna varn­ar­garð­anna sem byrjað var að reisa norðan Grinda­víkur.

Byrjað er að gjósa við Grinda­vík. Eldgosið hófst klukkan 7:57. Gosið er rétt norðan við Hagafell sem er sunnan við syðsta gosop sem opn­að­ist í síð­asta gosi í des­em­ber. Almann­na­varnir hafa hækkað almanna­varn­ar­stig úr hættu­stigi upp á neyð­ar­stig.

NálægtÁ myndum frá Land­helg­is­gæsl­unni, sem teknar voru úr þyrlu hennar, sést hversu nálægt byggð gosið er.

Á vef Veð­ur­stofu Íslands segir að af myndum að dæma renni hraun nú í átt að Grinda­vík. „Út frá mæl­ingum úr þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar er jað­ar­inn nú um 450 m frá nyrstu húsum í bænum.“

Veð­ur­stofan segir að af fyrstu myndum úr eft­ir­lits­flugi Land­helg­is­gæsl­unnar hafi sprunga opn­ast beggja vegna varn­ar­garð­anna sem byrjað vara að reisa norðan Grinda­víkur. Auk þess er gat á varn­ar­garð­inum sem hraun er farið að flæða í gegnum. 

Rauða línan sýnir sprung­unaKort frá Veð­ur­stofu íslands sem sýnir áætl­aða stað­setn­ingu gossprung­unnar. Hún er rauða línan á kort­inu.

Áköf smá­skjálfta­hrina hófst rétt fyrir klukkan þrjú við Sund­hnúks­gíga nokkrum kíló­metrum norð­aust­urf af Grinda­vík. Hátt í 200 jarð­skjlálfar höfðu verið mælst á svæð­inu frá því að hrinan hófst og til klukkan fimm í nótt og virknin færð­ist jafnt og þétt í átt að Grinda­vík. Stærsti skjálft­inn í hrin­unni mæld­ist um 3,5 að stærð og varð klukkan 4:07 við Hagafell. Bæði bor­holu­þrýst­ings­mæl­ingar (frá HS Orku) og raun­tíma GPS stöðvar á svæð­inu sýndu einnig breyt­ingar og því var talið lík­legt að kviku­hlaup væri að eiga sér stað. 

Í útsend­ingu úr vef­mynda­vél RÚV sem stað­sett er á Húsa­fjalli mátti sjá beina útsend­ingu af upp­hafi eld­goss­ins. 

Vef­mynda­vél RÚV á Húsa­fjalliBrot úr beinni útsend­ingu RÚV sem sýnir upp­haf eld­goss­ins í morgun.RÚV

Veð­ur­stofa Íslands túlk­aði þau gögn sem hún hafði undir höndum þannig að allt benti til þess að eld­gos væri yfir­vof­andi og að hraun­gos væri lík­leg­asta sviðs­myndin. Það byrj­aði síðan að gjósa um átta­leytið í morgun.

Í upp­færslu frá Veð­ur­stof­unni frá því klukkan rúm­lega sex í morgun kom fram að skjálfta­virknin hefði haldið áfram að fær­ast suður og að fleiri skjálftar hafi mælst undir miðri byggð­inni í Grinda­vík klukku­stund­ina á undan. „Skjálfta­virknin og þær breyt­ingar sem sjást á GPS stöðvum eru sam­bæri­legar við það sem sást í aðdrag­anda eld­goss­ins 18. des­em­ber. Helsti mun­ur­inn nú og þá er sá að skjálfta­virknin er tals­vert sunnar. Miðað við þróun skjálfta­virkn­innar er ekki hægt að úti­loka þá sviðs­mynd að kvika komi upp innan bæj­ar­markanna í Grinda­vík.“

Rétt fyrir klukkan átta í morgun upp­færði Veð­ur­stofan svo hættu­mat­skort í ljósi túlk­unar nýj­ustu gagna. Samkvæmt þeirri upp­færslu hafði hætta auk­ist á öllum svæðum. Skömmu síðar byrj­aði að gjósa.

Nýtt hættu­matHættu­mat­skortið gildir til klukkan 19 mánu­dag­inn 15. jan­úar, að öllu óbreyttu.

Grindavík rýmd með hraði

Sam­hæf­ing­ar­stöð Almanna­varna var virkjuð á fjórða tím­anum í nótt. Lög­reglan á Suð­ur­nesjum hóf sam­stundis að rýma Grinda­vík og sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar var gengið í hús og þeim sem þar voru fyrir gefin skammur tími til að taka saman helstu nauð­synjar.

Þeim sem ekki höfðu í önnur hús að venda var bent á að fara í höf­uð­stöðvar Rauða kross­ins í Efsta­leiti þar sem fjölda­hjálpa­stöð hefur verið opnuð. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar frá íbúa í Grinda­vík þá er ekki gert ráð fyrir að neinn muni gista á bedda í fjölda­hjálp­a­mið­stöð­inni eða haf­ast þar við til lengri tíma. Þeim sem þangað hafa leitað verður komið fyrir á hót­eli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á meðan að fundnar verða aðrar lausnir. 

Í til­kynn­ingu Almanna­varna segir að mikil hálka sé á vegum frá Grinda­vík, og íbúar eru beðnir um að fara var­lega. Hót­el­gestir sem gistu í Svarts­eng­is­svæð­inu hafa yfir­gefið svæðið og þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar er í við­bragðs­stöðu. „Eldgos er ekki hafið en allt við­bragð miðar við að það sé yfir­vof­andi.“

Átti að rýma á mánudag

Í gær var hald­inn blaða­manna­fundur þar sem for­ystu­fólk almanna­varna og Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra til­kynntu þá ákvörðun almanna­varna að rýma Grinda­vík, frá og með klukkan 19 á mánu­dag­inn kemur, til að gefa við­bragðs­að­ilum svig­rúm til að kort­leggja svæðið næstu vik­urnar. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í færslu á Facebook í gær að ákvörð­unin væri stór en að hún hefði verið tekin vegna þess að veru­leg áhætta er talin á að sprungur opn­ist víðar í bænum. „Í síð­ustu vik­unni varð skelfi­legt slys þegar maður sem var að störfum í bænum hrap­aði ofan í hyl­djúpa sprungu og hefur ekki fund­ist. Hugur okkar allra er hjá aðstand­endum hans og öllum Grind­vík­ingum.“

Sá maður heitir Lúðvík Pét­urs­son. Hann var fæddur 22. ágúst 1973, á fjögur börn, tvö stjúp­börn og tvö barna­börn. Lúðvík féll ofan í sprungu þegar hann var við jarð­vegs­vinnu í Grinda­vík 10. jan­úar síð­ast­lið­inn. Umfangs­mikil leit var gerð af honum ofan í sprung­unni en hún skil­aði ekki árangri og á föstu­dags­kvöld var ákveðið að hætta henni.

For­sæt­is­ráð­herra sagði í áður­nefndri færslu að íbúa­fundur hafi verið boð­aður á þriðju­dag þar sem hún „og von­andi fleiri ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar“ munu vera. „Þar verður farið yfir hús­næð­is­málin en unnið er að frek­ari kaupum á íbúðum af hálfu stjórn­valda. Það stendur yfir sam­tal við líf­eyr­is­sjóð­ina vegna þeirra íbúa sem eru með íbúða­lán hjá þeim. Verið er að skoða úrræði vegna atvinnu­rekstrar í bænum. Þá verður farið yfir stöðu mála hjá Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingu og fleiri þau mál sem ég veit að brenna á bæj­ar­búum. Við munum áfram standa með Grind­vík­ingum í þess­ari langvar­andi atburða­rás þar sem óvissan er því miður enn mikil. Og gera það sem þarf til að kom­ast í gegnum þessa ágjöf sem sann­an­lega er erfið fyrir Grind­vík­inga alla sem mætt hafa stöð­unni af ein­stöku æðru­leysi.“

Stutt síðan það gaus síðast

Eldgosið hófst norðan við Sundhnúk á Sund­hnúka­röð­inni, um fjórum kíló­metrum norð­austur af Grinda­vík og í námunda við Svarts­engi, á ell­efta tím­anum þann 18. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Í aðdrag­anda þess varð líka kröftug jarð­skjálfta­hrina á borð við þá sem nú gengur yfir. 

Um miklu stærra gos var að ræða, og miklu kraft­meira, en þau eld­gos sem orðið hafa á svæð­inu á und­an­förnum árum. Bæði var gossprungan mun lengri og magnið af kviku sem streymdi úr henni til að byrja með mun meira. Gosið stóð þó stutt yfir og 21. des­em­ber var því lýst yfir að gos­inu væri lokið. 

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.

Mest lesið undanfarið ár