38 ný smit í gær

Alls greindust 38 manns með COVID-19 hér á landi í gær. Nú eru 435 í ein­angrun vegna sjúk­dóms­ins en í sótt­kví eru 1.780.

Í gær greindust 38 ný til­felli af COVID-19 hér á landi. Af þeim sem greindust í gær voru 20 í sótt­kví eða 53 pró­sent. Nú eru 435 í ein­angrun vegna sjúk­dóms­ins sam­an­borið við 400 í gær en í sótt­kví eru 1.780. Tveir ein­stak­lingar liggja á sjúkra­húsi vegna sjúk­dóms­ins.

Í landamæra­skimun voru tekin tæp­lega 700 sýni og bíða tveir ein­stak­lingar mótefna­mæl­ingar.

Frá upp­hafi far­ald­urs­ins hafa 2.601 greinst með kór­ónu­veiruna á Íslandi. Tíu hafa dáið hér­lendis vegna COVID-19. Tölu­legar upp­lýs­ingar um COVID-19 á Íslandi má skoða á covid.is.

Sætaskylda á vínveitingastöðum

Heil­brigð­is­ráð­herra féllst á til­lögu sótt­varna­læknis þess efnis að börum og skemmti­stöðum verði leyft að opna eftir þessa helgi. Vín­veit­inga­stöðum verður skylt að hafa sæti fyrir alla gesti sína og tryggja að gest­irnir séu að jafn­aði í sætum sínum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem birt var á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í gær.

Þar segir einnig að í minn­is­blaði sótt­varna­læknis til heil­brigð­is­ráð­herra megi finna til­mæli um að rekstr­ar­að­ilar skemmti­staða, vín­veit­inga­staða, kráa og spila­sala skuli tryggja góð loft­gæði og stilla hávaða í hóf. „Er þá vísað til þess að hávær tón­list ýti undir að fólk tali hátt sem auki hættu á dropa­smiti,“ segir á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár