Ísland í amerískri heimsskipun

Flosi Þor­geirs­son fjallar í sögu­legu ljósi um stöðu Íslands í hinni amer­ísku heims­skipun, hvernig hún varð til og þær breyt­ingar sem framundan eru.

Ýmislegt bendir til þess að sú heims­skipun sem hefur verið við­var­andi frá lokum seinni heims­styrj­aldar sé jafn­vel tekin að riðl­ast. Skil milli aust­urs og vest­urs eru orðin óljós­ari og í Banda­ríkj­unum er nú stjórn sem gagn­rýnir óspart sína hefð­bundnu banda­menn í Vestur-Evrópu en virð­ist til­búin til sam­starfs við alræð­is­öfl ann­arra landa. Þessi þróun er eitt­hvað sem Íslend­ingar þurfa að fylgj­ast grannt með en hver var ann­ars staða Íslands í áður­nefndri heims­skipan?

Í bók sinni, Liberal Levi­at­han. The Origins, Crisis and Transformation of the American World Order, setur banda­ríski stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn G. John Iken­berry fram kenn­ingu um „amer­íska heims­skipun“ eða ein­hvers­konar „amer­ískt kerfi“. Kenning Iken­berrys snýst um það, að í kjöl­far hins hræði­lega hild­ar­leiks sem heims­styrj­öldin síð­ari var og einnig í ljósi þess að sú hug­mynda­fræði­lega og geopóli­tíska gjá sem var á milli Sov­ét­ríkj­anna og Vest­ur­veld­anna skap­aði alvar­lega tog­streitu, hafi Banda­ríkin og banda­menn þeirra greint nauð­syn þess að koma á ein­hvers konar kerfi. Kerfi þetta átti að vera tví­þætt: Í fyrsta lagi skyldi það vera vörn gegn alræð­is­ríkjum eins og Sov­ét­ríkj­unum og Kína og auk þess skyldi þetta kerfi stuðla að efna­hags­legri upp­bygg­ingu vest­ur­landa en mörg þeirra ríkja, sér­stak­lega í Evrópu, voru afar illa stödd eftir heims­styrj­öld­ina.

Að frum­kvæði Banda­ríkj­anna var sett á lagg­irnar alþjóð­legt kerfi. Í stað þess að eitt ríki væri ráð­andi for­ystu­ríki var ein­blínt á sam­vinnu og laga­gerðir. Þetta var opið, lýð­ræð­is­legt kerfi. Í raun voru þetta tvö kerfi í einu. Annað þeirra var hern­að­ar­legt og tengd­ist bar­átt­unni gegn Sov­ét­ríkj­unum. Stofnun NATO er aug­ljós­lega hluti af því kerfi. Það sner­ist ekki um beina atlögu heldur var stefnan meira fyr­ir­byggj­andi og byggð­ist upp á her­stöðvum og banda­lögum sem áttu að halda óvin­inum í skefjum. Hitt kerfið var eig­in­lega innan í hern­að­ar­kerf­inu, frjáls­lynd­ara, frekar efna­hags­legt og byggð­ist upp á opnum mörk­uðum og við­skiptum. Hluti af því var stofnun hinna ýmsu banda­laga eins og t.d. GATT og átti þetta að festa banda­lags­ríkin í sam­starf­inu. Þetta kerfi varð ekki til á einni nóttu og var þannig skellt fram til­búið til notk­unar. Það þró­að­ist smátt og smátt.

Gagn­stætt því sem margir kunna að halda þá ætl­uðu Banda­ríkin sér ekk­ert endi­lega að verða alls ráð­andi í þessu sam­starfi. Þau ætl­uð­ust frekar til þess að banda­lags­ríkin fylgdu þess­ari stefnu og byggðu sjálf upp sinn efna­hag og stjórn­kerfi. Sam­eig­in­legir hags­munir myndu þá sjá til þess að þessi lýð­ræð­is­ríki myndu sigla sam­síða inn í fram­tíð­ina. Skipanir áttu ekki að koma að ofan heldur var um að ræða opið sam­starf lýð­ræð­is­ríkja. Banda­ríkin urðu þó afger­andi for­ystu­afl í þessu sam­starfi og, sam­kvæmt Iken­berry, þá urðu efna­hags­mál, stjórn­ar­hættir og skuld­bind­ingar þar í landi, kjarn­inn í starfi Vest­ur­landa.

Fyrir hvern þann sem eitt­hvað þekkir til sögu sam­skipta Banda­ríkj­anna og Íslands frá lokum heims­styrj­ald­ar­innar liggur það nokkuð í augum uppi að Ísland var hluti af hinu amer­íska heims­kerfi. Að ýmsu leyti má segja að Íslend­ingar hafi verið fyrsta Evr­ópu­þjóðin sem tengd­ist Banda­ríkj­unum á þennan hátt, því banda­rískur her kom hingað mörgum mán­uðum áður en Japan réðst á Perlu­höfn á Hawaii í des­em­ber 1940.

Banda­ríkin, sem þá var enn hlut­laust ríki, tók við „vernd“ Íslands, af Bretum. Að vissu leyti má halda því fram að skuld­bind­ing Banda­ríkj­anna um her­vernd Íslands sum­arið 1941 hafi, á óbeinan hátt, verið fyrsta skrefið sem þau tóku sem þátt­tak­endur í heims­styrj­öld­inni. Allt frá árinu 1941 hafa Banda­ríkja­menn því verið Íslend­ingum meira og minna innan handar, bæði efna­hags­lega og hern­að­ar­lega. Ísland var Banda­ríkja­mönnum sér­stak­lega mik­il­vægt. Það er vest­læg­asta ríki Evrópu, ein­hvers­konar útvörður í norðri og Churchill á að hafa kallað landið nokk­urs konar „ósökkvandi flug­móð­ur­skip“.

Það hefði ein­fald­lega verið meiri háttar afleikur af Banda­ríkj­unum að huga ekki að Íslandi og gera það að banda­manni. Ísland varð því fljótt hluti af þessu heims­kerfi, jafn­vel þótt að þorri lands­manna hafi flestir verið fylgj­andi hlut­leysi. Að sós­í­alistum und­an­skildum sáu flestir stjórn­mála­menn sér hag í því að snú­ast á sveif með Banda­ríkj­unum og banda­lags­ríkjum þeirra í Evrópu. Það sjón­ar­mið var byggt á raun­sæi varð­andi alþjóð­leg sam­skipti og stjórn­mál á árunum eftir stríðið.. Flestir töldu það einnig mikið ábyrgð­ar­leysi að hafa landið varn­ar­laust.

Stefán Jóhann Stef­áns­son for­sæt­is­ráð­herra var sér­lega and­vígur hlut­leys­is­stefnu og hugn­að­ist illa að Ísland gæti orðið „afskipta­laus ein­stæð­ingur“ í hinum hrollköldu norð­ur­höfum. Mögulega var það heims­styrj­öldin síð­ari sem end­an­lega opn­aði augu Íslend­inga fyrir því að landið þeirra var orðið geysi­lega mik­il­vægt í hern­að­ar­legu til­liti og að augu stór­veld­anna myndu alltaf bein­ast að því. Hlut­leys­is­stefna var, að margra mati, ein­fald­lega óraunsæ í hinu alþjóð­lega umhverfi eftir heims­styrj­öld­ina.

Ísland var eitt af stofn­ríkjum NATO 1949 og gerði árið 1951 varn­ar­samn­ing við Banda­ríkin. Þar með var Ísland bundið í sam­bönd hins amer­íska heims­kerfis. Auk þess naut Ísland Marshall-aðstoðar eftir stríðið en öfugt við flest Evr­ópu­ríki sem voru þá efna­hags­lega ein rjúk­andi rúst, hafði Ísland frekar hagn­ast á veru breska og banda­ríska her­liðs­ins. Banda­ríkin beittu einnig áhrifa­mætti sínum hjá t.d. Alþjóða gjald­eyr­is­sjóðnum og Alþjóða­bank­anum til að Íslend­ingar fengju lán, þó landið upp­fyllti ekki alltaf öll skil­yrði til þess. Jafnvel þótt vinstri stjórn næði völdum á Íslandi þá breytt­ist lítið hvað þessi sam­skipti varðar.

Rík­is­stjórn Hermanns Jón­as­sonar sem tók við völdum 1956 hafði það sem mark­mið að losna við her­inn en af ýmsum ástæðum reynd­ist það ill­ger­legt. Í fyrsta lagi var erfitt efna­hags­á­stand á Íslandi og aðstoð að vestan því kær­komin. Sú staða kann að hafa ráðið mestu um þá stað­reynd að vinstri stjórnin gekk ekki harðar fram í því að reka her­inn af höndum sér. Hafa ber í huga að vald Banda­ríkj­anna var svo mikið að nær von­laust var að fá lán nokk­urs staðar án þeirra sam­þykkis. Skipti þá engu þó sendi­nefndir Íslands færu um víðan völl, m.a. til V-Þýska­lands, Frakk­lands og Alþjóða­bank­ans. Í öðru lagi var ýmis­legt að ótt­ast í alþjóða­málum. Íhlutun Sov­ét­manna í Ung­verja­landi í nóv­em­ber 1956 og Súes-deilan sama ár, sýndu að brugðið gat til beggja vona hvað heims­frið­inn varð­aði.

Eins og áður sagði þá hefur núver­andi Banda­ríkja­for­seti gagn­rýnt banda­lags­ríki á vest­ur­löndum og kraf­ist þess að þau taki meiri þátt í NATO-starf­inu. Honum virð­ist vaxa í augum hve miklum fjár­munum Banda­ríkin veita í banda­lagið, miðað við lönd á borð við t.d. Frakk­land og Þýska­land. Engri gagn­rýni hefur þó verið beint að Íslend­ingum og óvíst að svo verði. Það fer nefni­lega ekki á milli mála að NATO telur Ísland enn vera gíf­ur­lega mik­il­vægan þátt­tak­anda í NATO-sam­starfi. Í árs­lok 2017 sam­þykkti Banda­ríkja­stjórn til dæmis háa fjár­veit­ingu til upp­bygg­ingar mann­virkja á Kefla­vík­ur­flug­velli. Í mars sama ár, var hald­inn opinn fundur í Norræna hús­inu, á vegum Alþjóða­mála­stofn­unar Háskóla Íslands og norska sendi­ráðs­ins á Íslandi. Þar tóku m.a. til máls John Andreas Olsen og Per Orik Solli, for­ingjar í norska flug­hernum og Dr. Alarik Fritz, fræði­maður við Center for Naval Analysis. Ekki fór á milli mála að NATO, ekki síst Noregur, telja Ísland enn vera sér­lega mik­il­vægan aðila og legu lands­ins jafn hern­að­ar­lega mik­il­væga og áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár