Björn talaði mest - Páll minnst

Páll Magn­ús­son odd­viti sjálf­stæð­is­manna í Suð­ur­kjör­dæmi tal­aði minnst allra þing­manna á nýloknu þingi, alls náðu ræður hans ekki klukku­stund. Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata tal­aði mest eða í meira en 17 klukku­stundir.

Páll Magn­ús­son odd­viti sjálf­stæð­is­manna í Suð­ur­kjör­dæmi og for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis tal­aði minnst allra þing­manna á nýloknu þingi.

148. lög­gjaf­arþing­inu lauk klukk­an 00.38 í fyrr­inótt. Næsti þing­fundur verður þann 17. júlí, til und­ir­bún­ings hátíð­ar­þing­fundar á Þing­völl­um dag­inn eftir þann 18. júlí.

Ræðu­kóngur þings­ins var að þessu sinni Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata sem tal­aði sam­tals í 1.024,64 mín­útur eða 17,1 klukku­stund. Á hinum end­anum var eins og fyrr segir Páll Magn­ús­son sem náði ekki heilli klukku­stund í ræðu­stóli Alþingis, en hann tal­aði alls í 48,31 mín­útu.

Það er einmitt erfitt að ná tali af Páli þessa stund­ina, en hann hefur ekki enn í dag tjáð sig um brott­vikn­ingu hans úr full­trúa­ráði Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Vest­manna­eyjum og þeirri stöðu sem þar er upp komin. Auka­að­al­fundur ráðs­ins lýsti yfir van­trausti á Pál í gær, sagð­ist í ályktun ekki geta litið á hann sem trún­að­ar­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og hefur óskað eftir fundi með flokks­for­yst­unni vegna þessa. Páll studdi ekki opin­ber­lega fram­boð Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Eyj­u­m en þar bauð klofn­ings­fram­boð úr flokknum sig fram, Fyrir Heimaey, og vann mik­inn sigur og hefur myndað meiri­hluta með Eyja­list­anum og skilið Sjálf­stæð­is­flokk­inn eftir í minni­hluta.

Helgi Hrafn Gunn­ars­son flokks­bróðir Björns Leví í Pírötum tal­aði næst mest á þessu þingi, 16,2 klukku­stundir. Bronsið að þessu sinni hlýtur síðan Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins en hann tal­aði 10,7 klukku­stundir. Fast á hæla hans kemur Willum Þór Þórsson þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefndar, en hann tal­aði í 10,5 klukku­stundir.

Samtals héldu þing­menn­irnir ræður úr ræðu­stólnum í um 300 klukku­stundir.

Næst minnst tal­aði Anna Kolbrún Árna­dóttir þing­maður Mið­flokks­ins en hún hélt ræðu í 1,3 klukku­stundir. Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir þing­maður Vinstri-grænna tal­aði 1,5 klukku­stundir, Halla Signý Krist­jáns­dóttir þing­maður Fram­sóknar í 1,6 stundir og Þórunn Egils­dóttir þing­maður Fram­sóknar í 1,7 stundir. Brynjar Níelsson þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins tal­aði í 1,8 klukku­stundir og Ásmundur Frið­riks­son flokks­bróðir hans í 1,9 stundir.

Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar töl­uðu sam­tals í rúmar 52 klukku­stundir. Þar tal­aði Bjarni mest eins og áður greinir. Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra tal­aði næst­mest í ráð­herra­lið­inu, í 5,6 klukku­stundir, en kollegar þeirra þau Siguður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra töl­uðu öll í rúmar fimm klukku­stundir. Aðrir ráð­herrar töl­uðu minna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár