Ferðaðist um Ameríku á húsbíl í áratug

Eggert Ólafsson keypti sér stóran hús­bíl úti í Ameríku og tók upp­safn­aða yfir­vinnu út í fríum til að ferð­ast á honum. Það gerði hann í og með til að halda sem mestu sam­bandi við börn og barna­börn sem þar bjuggu.

Ameríka er ansi stór
Ameríka er ansi stór Eggert ferð­að­ist mjög víða um Norður-Ameríku á hús­bílnum, með fjöl­skyldu sinni. Hann seg­ist þó ekki hafa komið alls staðar enda sé álfan víð­áttu­mikil. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég átti stóran hús­bíl um margra ára skeið úti í Ameríku. Ég bjó sjálfur úti í Banda­ríkj­unum en það var eftir að ég flutti heim sem ég keypti mér hús­bíl­inn, ætli það hafi ekki verið tíu ár sem ég átti hann þar úti. Ég gat tekið út yfir­vinn­una mína í fríum, ég vann sem flug­virki og það var ansi drjúg yfir­vinna svo ég hafði tök á að ferð­ast mikið um Banda­ríkin þess vegna.

Þetta var svona hús­bíll eins og sést í bíó­mynd­unum, stofa, eld­hús, bað og svefn­her­bergi. Svo var ég með fólks­bíl sem ég gat hengt aftan á hús­bíl­inn, fram­dekkin voru þá bara tekin upp og hann dreg­inn á eftir. Þannig keyrði maður þar til komið var á stæði fyrir hús­bíl­inn, þá lagði ég honum og svo ferð­uð­umst við um á minni bílnum út frá því.

Ég á tvö börn úti í Banda­ríkj­unum og barna­börn og þau komu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár