Fleiri fangar í samfélagsþjónustu en í fangelsi

Nú afplána um 200 ein­stak­lingar dóma með ólaun­aðri vinnu í þágu sam­fé­lags­ins en 170 sitja í fang­elsi. Fang­els­is­mála­stjóri segir sam­fé­lags­þjón­ustu skila miklum árangri en í vik­unni var lögð fram þings­á­lykt­un­ar­til­laga um betrun fanga.

Litla hraun
Litla hraun Mynd: Fangelsismálastofnun

Ein­stak­lingum sem afplána dóm sinn með sam­fé­lags­þjón­ustu hefur fjölgað und­an­farið en nú afplána um 200 ein­stak­lingar refsi­dóma sína í sam­fé­lags­þjón­ustu í stað þess að sitja í fang­elsi. Á sama tíma sitja 170 manns í fang­elsi, sem þýðir að fleiri eru í sam­fé­lags­þjón­ustu en vistaðir eru í fang­elsum lands­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Unnt er að heim­ila þeim sem dæmdir hafa verið til árs fang­els­is­refs­ingar eða minna að afplána dóm­inn með utan fang­els­is­kerfs­ins,með sam­fé­lags­þjón­ustu. Þetta á þó ekki við um kyn­ferð­is­af­brota­menn og aðra sem taldir eru hættu­legir umhverfi sínu. Ein­stak­lingur sem sækir um og fær leyfi til að afplána í sam­fé­lags­þjón­ustu getur stundað fulla vinnu eða nám en notar frí­tíma sinn til að vinna launa­laust í þágu góðra mál­efni. Svo sem fyrir Rauða kross Íslands, hjá sam­býlum fatl­aðra eða fyrir trú­fé­lag sitt, svo eitt­hvað sé nefnt. [adspot]

Hægt að gera betur

Páll Winkel fang­els­is­mála­stjóri segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að sam­fé­lags­þjón­ustan hafi reynst vel. Aðeins 16 pró­sent þeirra sem afplána refsi­dóm sinn á þann veg brjóti af sér á ný. Einnig hafa verið auknir mögu­leikar til að afplána hluta fang­els­is­vistar í opnu fang­elsi en það hefur einnig skilað árangri í því að menn brjóta síður af sér að lok­inni afplánun.

„Við þurfum að hugsa um það hvernig lík­leg­ast er að menn geti staðið sig þegar þeir koma aftur út í sam­fé­lagið. Reynslan sýnir að það gerum við með því að loka menn inni í eins skamman tíma og mögu­legt er.“ segir Páll.

Hann bendir á að maður sem fékk 8 ára fang­els­is­dóm hafi áður þurft að vera í lok­uðu fang­elsi í 7 ár. Nú sé hann þar í 2-3 ár, 3 ár í opnu fang­elsi, 16 mán­uði á áfanga­heim­il­inu Vernd og svo það sem eftir er á heim­ili sínu með ökkla­band. Þetta stendur þeim til boða sem standa sig vel.

„Við getum gert betur í þessu. Margir fangar eiga við fíkni­vanda­mál að stríða og við þurfum að bjóða upp á fleiri með­ferð­ar­úr­ræði fyrir þá,“ segir Páll.

Þingsályktunartillaga um betrun fanga

Í nýrri þings­á­lykt­un­ar­til­lögu á Alþingi um betrun fanga er m.a. lagt til að kanna kosti auk­ins vægis sam­fé­lags­þjón­ustu og meta hvort rétt sé að dóm­stólar taki ákvörðum um slíka ákvörðun í stað Fang­els­is­mála­stofn­unar. Þor­steinn Víglunds­son lagði fram til­lög­una nú á dög­unum ásamt átta öðrum flutn­ings­mönnum úr þing­flokkum Við­reisnar, Pírata, Flokk fólks­ins og Sam­fylk­ingin.

Í til­lög­unni er lagt til að Alþingi feli dóms­mála­ráð­herra, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og heil­brigð­is­ráð­herra að setja á fót starfs­hóp um mótun heild­stæðrar betr­un­ar­stefnu í fang­els­is­mála­kerf­inu. Í til­lög­unni er lagt til að nauð­syn­legar breyt­ingar verði gerðar á lögum og fjár­magn lagt til þess að tryggja öllum föngum ein­stak­lings­bundar með­ferðar- og vist­un­ar­áæltun, bættan aðgang að menntun og heil­brigð­is­þjón­ustu og auk­inn stuðn­ing að afplánun lok­inni. Starfs­hóp­ur­inn á að skila skýrslu með nið­ur­stöðum eigi síðar en 1. maí á næsta ári.

Samkvæmt grein­ar­gerð þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar er mark­mið betr­unar að auka færni og lífs­gæði fanga og sporna við frek­ari brota­starf­semi og end­ur­komu í fang­elsi. Í grein­ar­gerð­inni kemur fram að heild­stæð betr­un­ar­stefna er ekki til staðar á Íslandi og óljóst að hvaða marki lögin stuðla að betrun, enda er aðgengi að námi og heil­brigð­is­þjón­ustu mis­mun­andi á milli fang­elsa og með­ferð­ar­á­ætlun ein­ungis aðgengi­leg þeim föngum sem Fang­els­is­mála­stofnun telur nauð­syn­legt að hljóti með­ferð. Samkvæmt upp­lýs­ingum Fang­els­is­mála­stofn­unar er end­ur­komu­tíðni fanga um 24 pró­sent sem er t.d. mun hærra en í Noregi.

Nauðsynlegt að bæta meðferð í fangelsum

Meðal þess sem lagt er til að starfs­hóp­ur­inn skoði er hvernig má bæta sál­fræði­leg og félags­leg með­ferð í fang­elsum, einnig skal auka aðgengi að réttri með­ferð við fíkni­vanda­málum og auka mögu­leika fanga til mennt­unar og atvinnu. Samkvæmt grein­ar­gerð­inni hefur emb­ætti umboðs­manns Alþingis ítrekað vakið athygli á nauð­syn þess að bætt verði úr geð­heil­brigð­is­þjón­ustu við fanga og bent á að vistun fanga með alvar­legar geð­rask­anir í afplán­un­ar­fang­elsum kunni að telj­ast brjóta gegn mann­rétt­inda­á­kvæðum stjórn­ar­skrár­innar og mann­rétt­inda­sátt­málum.

Í grein­ar­gerð­inni er auk þess er lagt mikil áherslu á að auka stuðn­ing að lok­inni afplánun. Í grein­ar­gerð­inni segir að þegar líður að lokum afplán­unar þarf að tryggja öllum föngum ráð­gjöf og stuðn­ing við hús­næð­is­leit og atvinnu­leit og veita þeim aðgang að stuðn­ings­neti til að aðlag­ast sam­fé­lag­inu og koma undir sig fótum á ný. Slíkt stuðn­ings­net og ráð­gjöf er til þess fallin að skila miklum árangri og auka öryggi og hag­sæld sam­fé­lags­ins alls.

Að lokum er tekið fram að ef tak­ist ekki að bæta úr þessum málum er ekki ein­ungis hætta á að end­ur­komu­tíðni standi í stað heldur aukast lík­urnar á að þeir fangar sem ekki snúa aftur í fang­elsi hljóti var­an­legan skaða af vist­inni, og jafn­vel örorku, með til­heyr­andi álagi fyrir heil­brigð­is­kerfið og almanna­trygg­inga­kerfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár