Reginu hafnað um endurupptöku: Fjölskyldunni vísað úr landi

Reginu Osara­ma­ese verður vísað úr landi ásamt tveimur ungum börnum sínum. Regina á von á sínu þriðja barni og mun þurfa að gang­ast undir keis­ara­skurð þegar það fæð­ist. Kæru­nefnd Útlend­inga­mála hefur hafnað beiðni fjöl­skyld­unnar um end­ur­upp­töku á mál­inu því engar breyt­ingar séu á upp­haf­legum máls­á­stæðum hæl­is­um­sókn­ar­innar.

Kæru­nefnd útlend­inga­mála hefur hafnað beiðni Reginu Osara­ma­ese um end­ur­upp­töku á hæl­is­um­sókn hennar. Beiðnin var send í sumar í ljósi breyttra aðstæðna fjöl­skyld­unnar en Regina er ólétt og mun þurfa að gang­ast undir keis­ara­skurð þegar barnið kemur í heim­inn. Fyrir á hún tvö ung börn, annað þeirra fædd­ist á Íslandi. Fjöl­skyld­unni verður því vísað úr landi.

 

„Við munum kæra þessa ákvörðun fyrir dóm,“ segir Gísli Kr. Björns­son lög­maður Reginu. Hann furðar sig á for­sendum ákvörð­un­ar­innar. „Þeir byggja á því að ekk­ert sé fram­komið í mál­inu sem breyti atvikum máls frá upp­haf­legri beiðni um hæli. Það sé ekk­ert nýtt í sam­bandi við upp­haf­legu máls­á­stæð­urnar. Hins vegar er heim­ild í lög­unum að óska eftir end­ur­upp­töku ef það verða breyt­ingar á aðstæðum. En í þessum úrskurði fjalla þeir ekk­ert um breyt­ingar á aðstæðum, heldur ein­ungis að það séu engar breyt­ingar á upp­haf­legum máls­á­stæðum. En þegar upp­haf­legu 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár