Veltir fyrir sér þögn íslenskra stjórnvalda

„Íslenskir ráða­menn hafa líka tjáð sig með þögn um þessa miklu atburði í Banda­ríkj­unum en sú þögn hefur ekki verið þrungin neinu sér­stöku inni­haldi eða verið sér­lega inni­halds­rík heldur bara þögn,“ sagði þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar á þing­inu í dag.

Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gagn­rýnir þögn íslenskra stjórn­valda vegna morðs­ins á George Floyd í Banda­ríkj­unum en hann fjall­aði um málið undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

„Í dag verður til grafar bor­inn í Houston í Texas George Floyd sem þann 25. júní sl. var tek­inn af lífi af lög­reglu­manni án dóms og laga um hábjartan dag vegna gruns um að hafa fram­vísað fölsuðum 20 doll­ara seðli. Hann var óvopn­aður og hand­járn­aður, lá varn­ar­laus í göt­unni meðan lífið var murkað úr honum. Veg­far­endur reyndu að sker­ast í leik­inn en allt kom fyrir ekki.

Fórn­ar­lambið reyndi að biðj­ast vægðar án árang­urs með orðum sem farið hafa sem eldur í sinu um heim­inn: I can´t bre­athe. — Ég næ ekki and­anum. Um allan heim hafa full­trúar stjórn­valda og alls kyns sam­taka lýst hryll­ingi yfir þessum villi­mann­legu aðförum sem varpa ljósi á það hví­lík mein­semd kyn­þátta­hyggjan er. Í hópi ráða­manna sem hafa tjáð sig má nefna Angelu Merkel, Emmanuel Macron og Boris Johnson,“ sagði hann.

Þá rifj­aði Guð­mundur Andri upp við­brögð Justins Trudeau, for­sæt­is­ráð­herra Kanada, en hann tjáði sig aðspurður um mat sitt á fram­göngu Donalds Trumps Banda­ríkja­for­seta „með langri, inni­halds­ríkri og þrung­inni þögn. Íslenskir ráða­menn hafa líka tjáð sig með þögn um þessa miklu atburði í Banda­ríkj­unum en sú þögn hefur ekki verið þrungin neinu sér­stöku inni­haldi eða verið sér­lega inni­halds­rík heldur bara þögn. Ísland hefur rödd á alþjóða­vett­vangi.

Hingað líta aðrar þjóðir og vænta þess að hér séu málsvarar mann­úðar, jafn­réttis og frið­sam­legra lausna. Og þegar alda hneyksl­unar og sorgar fer um heim­inn vegna ofbeldis lög­regl­unnar í garð hör­unds­dökkra í Banda­ríkj­unum er það í meira lagi hjá­rænu­legt (Forseti hringir.) að hvorki skuli heyr­ast hósti né stuna frá íslenskum stjórn­völdum. Það hljóta að vera ein­hver tak­mörk fyrir því um hvað fólk er reiðu­búið að gera mála­miðl­anir,“ sagði þing­mað­ur­inn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

georgefloyd

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár