Það eru til margar birtingarmyndir lýðræðis en líklega er algengasta skilgreiningin út frá stjórnmálalegu sjónarmiðum þar sem einstaklingar fá að taka ákvarðanir um eigin hagsmuni.
Á Íslandi er fulltrúalýðræði þar sem við, sem kjósendur, veljum okkur flokk, og þar með einstaklinga til að tala okkar máli, verja okkar hag. Við viljum að sá flokkur og þeir einstaklingar sem við veljum séu framlengingar á vilja, hugmyndum og skoðunum okkar. Vitandi samt innst inni að það er eiginlega aldrei svoleiðis.
Síðan er það lýðræðið sem birtist oftast í kringum börn. Það er lýðræði sem ég kýs að kalla hentugleika lýðræði.
„Já núna megið þið börnin góð ákveða hvað er í matinn.“
„Súkkulaðikaka mamma, við viljum súkkulaðiköku.“
„Já mamma, við systkinin kjósum súkkulaðiköku.“
„Ég held að það henti ekki núna... við skulum frekar hafa pasta... er það ekki miklu betra?“
Það er svo sem ekkert merkilegt við þessa tegund af lýðræði... ef lýðræði er hægt að kalla. Þetta birtist í einu eða öðru formi í grunnskólum, leikskólum og heimilum þar sem börn vilja ráða ferðinni og forráðamenn eða kennara vilja leyfa það en hætta svo við þegar niðurstöðurnar eru komnar.
Það sem er merkileg við þessa tegund af lýðræði... ef lýðræði er hægt að kalla, er að það birtist ekki bara hjá börnum, þetta er það lýðræði sem við, íslenskir þegnar, upplifa hjá Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum. Þar sem rödd fólksins skiptir máli... þangað til hún hentar ekki skoðunum þeirra. Þar sem vilji fólksins skiptir máli... nema þegar þeir eru ósammála.
Hvernig getum við leyft okkur að kjósa flokka sem afneita því sem við skilgreinum sem grundvallarréttindum í íslensku samfélagi? Afneita rétti þegna sinna þegar kröfur eru um eitthvað.
Það eru háværar raddir í samfélaginu um breytingar sem aldrei koma, nú síðast hávært kall þar sem 75% Íslendinga vilja setja heilbrigðiskerfið í forgang og samt gera fjárlög ekki ráð fyrir því. Fólk var kosið í þjóðaratkvæðagreiðslu til að vinna að nýrri stjórnarskrá, kosið var um atriði tengdum stjórnarskránni.
Til hvers?
Nú, svo við héldum að við hefðum lýðræði í landinu þegar raunin er að við höfum ekkert um málið að segja, þegar það hentar þeim ekki. Svo kannski þá ætti maður að hugsa málið betur þegar kemur að kosningum í haust... ef þær þá verða því kannski hentar það þeim ekki þessa stundina. Kannski við ættum að reyna að muna að það er lýðræði... og svo er það hentuleika lýðræði.
Ég veit ekki um ykkur, en ég er orðinn þreyttur á því að yfirvaldið komi fram við mig eins og ég sé krakki sem viti ekki betur.
Höfundur er mannfræðingur, menntunarfræðingur og Pírati.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.











































Athugasemdir