56 smit greindust innanlands – 152 á tíu dögum

223 eru nú með COVID-19 á Íslandi eftir að 56 inn­an­lands­smit greindust í gær. Af þeim voru 43 full­bólu­settir og ell­efu óbólu­settir.

Í gær greindust 56 með COVID-19 inn­an­lands. Af þeim voru 43 full­bólu­settir og ell­efu óbólu­settir. 38 ein­stak­lingar, eða um 68 pró­sent, voru utan sótt­kvíar við grein­ingu. 223 eru nú með sjúk­dóm­inn og í ein­angrun á Íslandi.

Nýgengi inn­an­lands­smita er komið upp í 42,5 á hverja 100 þús­und íbúa og 16,9 á landa­mær­unum. Þessar tölur benda til þess að Ísland gæti færst af „grænum“ yfir á „app­el­sínugult“ innan skamms á lita­kóð­un­ar­kerfi því sem Evr­ópu­sam­bandið miðar við er kemur að ferða­tak­mörk­unum. Í þeim útreikn­ingum er einnig tekið til­lit til hlut­fall jákvæðra sýna sem tekin eru. Í gær reynd­ust 3,10 pró­sent ein­kenna­sýna sem tekin voru jákvæð af því 1.581 sem var tekið.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði í gær að ný bylgja væri hafin og að mögu­lega stefndi í veld­is­vöxt. Slíkt kall­aði mögu­lega á það að settar yrðu aðgerðir á inn­an­lands á ný.

Aðgerðir á landa­mær­unum verða hertar næsta þriðju­dag og bólu­settir krafðir um að fram­vísa nei­kvæðu COVID-prófi við kom­una til lands­ins. Aðeins þrjár vikur eru liðnar síðan að skimun þessa hóps á landa­mær­unum var hætt.

Síðan þá hefur margt breyst og aug­ljóst að veiran hefur lekið yfir landa­mærin í auknum mæli.

[links]Þrennt skýrir helst fjölgun smita á Íslandi, því landi heims sem er hvað lengst komið í bólu­setn­ingum: Bólu­setn­ing minnkar líkur á smiti en kemur ekki í veg fyrir það, aflétt­ing aðgerða og þar af leið­andi breytt hegðun fólks og í þriðja lagi land­nám hæf­asta afbrigði veirunnar til þessa. „Lands­lagið breytt­ist mikið með delt­unni,“ segir Arnar Pálsson erfða­fræð­ingur sem fer í við­tali við Kjarnann yfir stöð­una með vís­indin að vopni.

Hann segir „ekk­ert furðu­legt“ við það að full­bólu­sett fólk smit­ist af veirunni og smiti jafn­vel aðra. „Það var fyr­ir­séð, sér­stak­lega í ljósi þess hvernig hegðun fólks úti í sam­fé­lag­inu hefur verið upp á síðkastið,“ segir hann við Kjarnann. Engar tak­mark­anir eru lengur inn­an­lands og margir virð­ast hafa tekið því þannig að það þýddi, þrátt fyrir varn­að­ar­orð yfir­valda, að öll hætta væri liðin hjá. „Yfirvöld hafa vissu­lega sagt að það sé full ástæða til að fara var­lega en fólk virð­ist ekki með­taka það sem við­vörun. Það heyrir bara „aflétt­ing“. Það heyrir góðu frétt­irnar en ekki varnaglana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár