Vaxandi þrýstingur á Helga Magnússon - Staða hans sér á báti

VR krefst þess að stjórn­ar­menn í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna séu ekki fjár­festar á mark­aði. Skýrsla sýnir að staða Helga Magn­ús­sonar er sér­stök miðað við alla aðra stjórn­ar­menn líf­eyr­is­sjóða. Ný stjórn skipuð fyrir 1. febr­úar. Helgi nýtur stuðn­ings.

Vaxandi óánægju gætir innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar með stöðu Helga Magn­ús­sonar, vara­for­manns Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna, vegna þeirra hags­muna sem hann hefur sem sjálf­stæður fjár­festir ann­ars vegar, og síðan sem full­trúi líf­eyr­is­sjóð­anna hins vegar, í stjórnum fyr­ir­tækja. Skipað verður í nýja stjórn sjóðs­ins fyrir 1. febr­úar næst­kom­andi. Stjórn­ina skipa í dag, auk Helga, þau Ásta Rut Jón­as­dóttir, for­maður stjórnar, Anna G. Sverr­is­dóttir, Birgir S. Bjarna­son, Birgir Már Guð­munds­son, Fríður Birna Stef­áns­dóttir, Margrét Sif Haf­steins­dóttir og Páll Örn Líndal.

Skýrsla dregur fram stöðuna

Spjótin bein­ast ekki síst að Helga þar sem staða hans þykir alveg sér á báti, þegar kemur að fjár­fest­ingum stjórn­ar­manna líf­eyr­is­sjóða lands­ins. Skýrsla sem Talna­könnun vann fyrir Samtök spari­fjárf­eig­enda á síð­asta ári, og skilað var 30. októ­ber í fyrra, hefur meðal ann­ars verið nýtt sem grunn­gagn í rök­ræðum um þessi mál innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, og einnig hjá hags­muna­sam­tökum atvinnu­rek­enda, það er Samtökum atvinnu­lífs­ins, Samtökum iðn­að­ar­ins og Við­skipta­ráði Íslands.

Auglýst eftir áhugasömum

Samkvæmt reglum VR til­nefnir stjórn VR tvo aðal­menn en trún­að­ar­ráð félags­ins til­nefnir tvo aðal­menn og fjóra vara­menn. Auglýst var eftir umsóknum áhuga­samra um stjórn­ar­setu seint á síð­asta ári og stendur nú yfir vinna við að greina þær umsóknir.

Atvinnu­rek­endur til­nefna jafn­marga stjórn­ar­menn sam­kvæmt eft­ir­far­andi: Félag atvinnu­rek­enda til­nefnir einn, Kaup­manna­sam­tök Íslands til­nefna einn, Samtök iðn­að­ar­ins til­nefna einn að fengnu áliti Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Samtök atvinnu­lífs­ins til­nefna einn að fengnu áliti Við­skipta­ráðs Íslands. Jafn­margir vara­menn eru svo til­nefndir af atvinnu­rek­endum á sama hátt.

Helgi segist fylgja settum reglum

Í skýrsl­unni kemur fram það sem fyrir liggur opin­ber­lega, að Helgi Magn­ús­son á eign­ar­hluti í Marel og N1, að mark­aðsvirði nokkur hund­ruð millj­óna króna. Nokkrar sveiflur hafa verið á mark­aði að und­an­förnu, og hafa flest félög sem skráð eru á markað lækkað nokkuð skarpt í upp­hafi árs­ins, en heild­ar­á­vöxtun á mark­aðnum í fyrra var um 43 pró­sent.

Helgi situr í stjórnum fyrr­nefndra fyr­ir­tækja, sam­hliða stjórn­ar­setu í Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna. Hann hefur sjálfur svarað því til, að VR hafi sín sjón­ar­mið en að félagið stjórni ekki hvernig aðrir sem til­nefna stjórn­ar­menn hagi sínum áherslum.

Þá seg­ist Helgi fylgja öllum settum á reglum, er varði inn­herja, og því sé ekk­ert óeðli­legt við hans þátt­töku á mark­aði. Hann fjár­festi aðeins innan þess glugga sem hann hafi til að fjár­festa, sem sé eftir að upp­gjör séu birt.

Helgi hefur til þessa notið trausts Samtaka iðn­aðn­ar­ins, og verið stjórn­ar­maður í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna árum saman á grund­velli þess.

Unnið úr gögnum Creditinfo

Í skýrsl­unni er farið ítar­lega yfir stöðu mála hjá öðrum stjórn­ar­mönnum, og einnig hvaða ein­stak­lingar eru stærstu eig­endur hluta­bréfa á mark­aði. Markmið skýrsl­unnar var að kort­leggja hluta­fjár­eign líf­eyr­is­sjóð­anna og einnig þátt­töku stjórn­ar­manna á hluta­bréfa­mark­aði. Verkinu stjórn­aði Benedikt Jóhann­es­son, en auk hans unnu þeir Arnór Ingi Finn­björns­son og Ragnar Jóhann­es­son að skýrsl­unni, að því er fram kemur í inn­gangi hennar.

Grunn­upp­lýs­ingar í skýrsl­unni koma frá fyr­ir­tæk­inu Creditinfo og gagna­grunni þess.

Stjórn Versl­un­ar­manna­fé­lags Reykja­víkur (VR) ályktaði form­lega á þann veg, 13. jan­úar síð­ast­lið­inn, að stjórn­ar­menn Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna ættu ekki að sitja í stjórnum fyr­ir­tækja sam­hliða eða fjár­festa sjálfur í hlutafé félag­anna.

Gera kröfu um að aðrir fylgi VR

„Okkur ber að standa vörð um Líf­eyr­is­sjóð verzlunarmanna, trú­verð­ug­leika hans og traust. Til að það sé hægt verður að tryggja að þeir sem skipa stjórn sjóðs­ins gæti fyrst og fremst hags­muna sjóðs­ins sjálfs og sjóð­fé­laga. Það er að mati stjórnar VR óásætt­an­legt að stjórn­ar­menn í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna sitji í stjórnum eða eigi hlut í fyr­ir­tækjum sem sjóð­ur­inn fjár­festir í,“ segir í ályktun stjórnar VR. Ólafía B. Rafns­dóttir, for­maður VR, hefur ítrekað, eftir að ályktun stjórn­ar­innar lá fyrir, að sú staða sem sé uppi, er varði Helga Magn­ús­son, sé ekki í takt við þær kröfur sem VR geri og það sé von félags­ins, að aðrir sem til­nefni í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna geri sömu kröfur.

Tæplega 50 þús­und sjóð­fé­lagar eru í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna, og voru heild­ar­eignir sjóðs­ins um 5,1 pró­sent umfram heild­ar­skuld­bind­ingar í árs­lok 2014. Eignir sjóðs­ins eru 29 pró­sent í erlendum verð­bréfum, 29 pró­sent í rík­is­tryggðum skulda­bréfum, 19 pró­sent í inn­lendum hluta­bréfum, tvö pró­sent í banka­inni­stæðum, 7 pró­sent í sjóð­fé­laga­lánum, 6 pró­sent í fyr­ir­tækja­skulda­bréfum og 8 pró­sent í skulda­bréfum sveit­ar­fé­laga, banka og ann­arra aðila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár