Fegurðin hlýtur að bæta okkur

Þröstur Helgason, fyrr­verandi ritstjóri Lesbókar Morgun­blaðsins og dagskrár­stjóri á Rás 1, hefur nú söðlað um og stofnað bóka­útgáfuna KIND. Nýlega gaf hann út stórt og mikið verk um Eggert Pétursson og lífsverk hans. Hann stefnir á að gefa út bækur um myndlist og aðrar sjón­listir, auk sannsagna af ýmsu tagi.

Þröstur Helgason
Þröstur Helgason Fyrrum rit­stjóri Lesbókar Morg­un­blaðs­ins og dag­skrá­stjóri Rásar 1 hefur nú stofnað bóka­út­gáfu. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Málverk Eggerts Péturs­sonar af íslenskri flóru eru skáldverk í þeim skilningi að þau eru ekki af tiltekinni blóma­breiðu eða lyngmóa heldur eru þau sprottin úr höfði lista­mannsins – segir í formála eftir Þröst Helgason í nýrri bók um Eggert sem inni­heldur 109 myndir af málverkum lista­mannsins, frá 25 ára tímabili, og greinar um lífsverk hans og ævi.

Áfram heldur formálinn: Verkin sýna vissulega blóm og grös sem eru til og þau gera það meira að segja af mikilli nákvæmni, en þau birta ekki neinn tiltekinn stað í nátt­úrunni. Þau eru af ímynduðum stað – og stundum eru þau minning um stað – sem er fyrst og fremst til innan tvívíðs flatarins ...

Þröstur gefur bókina sjálfur út en nýlega stofnaði hann bóka­útgáfuna KIND. Bókmennta­fræðingurinn mun ekki gefa út skáldskap heldur er ætlunin að gefa út bækur um myndlist og aðrar sjón­listir, auk sannsagna af ýmsu tagi, þó að …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár