Attenborough: „Neyðarstund er runnin upp“

„Við verðum að gera okkur grein fyrir því að þetta er ekki leikur,“ segir David Attenborough. „Þetta snýst ekki um að eiga nota­legar rök­ræður og ná ein­hverri mála­miðlun. Þetta er brýnt vanda­mál sem verður að leysa.“

Náttúrufræðingurinn David Attenborough segir það eintóma þvælu hjá sumum stjórnmálamönnum að eldarnir í Ástralíu tengist ekki loftslagsbreytingum af mannavöldum.
Nátt­úru­fræð­ing­ur­inn David Attenborough segir það ein­tóma þvælu hjá sumum stjórn­mála­mönnum að eld­arnir í Ástralíu teng­ist ekki lofts­lags­breyt­ingum af manna­völdum. Mynd: EPA

„Við erum komin að vendi­punkti í við­leitni okkar til að takast á við lofts­lags­breyt­ingar,“ segir nátt­úru­fræð­ing­ur­inn og sjón­varps­mað­ur­inn David Attenborough. „Neyð­ar­stund er runnin upp. Við höfum slegið hlutum á frest ár eftir ár.“

David Attenborough lét þessi orð falla í við­tali við Breska rík­is­út­varpið, BBC, sem markar upp­haf sér­stakrar umfjöll­unar fjöl­mið­ils­ins um lofts­lags­breyt­ingar sem standa mun allt árið.

Attenborough bendir á að á meðan við­talið sé tekið standi suð­aust­ur­hluti Ástralíu í ljósum logum. „Hvers vegna? Af því að hita­stig jarðar er að hækka.“

Hann segir það aug­ljósan þvætt­ing hjá sumum stjórn­mála­mönnum og álits­gjöfum að segja eldana í Ástralíu ekk­ert hafa með hlýnun jarðar að gera. „Við vitum það upp á hár að mann­anna verk eru að baki hlýnun jarðar.“

Aðgerðir ríkja heims í lofts­lags­málum og sam­staða þeirra þar um er að mati Attenboroughs ekki í takt við varn­að­ar­orð vís­inda­manna um að brýnt sé að bregð­ast hratt við.

Fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna var meðal þeirra sem sagði að nið­ur­staða nýj­ustu við­ræðn­anna, sem fram fóru á lofts­lags­ráð­stefn­unni í Madrid í síð­asta mán­uði, hafi valdið von­brigðum. Í sama streng tóku bresk stjórn­völd og fleiri.

Áströlsk stjórn­völd eru meðal þeirra sem gagn­rýnd hafa verið fyrir að gang­ast ekki við þörfum skuld­bind­ingum sínum í lofts­lags­málum.

„Við verðum að gera okkur grein fyrir því að þetta er ekki leikur,“ segir Attenborough við BBC. „Þetta snýst ekki um að eiga nota­legar rök­ræður og ná ein­hverri mála­miðlun. Þetta er brýnt vanda­mál sem verður að leysa og það sem meira er, við vitum hvernig á að gera það. Í því fellst þver­sögnin; að við neitum að taka þau skref sem við vitum að við þurfum að taka.“

Lofts­lags­vís­inda­menn Sam­ein­uðu þjóð­anna birtu grein­ar­gerð árið 2018 þar sem til­teknar voru þær aðgerðir sem hægt væri að fara í til að minnka útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá iðn­aði, land­bún­aði og sam­göngum um helm­ing til árs­ins 2030.

Í frétt BBC er rakið að hið gagn­stæða hafi átt sér stað. Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hefur auk­ist frá útgáfu skýrslu vís­inda­mann­anna og er hún meiri en nokkru sinni í mann­kyns­sög­unni. Attenborough bendir á að með hverju árinu sem líði sé erf­ið­ara að ná árangri í bar­átt­unni við lofts­lags­breyt­ingar.

[links]Útlit sé því fyrir að jörðin okkar eigi eftir að hitna enn meira í fram­tíð­inni. „Heim­ur­inn er þegar breyttur,“ hefur BBC eftir Ed Hawkins, pró­fessor við Háskól­ann í Reading.

Í ár mun sjónum stjórn­mála­manna verða beint að lofts­lags­breyt­ingum og þeim áhrifum sem þær eru þegar farnar að hafa á vist­kerfi. „Við erum háð nátt­úr­unni í hvert sinn sem við drögum að okkur and­ann og leggjum okkur eitt­hvað til munns,“ segir Attenborough.

Í Ástralíu hafa skóg­ar­eld­arnir stofnað vist­kerfum í hættu, hund­ruð millj­óna dýra hafa drep­ist. Bæði plöntur og dýr gætu verið í útrým­ing­ar­hættu vegna eld­anna. Slík hætta var þegar fyrir hendi og í tíma­móta skýrslu sem birt var í fyrra vör­uðu sér­fræð­ingar við því að um milljón teg­undir dýra og plantna gætu dáið út á næstu ára­tugum.

Eldarnir í Ástralíu hafa nú mögu­lega hraðað því ferli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár