Hjartavöðvabólga tengd mRNA bóluefnum – Ekki mælt með bólusetningu hraustra barna

Lyfja­stofnun Evrópu hefur stað­fest aukna tíðni goll­urs­húss­bólgu og hjarta­vöðva­bólgu eftir bólu­setn­ingar með efnum Moderna og Pfizer. Fáein slík til­felli hafa komið upp hér á landi. Sótt­varna­læknir mælir ekki með bólu­setn­ingum hraustra barna í bili.

Bóluefni Pfizer og Moderna eru framleidd með svokallaðri mRNA-tækni.
Bóluefni Pfizer og Moderna eru fram­leidd með svo­kall­aðri mRNA-tækni. Mynd: EPA

Sótt­varna­læknir ætlar ekki að mæla með almennum bólu­setn­ingum hraustra barna að svo stöddu. Lyfja­stofnun Evrópu (EMA) hefur skorið úr um að aukin tíðni goll­urs­húss­bólgu (e. pericardititis) og hjarta­vöðva­bólgu (e. myocarditis) sé eftir bólu­setn­ingu með mRNA bólu­efn­unum Comirnaty (Pfizer/BioNTech) og Spikevax (Moderna). Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá sótt­varna­lækni sem birt er á vef Land­læknis.

Þótt þessar auka­verk­anir virð­ist fátíðar sam­kvæmt grein­ar­gerð EMA (u.þ.b. 1 til­vik/100.000 skammta) þá hafa fáein til­vik komið upp hér á landi sam­kvæmt sam­skiptum lækna Land­spít­ala við emb­ætti land­læknis. Slík atvik virð­ast algeng­ust hjá ungum karl­mönnum og eftir seinni skammt en til hjá öllum kynjum, á öllum aldri og hafa komið upp eftir fyrri skammt, segir í til­kynn­ingu sótt­varna­læknis.

Sjúk­dóms­gangur er sagður svip­aður og við goll­urs­húss­bólgur og hjarta­vöðva­bólgur af öðrum orsökum, en í ein­hverjum til­vikum hefur þurft með­ferð á sjúkra­húsi, jafn­vel á gjör­gæslu. Samkvæmt grein­ar­gerð EMA hafa orðið 5 dauðs­föll í tengslum við þessa auka­verkun í Evrópu, hjá öldruðum ein­stak­lingum og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma.

Ein­stak­lingar sem fá mRNA bólu­efni og taka eftir eft­ir­far­andi ein­kennum innan 2ja vikna frá bólu­setn­ingu ættu að leita sér lækn­is­að­stoðar:

  • Mæði
  • Þungur og/eða óreglu­legur hjart­sláttur
  • Brjóst­verkur

Þar til nán­ari upp­lýs­ingar um tíðni og sjúk­dóms­gang goll­urs­húss­bólgu og hjarta­vöðva­bólgu eftir mRNA bólu­setn­ingu barna við COVID-19 liggja fyrir, og á meðan smit­hætta vegna COVID-19 er hverf­andi hér­lendis er að sögn sótt­varna­læknis „ekki hægt að úti­loka að hætta á alvar­legum auka­verk­unum sé meiri en hætta á alvar­legum veik­indum vegna COVID-19 hjá hraustum börnum. Því verður ekki mælt með almennum bólu­setn­ingum hraustra barna 12-15 ára við COVID-19 að svo stöddu“.

For­eldrar munu geta óskað eftir bólu­setn­ingu barna sinna á ein­stak­lings­grund­velli eftir sum­ar­leyfi heilsu­gæslu. Mælt er með að börn með áhættu­þætti með til­liti til alvar­legra veik­inda vegna COVID-19 séu bólu­sett.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár