Langar að þjóðnýta kirkjuna og leggja hana síðan niður

Borg­ar­full­trúi Vinstri grænna segir að hana langi að þjóð­nýta kikj­una og „leggja allt niður sem teng­ist henni“. Hún telur jafn­framt að skrif og ummæli séra Davíðs Þórs Jóns­sonar séu ekki eðli­leg.

Líf Magneudóttir borgarfulltrúi Vinstri grænna í Reykjavík.
Líf Magneu­dóttir borg­ar­full­trúi Vinstri grænna í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Líf Magneu­dóttir borg­ar­full­trúi Vinstri grænna segir að hana langi „smá að þjóð­nýta kirkj­una og síðan leggja allt niður sem teng­ist henni“. Þetta skrif­aði hún á Twitter í gær­kvöldi.

Hún er spurð í fram­hald­inu hvað hún meini og svarar hún að hún hafi haft þessa skoðun all­lengi.

Uppfært kl. 9:55: Líf birti nýja Twitter-færslu eftir að fréttin birt­ist þar sem hún segir: „Eyddi tísti sem var mjög illa tíma­sett ... biðst afsök­unar á því.“

[adspot]

Stöðu­upp­færsla séra Davíðs Þórs Jóns­sonar um Vinstri græn og fyr­ir­hug­aðar brott­vís­anir tæp­lega 300 umsækj­enda um alþjóð­lega vernd hefur gengið manna á milli í vik­unni og ratað í fjöl­miðla.

Þar segir hann meðal ann­ars: „Það er sér­stakur staður í hel­víti fyrir fólk sem selur sál sína fyrir völd og veg­tyll­ur.“

Hann kallar rík­is­stjórn­ina „fas­ista­stjórn VG“ í færsl­unni. Hann segir jafn­framt að hún hafi ákveðið að „míga á“ barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna og logið að hún hafi „lög­fest“ sátt­mál­ann á Íslandi.

„Ég þekki svona ofbeldismenn“

Fjöl­miðlar rifj­uðu upp í kjöl­farið að hann og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna hefðu búið saman fyrir mörgum árum en í sam­tali við mbl.is í gær sagði hann að „umræðan ætti að snú­ast um það hvernig við sem sam­fé­lag kom­um fram við okk­ar minnstu bræður og syst­ur“.

„Ef að ein­hverj­um finnst að sú umræða eigi að snú­ast um það hvernig til­finn­inga­lífi mínu var háttað fyr­ir 20 árum ... jah þá vit­um við hversu stór sál­in í því fólki er,“ sagði Davíð og bætti við: „Þar fyr­ir utan þá bjó ég aldrei með for­sæt­is­ráð­herra Íslands, það var allt önn­ur mann­eskja.“

Líf skrif­aði á Facebook í gær­kvöldi að hún væri mjög „trig­geruð“ af skrifum og orðum Davíðs Þórs. „Ég þekki svona ofbeld­is­menn, hef elskað þá og búið með þeim og skilið við þá. Megi þeir finna frið í sál­inni.“

Hún var spurð hvort Davíð Þór væri ofbeld­is­maður og hún svar­aði: „Veit ekki með hann ... en þetta er óeðli­legt.“ Hún hefur nú eytt stöðu­upp­færsl­unni á Facebook.

„Allt í einu er málið farið að snúast um hana og hennar tilfinningar“

Davíð Þór tjáði sig um skrif Lífar í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun. Þar var hann spurður hvort hann væri ofbeld­is­maður. Hann svar­aði og sagði að honum þætti mjög leið­in­legt ef hann hefði með gagn­rýni sinni sært til­finn­ingar Lífar Magneu­dóttur. „Ennþá leið­in­legra finnst mér að hún skuli líta – ef það er það sem hún er að reyna að segja – á mig sem ofbeld­is­mann. Leið­in­leg­ast af öllu finnst mér þó að það fyrsta sem heyr­ist frá henni sem einum af leið­togum Vinstri grænna um þá ákvörðun flokks­systk­ina hennar að senda, eða gera ekk­ert til að koma í veg fyrir það, sem þó væri þeim í lófa lagið, hátt í 300 manns út í aðstæður sem ekki eru nokk­urri mann­eskju bjóð­andi.

[links]Það fyrsta sem heyr­ist í henni um það mál er það hvað rausið í ein­hverjum reiðum karli úti í bæ særir hennar per­sónu­legu til­finn­ingar. Allt í einu er málið farið að snú­ast um hana og hennar til­finn­ingar og hún er orðin fórn­ar­lambið í sínum eigin haus en ekki tæp­lega 300 mann­eskjur sem flokks­systk­ini hennar eru með í hönd­unum hvað varðar líf og limi þeirra – og fram­tíð og fram­tíð­ar­horfur.“

Hann baðst á Rás 2 í morgun afsök­unar á orðum sínum sem hann lét falla við blaða­mann mbl.is. Hann sagði jafn­framt á Facebook í gær­kvöldi að hann iðr­að­ist þeirra orða að hann hefði ekki búið með for­sæt­is­ráð­herr­anum. „Ég iðr­ast þess­ara orða og tek þau hér með aftur. Umræðan á ekki að snú­ast um per­sónur, en ég lét blaða­mann­inn slá mig út af lag­inu og niður á það plan,“ skrif­aði hann.

Prestar megi ekki meiða með orðum

Málið hefur undið hratt upp á sig en Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup Íslands veitti Davíð Þór form­legt til­tal vegna ummæl­anna um VG í vik­unni.

Í yfir­lýs­ingu frá Agn­esi segir að skrif Dav­íðs Þórs hafi verið harka­leg og ósmekk­leg. Agnes sjálf hefur gagn­rýnt áform yfir­valda um fyr­ir­hug­aðar fjölda­brott­vís­anir hæl­is­leit­enda sem fest hafa rætur hér á landi en hún segir að prestar verði að haga mál­flutn­ingi sínum mál­efna­lega og meiða ekki með orð­um.

Í yfir­lýs­ingu Agn­esar segir að mál­inu telj­ist nú lokið af hálfu bisk­ups. „Eftir stendur sem meira máli skiptir ákall bisk­ups Íslands um mannúð og mildi þegar kemur að mál­efnum hæl­is­leit­enda.“

Þingflokksformaður VG segir skrif Davíðs Þórs ala á hatursorðræðu

Líf er ekki sú eina innan Vinstri grænna sem hefur tjáð sig um málið opin­ber­lega. Orri Páll Jóhanns­son þing­maður og þing­flokks­for­maður VG for­dæmdi skrif prests­ins um VG eftir að fjöl­miðlar fjöll­uðu um þau.

„Með þessum ummælum er verið að ala á hat­urs­orð­ræðu í sam­fé­lag­inu sem er eitt stærsta mein okkar sam­tíma. Það er grafal­var­legt að þjóð­kirkjan taki þátt í slík­u,“ sagði hann í sam­tali við Frétta­blaðið í vik­unni.

Anna Lísa Björns­dóttir fram­kvæmda­stjóri þing­flokks VG sagði í stöðu­upp­færslu á Face­book í fyrra­dag að „af­mennskun í orð­ræðu“ væri hat­urs­orð­ræða.

„Það er mjög mik­il­vægt í opin­berri umræðu að við gerum okkur grein fyrir krafti sem fylgir orðum sem skil­greina aðrar mann­eskjur sem fas­ista, mein­dýr, sníkju­dýr, sjúk­dóma, óþverra, upp­vakn­inga eða djöfla,“ skrifar hún meðal ann­ars og bætir því við að hat­urs­orð­ræða gagn­vart stjórn­málum og ein­stökum stjórn­mála­mönnum hafi raun­veru­legar afleið­ing­ar.

Varaformaður VG ekki ánægður með dómsmálaráðherrrann

Svo virð­ist vera sem ekki sé ein­ing innan rík­is­stjórn­ar­innar vegna brott­vís­ana umsækj­end­anna um alþjóð­lega vernd.

Guð­­mundur Ingi Guð­brands­­son félags- og vinn­u­­mark­aðs­ráð­herra og vara­for­maður VG sagði í við­tali á RÚV í vik­unni það rangt að sam­­staða ríkti innan rík­­is­­stjórn­­­ar­innar um það að vísa flótta­­mönn­unum úr landi, líkt og Jón Gunn­­ar­s­­son dóms­­mála­ráð­herra hefur haldið fram. Hann sagð­ist hafa gert „al­var­­legar athuga­­semd­ir“ við þá veg­­ferð sem Jón væri á og að hann væri ekki ánægður með það hvernig Jón hefði haldið á mál­inu. „Nei, ég get ekki sagt að ég sé það. Ég held að það sé alveg ljóst af mínum orð­u­m.“

Lands­stjórn Ungra vinstri grænna for­dæmdi í kjöl­farið þá ákvörðun íslenskra stjórn­valda að hefja á ný end­ur­send­ingar á fólki til Grikk­lands.

„Stefna VG í mála­flokknum er skýr og nú ríður á að hafa hug­rekki til að standa með okkar sann­fær­ingu þó svo sam­starfs­flokk­arnir og þeirra ráð­herrar séu ef til vill á öðru máli. Rík­is­stjórn­ar­sam­starfið má aldrei verða mik­il­væg­ara en mann­úð.

Það fólk sem nú á að flytja úr landi hefur verið hér í langan tíma og myndað náin tengsl við land og þjóð og gefið af sér til sam­fé­lags­ins. Þessi ákvörðun er póli­tísk og keyrð áfram af rík­is­stjórn Íslands,“ segir í yfir­lýs­ing­u frá Ungum vinstri grænum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár