Viðbygging við Alþingi er ekki aprílgabb - tillagan í heild

Ný við­bygg­ing við Alþing­is­húsið mun vænt­an­lega rísa þar sem bíla­stæði Alþingis er í dag, fyrir aftan Oddfellow húsið við Von­ar­stræti. Við­bygg­ingin er eftir hönnun Guðjóns Sam­ú­els­sonar. Eins og fram hefur komið í fjöl­miðlum í morgun hefur rík­is­stjórnin sam­þykkt drög að þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um það hvernig skuli minn­ast ald­ar­af­mælis sjálf­stæðis og full­veldis Íslands. Málið hefur vakið mikla athygli.

Rík­is­stjórnin vill ljúka við að reisa við­bygg­ingu við Alþingi, „sem hug­myndir voru um að risi full­veld­is­árið 1918 en ekk­ert varð af vegna styrj­aldar og fjár­skorts. Lengi hafa verið uppi áform um að leysa úr hús­næð­is­skorti Alþingis en skrif­stofur þings­ins eru nú í leigu­hús­næði í all­mörgum bygg­ingum í grennd við Aust­ur­völl.“ Í grein­ar­gerð með þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni kemur fram að athug­anir hafi leitt í ljós að tals­verð hag­kvæmni sé í því fólgin að koma allri starf­semi þings­ins fyrir í sam­tengdum bygg­ingum.


Guðjón Sam­ú­els­son hann­aði við­bygg­ingu við Alþing­is­húsið og átti að ráð­ast í bygg­ing­una árið 1918, en ekk­ert varð af því. Því segir rík­is­stjórnin fara vel á því að ljúka við bygg­ing­ar­á­formin nú, þegar Íslend­ingar hafa í heila öld notið þeirra fram­fara sem fylgdu í kjöl­far full­veldis. „Þannig mun eitt feg­ursta hús Guðjóns Sam­ú­els­sonar loks rísa, hús í sígildum stíl sem mikil prýði verður að til fram­tíðar.


Gert er ráð fyrir að haldin verði sam­keppni meðal arki­tekta um hönnun húss­ins og tengi­bygg­inga að öðru leyti. Þannig fá íslenskir arki­tektar sam­tím­ans tæki­færi til að hanna hús með Guðjóni Sam­ú­els­syni. Með því vinna kyn­slóðir full­veld­is­stofn­un­ar­innar með kyn­slóðum sam­tím­ans við upp­bygg­ingu til fram­tíðar. Um leið og horft er til fram­tíðar er for­tíð­inni sýnd virð­ing og draumar fyrri kyn­slóðar upp­fylltir í þágu fram­tíð­ar­kyn­slóða.“

Stofnun Árna Magnússonar, ný Valhöll, hátíðarfundur, hátíðarhöld og rit um sambandslögin

Fleiri til­lögur eru í drögum að þings­á­lykt­un­ar­til­lögu rík­is­stjórn­ar­innar. Til að mynda vilja stjórn­völd að Stofnun Árna Magn­ús­sonar í íslenskum fræðum verði þjóð­ar­gjöf í til­efni af 100 ára full­veld­is­af­mælis Íslands árið 2018. Þá er í til­lög­unni gert ráð fyrir því að reist verði ný Valhöll á Þing­völlum og hald­inn verði hátíð­ar­fundur á Þing­völlum þann 18. júlí 2018, þegar hund­rað ár verða frá því að efn­is­legt sam­komu­lag um full­veldi náð­ist við Dani.


Þá mun rík­is­stjórnin efna til hátíð­ar­halda 1. des­em­ber sama ár, þegar öld verður liðin frá því að sam­bands­lögin tóku gildi. Að lokum mun for­seti Alþingis í sam­vinnu við for­sætis­nefnd og for­menn þing­flokka láta taka saman rit um „aðdrag­anda sam­bands­lag­anna, efni lag­anna og fram­kvæmd þeirra, svo og um inn­tak þess full­veldis er Ísland Öðlaðist að þjóða­rétti árið 1918.“


Hér má sjá texta þings­á­lykt­un­ar­til­lögu rík­is­stjórn­ar­innar, en vert er að taka fram að um drög er að ræða. Hér má lesa drögin.

Alþingisreiturinn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár