Áróðursbréfi um störf eiginmanns Hildar fyrir Jón Ásgeir dreift til sjálfstæðisfólks

Í aðdrag­anda próf­kjörs Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík í mars var ómerktu dreifi­bréfi um eig­in­mann Hildar Björns­dóttur dreift til flokks­manna. Þar var rætt um vinnu manns hennar, Jóns Skafta­sonar fyrir fjár­fest­inn Jón Ásgeir Jóhann­es­son. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Jón Ásgeir verður hluti af pró­kjörs­bar­áttu í flokknum.

Enginn hefur talað um tengslin opinberlega
Enginn hefur talað um tengslin opin­ber­lega Áróð­urs­bréfi um tengsl Jóns Skafta­sonar, eig­in­manns Hildar Björns­dóttur, við Jón Ásgeir Jóhann­es­son­var dreift til sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík í aðdrag­anda próf­kjörs flokks­ins í mars.

Bréfi með upp­lýs­ingum og áróðri um tengsl eig­in­manns odd­vita Sjálf­stæð­is­flokk­ins, við Jón Ásgeir Jóhann­es­son fjár­festi var dreift til sjálf­stæð­is­fólks í aðdrag­anda próf­kjörs flokks­ins í Reykja­vík í mars. Dreifi­bréfið var meðal ann­ars borið út í hús ein­hverra skráðra sjálf­stæð­is­manna sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. Það var óund­ir­ritað en í bréf­inu vísar höf­undur til sín sem sjálf­stæð­is­manns. 

Borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í Reykja­vík fara fram 14. maí næst­kom­andi. Hildur Björns­dóttir var kjörin odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í próf­kjör­inu, en fékk undir helm­ing atkvæða, eða 49,2 pró­sent. Mót­fram­bjóð­andi hennar, Ragn­hildur Alda María Vil­hjálms­dóttir fékk 37,1 pró­sent. Samkvæmt nýj­ustu skoð­ana­könn­unum mun flokk­ur­inn missa þrjá borg­ar­full­trúa og meiri­hlut­inn í Reykja­vík heldur velli. 

Sagt að andstæðingar myndu nota tengslin

Eig­in­maður Hildar heitir Jón Skafta­son. Jón er lög­fræð­ingur og hefur hann starfað fyrir fyr­ir­tæki Jóns Ásgeirs um ára­bil. Hann var, þar til í lok mars, fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Strengs, stærsta ein­staka hlut­hafa fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins SKEL, sem áður hét Skelj­ungur, auk þess að vera …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Regína Stefnisdóttir skrifaði
    Einkar fróðleg skrif. Breytt landslag.
    0
  • Hördur Bjarnason skrifaði
    Það er nú orðið það viðkvæmt okkar þjóðfélag að best er fyrir alla flokka að halda þessu liði sem er tengt siðlausu meninga gengi burt. Ég skil ekki hvernig Sjálfstðismönnum datt í hug að kjósa þessa konu í oddvitasætið. Þeim er allavega ekki mikið ant um að ná borginni aftur. ég held að þessi dama verði ekki langlíf og hvað þá flokkurinn.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár