Engin stefnubreyting í málefnum aflandskrónueigenda

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son þing­maður tók­ust á um áætlun um losun hafta á þingi í morgun.

Það kemur ekki til greina að hleypa aflandskrónu­eig­endum úr landi ef það þýðir að ekki verði hægt að fara í fullt afnám hafta. Þetta segir for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son. Hann segir enga stefnu­breyt­ingu eða áherslu­breyt­ingu hafa orðið hvað þetta varðar við rík­is­stjórn­ar­skipti.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, spurði Bjarna um þetta í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag. Sig­mundur tal­aði um fréttir síð­ustu daga, um að til standi að semja við kröfu­hafa sem ekki vildu taka þátt í útboði Seðla­bank­ans á síð­asta ári, um að hleypa þeim út úr land­inu með pen­inga sína. Það hefði verið grunn­for­senda útboðs­ins að allir væru með­vit­aðir um að þeir sem ekki tækju þátt í því myndu sitja eftir og fara aft­ast í röð­ina. „Er það stefnan að hverfa frá þess­ari ákvörðun?“ spurði Sig­mundur Davíð.

„Við ætlum ekki að fórna neinu til þess að gera þessum aðilum mögu­legt að kom­ast út úr land­inu með sínar eignir ef að það þýðir á ein­hvern hátt að eftir sitji allur almenn­ingur, fyr­ir­tækin í þessu landi, sveit­ar­stjórnir og aðrir, líf­eyr­is­sjóðir, í höftum með ein­hvern vanda. Um þetta hefur málið snú­ist allan tím­ann. Það hefur engin stefnu­breyt­ing orðið á því að það kemur ekki til greina að skapa ein­hverja lausn fyrir aflandskrónu­eig­endur sem ekki felur það um leið í sér að hægt verði að fara í fullt afnám hafta,“ sagði Bjarni.

Sig­mundur Davíð spurði Bjarna einnig um þær breyt­ingar sem gerðar voru hjá nýrri rík­is­stjórn að færa mál­efni Seðla­bank­ans frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu og til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Hann vitn­aði í svar Bjarna við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið, þar sem fram kom að vegna sjálf­stæðis Seðla­bank­ans væri æski­legt að yfir­stjórn hans og sam­þykkt pen­inga- og geng­is­stefnu sé í öðru ráðu­neyti en því sem fer með fjár­mál rík­is­ins. Sig­mundur Davíð spurði hvenær Bjarni hefði upp­götvað þetta, hvort það hefði verið áður en hann tók við emb­ætti fjár­mála­ráð­herra eða á meðan, og hvaða hags­munir hefðu orðið ofan á hjá honum sjálfum þegar hags­muna­á­rekstrar hefðu komið upp.

Bjarni svar­aði því til að þetta væru ein rökin fyrir því að færa mál­efni Seðla­bank­ans milli ráðu­neyta. Það væri vegna til­tölu­lega nýrrar laga­breyt­ingar, og meðal ann­ars vegna þess að Seðla­bank­inn geti við vissar aðstæður kallað eftir fram­lagi frá rík­inu. Bjarni seg­ist ætla að lyfta upp því hlut­verki for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins sem hafi með hag­stjórn almennt að gera, og ráða inn sér­fræð­inga í for­sæt­is­ráðu­neytið í þessu skyni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár