Bjarni horfir til Katrínar

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Vinstri græn hafa hafið við­ræður til að kanna grund­völl fyrir því að vera nýr öxull við stjórn­ar­myndun. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur enn þann kost að fara í rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjarta fram­tíð. Þeir flokkar hafa náð saman u

Enn ein U-beygjan hefur verið tekin í myndun nýrrar rík­is­stjórnar á Íslandi. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, og Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, tjáði for­seta Íslands fyrr í dag að þau ætl­uðu að kanna hvort mögu­leiki sé á sam­starfi þess­ara flokka í rík­is­stjórn. Náist slík sátt munu for­menn­irnir tveir, sem leiða tvo stærstu stjórn­mála­flokka lands­ins en eru á sitt hvorum pólnum í hinu póli­tíska lit­rófi, í kjöl­farið leita til ann­arra stjórn­mála­flokka um að verða aðilar að stjórn þeirra.

Hug­myndin er að stærstu flokk­arnir tveir, og þeir sem hug­mynda­fræði­lega eru lengst frá hvorum öðrum, geti verið ein­hvers konar öxull í nýrri rík­is­stjórn.

CAD-stjórnin sett á ís

Í gær greindi Kjarninn frá því að ný rík­is­stjórn sem inni­héldi Sjálf­stæð­is­flokk­inn, Viðreisn og Bjartra fram­tíð virt­ist vera að mynd­ast. Flokk­arnir þrír höfðu átt í við­ræðum alla helg­ina og náð saman í stórum málum. Mikill vilji var þó til þess að ná fjórða flokknum um borð til að tryggja meiri styrk rík­is­stjórn­ar­innar, en þriggja flokka stjórnin hefði ein­ungis haft eins þing­manns meiri­hluta.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði ítrekað reynt að koma Fram­sókn­ar­flokknum að stjórn­ar­mynd­un­ar­borð­inu, annað hvort í við­ræðum við Vinstri græn eða við Viðreisn og Bjartra fram­tíð. Engin þess­ara flokka tók slíkt hins vegar í mál. Það var ein­fald­lega engin vilji til að lengja líf sitj­andi rík­is­stjórnar.

Við­mæl­endur Kjarnans innan Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar sögðu að við­ræður milli flokk­anna þriggja hafi farið á fullt aftur um helg­ina, en flokk­arnir þrír reyndu að mynda rík­is­stjórn fyrr í nóv­em­ber án árang­urs.

Formenn flokk­anna þriggja, Bjarni Bene­dikts­son, Benedikt Jóhann­es­son og Óttarr Proppé, hitt­ust á laug­ar­dag og sam­töl milli lyk­il­fólks í flokk­unum héldu svo áfram um helg­ina. Fyrir lági mála­miðl­un­ar­til­lögur í átaka­málum sem allir áttu að geta sætt sig við. Auk þess var búið að kom­ast að nið­ur­stöðu um skatt­kerf­is­breyt­ingar sem öllum flokk­unum þremur hugn­að­ist.

Á sunnu­dags­kvöld stóð til að for­menn­irnir hitt­ust aftur en því var frestað, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, vegna þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vildi gera loka­til­raun til að fá Vinstri græn um borð í rík­is­stjórn­ina. Bjarni Bene­dikts­son til­tók það enda sér­stak­lega, í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér þegar við­ræðum flokk­anna þriggja var slitið síð­ast, að aðstæður á Íslandi „kalli á rík­is­stjórn með breið­ari skírskotun og sterk­ari meiri­hluta en þann sem þessir þrír flokkar geta boðið.“

Í gær­kvöldi ákvað Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn svo að kanna aðra mögu­leika í stöð­unni og for­ystu­fólki Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar var til­kynnt um það. Í sam­tali við Vísi.is fyrr í dag sagði Bjarni að það hafi verið nið­ur­staða sín, eftir umrætt sam­tal við for­menn Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar, að leita leiða til að mynda breið­ari rík­is­stjórn og að hann ætl­aði að ræða við Katrínu Jak­obs­dóttur um það.

Þingstyrk þarf fyrir erfið verkefni

Innan minni flokk­anna tveggja hafði ríkt bjart­sýni á að þá það yrði ein­fald­lega keyrt á þriggja flokka rík­is­stjórn með lít­inn meiri­hluta, þrátt fyrir að bæði Bjarni Bene­dikts­son, og margir þing­menn flokks hans, voru skept­ísktir á svo veika rík­is­stjórn.

Þegar leið á gær­dag­inn juk­ust sam­skiptin milli Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna og óform­legar þreif­ingar þeirra á milli um að mynda nýjan öxul í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum urðu alvar­legri en þær hafa verið hingað til. Heim­ild­ar­menn Kjarnans segja að í ljósi þeirra verk­efna sem framundan séu á kom­andi kjör­tíma­bili – bæði efna­hags­legra áskor­ana og upp­safn­aðra inn­viða­fjár­fest­inga – þá telji lyk­il­fólk í báðum flokkum að ómögu­legt verði að mynda starf­hæfa og sterka rík­is­stjórn nema hún inni­haldi bæði Vinstri græn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Saman eru flokk­arnir með 31 þing­mann og þurfa því að minnsta kosti að taka einn flokk til við­bótar með í sam­starfið. Vinstri græn úti­loka að koma inn í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar.

Mikill vilji er hjá öðrum stjórnmálaflokkum að brjóta upp bandalag Viðreisnar og Bjartrar framtíðar til þess að síðarnefndi flokkurinn geti orðið hluti af ríkisstjórn án Viðreisnar.
Mikill vilji er hjá öðrum stjórn­mála­flokkum að brjóta upp banda­lag Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar til þess að síð­ar­nefndi flokk­ur­inn geti orðið hluti af rík­is­stjórn án Við­reisnar.

Þá er sú skoðun ríkj­andi innan Vinstri grænna að flokk­arnir þrír: Sjálf­stæð­is­flokkur, Viðreisn og Björt fram­tíð, séu allir með ríkar hægri áherslur. Í ljósi þess að þeir þrír eru með meiri­hluta þing­manna á Alþingi þá hræð­ast Vinstri græn að hægri hlið rík­is­stjórn­ar­innar myndi keyra yfir vinstri hlið­ina ef á reyndi.

Sér­stak­lega þar sem þeir flokkar eru nú þegar búnir að semja sig niður á lausnir í ansi mörgum málum. Lausnir sem Vinstri græn geta með engu máli sætt sig við.

Samfylking, Björt framtíð eða báðir flokkarnir

Þeir flokkar sem þar koma helst til greina eru Sam­fylk­ingin – sem Vinstri græn eru mjög áfram um að fá inn í rík­is­stjórn­ar­sam­starfið – og Björt fram­tíð. Helst er vilji til að fá báða flokk­anna inn í það og mynda þá rík­is­stjórn með 38 þing­menn, og sterkan meiri­hluta.

Vanda­málið þar er að Björt fram­tíð hefur bundið sig ansi fast við Viðreisn og hingað til hefur ekki verið neinn vilji hjá flokknum til að slíta sig frá því sam­starfi, þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir ann­arra stjórn­mála­flokka til að reka fleyg á milli þeirra.

Rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar er þó fjarri því út af borð­inu. Viðræður Bjarna og Katrínar munu snú­ast um að kanna af alvöru hvort hægt sé að mynda ann­ars konar rík­is­stjórn sem inni­heldur báða þá flokka. Katrín lagði sér­staka áherslu á það í sam­tali við mbl.is í dag að um óform­legar við­ræður sé að ræða.

Ef ekki næst saman milli þeirra er þriggja flokka rík­is­stjórnin frá miðju til hægri, sem var fyrsta val Bjarna Bene­dikts­sonar í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum eftir kosn­ing­arnar, enn lík­leg­asti mögu­leik­inn sem er á borð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið undanfarið ár