Nauðsynlegt að skoða frekari sameiningar í framhaldsskólum

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra segir að þó ekki sé verið að skoða frek­ari sam­ein­ingar en hjá Tækni­skól­anum og Fjöl­braut­ar­skól­anum við Ármúla sé brýnt að huga að frekara sam­starfi eða sam­ein­ingu skóla.

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Kristján Þór Júlíusson menntamálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra og Kristján Þór Júl­í­us­son mennta­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Nauð­syn­legt er að huga að því að styrkja fram­halds­skóla­kerfið með meira sam­starfi milli skóla eða sam­ein­ingum, til að kerfið geti mætt þeim áskor­unum sem það stendur frammi fyrir.

Þetta kom fram í máli Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, á opnum fundi alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis í morgun. Fund­ur­inn var hald­inn vegna frétta um áform stjórn­valda um að sam­eina Tækni­skól­ann og Fjöl­braut­ar­skól­ann við Ármúla.

Fækkun nem­enda og stytt­ing náms til stúd­ents­prófs valda því að fram­halds­skóla­stigið er að ganga í gegnum miklar breyt­ingar, sagði Kristján Þór. Mennta­mála­ráðu­neytið hefur skoðað sam­starf og sam­ein­ingar fram­halds­skóla frá árinu 2013, þar sem stærri skólar ráði betur við nem­enda­fjölda og geti boðið upp á fjöl­breytt­ara nám.

Kristján Þór sagði miður að ótíma­bær umræða um þessa ákveðnu sam­ein­ingu hafi farið af stað áður en allar upp­lýs­ingar lágu fyrir, en sagð­ist vona að það yrði ekki til að spilla fyrir mál­inu. Vinna við hugs­an­lega sam­ein­ingu hófst í febr­úar, í sam­ráði við starfs­fólk ráðu­neyt­is­ins og for­svars­menn skól­anna tveggja. „Það stóð til að þessi vinna væri lengra komin þannig að svör lægju fyrir þegar að hug­myndin væri lögð fram til kynn­ingar fyrir hags­muna­að­ila,“ sagði hann. Vonir hans stæðu til að hægt verði að taka yfir­veg­aða ákvörðun á grund­velli vinn­unnar sem nú stendur yfir.

Ráðherra sagð­ist hafa sann­fær­ingu fyrir því að verið væri að styrkja það nám sem er fyrir hendi í skól­unum. Það kunni hins vegar að vera að rann­sókn­ar­vinnan sem nú stendur yfir muni leiða í ljós van­kanta á sam­ein­ing­unni. „Þá verður það mín nið­ur­staða að slá þetta af, ef nið­ur­staða grein­ing­ar­innar verður á þann veg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár