Farið er yfir fræði­bækur er varða lýð­ræðið, kosn­ingar og efna­hags­stjórn­mála. Mynd: Golli

Af stjórnmálaástandi – úr jólabókaflóðum

Fræði­bækur og rit almenns efnis er víðfeðmur flokkur bæði í Bóka­tíðindum og á sviði bókmennta­verðlauna. Hér eru teknar til yfir­lits­legrar greiningar nokkrar sérvaldar bækur sem mætti draga saman undir flokk almennra fræðandi bóka á sviði stjórn­mála og lýðræðis sem settar eru í lauslegt samhengi fleirri bóka af sviðum efna­hag­spóli­tíkur.

Leitin að sann­leikanum og íslensk stjórnmála­fræði eftir Svan Kristjánsson stjórnmála­fræði­prófessor birtist fyrst í TMM – Tímariti Máls og menningar, árið 2018, og kom aftur út í greina­safni hans fyrr í ár. Þar rifjar Svanur upp hverjar megin­áherslur fyrsta kennara hans í stjórnmála­fræði hálfri öld áður voru: „Lýðræðið er alls staðar viðkvæmt. Öfgaöfl ógna lýðræðinu. Við verðum ætíð að standa vörð um mann­réttindi allra. Annars er stutt í vanþróun lýðræðis – jafnvel hrun lýðræðis og réttar­ríkis“. Theodore Mitau, kennari Svans, sem hafði þessar áherslur, í Banda­ríkjunum árið 1968, var fæddur 1920 og flúði Berlín fjórtán ára gamall, því hann var gyðingur en fjöl­skyldan hans öll fórst síðan í helförinni. Þessar áherslur virðast eiga vel við enn í dag. Því er mikilvægt að út komi vandaðar bækur sem fjalla um lýðræðið og stjórnmál.  

Spuni, vitlíki og söguskrif

Ein af stóru ógnunum sem steðjar að lýðræðinu nú um stundir …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár