„Ekki mikill metnaður heldur bara lágmarkið“

Fyrr­ver­andi þing­maður VG gagn­rýnir ný mark­mið Íslands í lofts­lags­málum og segir rík­is­stjórn­ina ein­ungis festa á blað það lág­mark sem sé lík­legt að Ísland verði hvort sem er að taka upp í sam­starfi við Evr­ópu­sam­bandið.

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður utan flokka.
Andrés Ingi Jónsson, þing­maður utan flokka. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður utan flokka og fyrrum þing­maður Vinstri grænna, segir það vera tíma­bært og mik­il­vægt að upp­færa mark­mið Íslands um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Frá þessu greinir hann á Facebook í dag en Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra mun kynna ný mark­mið Íslands í lofts­lags­málum á leið­toga­fundi 12. des­em­ber næst­kom­andi.

Á vef Stjórn­ar­ráðs­ins kemur fram að sam­dráttur verði auk­inn í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda – úr núver­andi mark­miði um 40 pró­sent sam­drátt miðað við árið 1990 í 55 pró­sent eða meira til árs­ins 2030 en það mark­mið teng­ist sam­floti Íslands með ESB og Noregi.

„Með því að setja markið á 55 pró­sent sam­drátt er rík­is­stjórnin hins vegar ekki að velja sér metn­að­ar­full mark­mið, heldur bara að festa á blað það lág­mark sem er lík­legt að Ísland verði hvort eð er að taka upp í sam­starfi við Evr­ópu­sam­bandið,“ skrifar Andrés Ingi á Facebook.

Danmörk með markmið um 70% samdrátt

Hann segir að frá því að ESB lýsti yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum fyrir ári síðan hafi verið ljóst að það stefndi í að upp­færa sín mark­mið úr 40 pró­sent í 55 pró­sent. Evr­ópu­þingið sam­þykkti svo í októ­ber á síð­asta ári að stefna frekar að 60 pró­sent en það komi vænt­an­lega í ljós á leið­toga­fundi í dag hvort mark­miðið verði ofan á.

„Innan Evrópu eru síðan ein­stök ríki sem sýna mik­inn metnað og ætla sjálf að ganga lengra en sam­eig­in­leg mark­mið ESB krefj­ast, eins og Danmörk sem lög­festi í vor mark­mið um 70 pró­sent sam­drátt í losun. Því miður virð­ist núver­andi rík­is­stjórn Íslands ekki ná saman um metn­að­ar­full mark­mið eins og dönsku kolleg­arnir. Hér á landi er lág­marks­metn­að­ur­inn lát­inn duga í stærsta úrlausn­ar­efni sam­tím­ans,“ skrifar hann.

Efla aðgerðir til að ná markmiði Íslands um kolefnishlutleysi árið 2040

Leið­toga­fund­ur­inn fyrr­nefndur þar sem for­sæt­is­ráð­herra mun kynna ný mark­mið er hald­inn á fimm ára afmæli Par­ís­ar­sátt­mál­ans á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna með breskum og frönskum stjórn­völdum, í sam­vinnu við Chíle og Ítalíu. „Til­gangur fund­ar­ins er að vekja athygli á lofts­lags­vánni og skapa vett­vang fyrir nýja sókn til að ná mark­miðum Par­ís­ar­samn­ings­ins um að halda hnatt­rænni hlýnun innan við 2°C og leita leiða til að tak­marka hlýnun við 1,5°C,“ segir á vef Stjórn­ar­ráðs­ins en í til­kynn­ing­unni segir að nýju mark­miðin séu metn­að­ar­full.

Mark­miðin eru þrjú:

  • Aukinn sam­dráttur í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Úr núver­andi mark­miði um 40 pró­sent sam­drátt miðað við árið 1990 í 55 pró­sent eða meira til árs­ins 2030, en það mark­mið teng­ist sam­floti Íslands með ESB og Noregi.
  • Efldar aðgerðir til að ná mark­miði Íslands um kolefn­is­hlut­leysi árið 2040 og áfanga­mark­miði um kolefn­is­hlut­leysi los­unar á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda í kringum árið 2030.
  • Aukin áhersla á lofts­lagstengd þró­un­ar­sam­vinnu­verk­efni, einkum á sviði sjálf­bærrar orku með til­liti til íslenskrar sér­þekk­ingar.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár