Ekki hægt að horfa á íslenska landsliðið á RÚV erlendis

Vegna samn­inga getur RÚV ekki boðið upp á að Íslend­ingar, sem staddir eru erlendis, horfi á lands­liðið keppa á kom­andi heims­meist­ara­móti.

Stuðningsmenn íslenska landsliðsins.
Stuðn­ings­menn íslenska lands­liðs­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lands­menn bíða vænt­an­lega margir með eft­ir­vænt­ing eftir heims­meist­ara­mót­inu í fót­bolta sem hefst þann 14. júní næst­kom­andi þar sem Íslend­ingar keppa í fyrsta sinn. Fyrsti leikur liðs­ins er á móti Argent­ínu laug­ar­dag­inn 16. júní og verður hægt að horfa á leik­inn á RÚV, sem og aðra leiki.

Vegna samn­inga og sýn­ing­ar­réttar getur Rík­is­sjón­varpið ekki boðið Íslend­ingum, sem dvelja erlendis, upp á að sjá leik­ina þar sem reglur leyfa ekki sýn­ingu utan land­stein­anna.

EBU, Samband evr­ópskra sjón­varps­stöðva, gerði samn­ing árið 2012 við FIFA, Alþjóða knatt­spyrnu­sam­bandið, um sýn­ing­ar­rétt­inn á HM 2018 í Rúss­landi og 2022 í Katar. Ástæða þess að FIFA gerði samn­ing­inn er fyrst og fremst krafan um að mótin verði sýnd í opinni dag­skrá sem stendur öllum almenn­ingi til boða.

„Þegar þú kaupir sýn­ing­ar­rétt þá ertu að kaupa fyrir þitt land­svæði,“ segir Hilmar Björns­son, deild­ar­stjóri Íþrótta­deildar RÚV, í sam­tali við Kjarnann. Hann segir að þetta hafi líka átt við um und­ankeppni HM. Þá hafi RÚV getað sýnt heima­leik­ina en þurft leyfi til að nálg­ast úti­leik­ina í gegnum gervi­hnött.

Hilmar segir að regl­urnar séu gríð­ar­lega harðar og ef eitt­hvað sem ekki má fara utan Íslands gerir það þá sé gripið strax í taumana, enda séu miklir fjár­munir í spil­inu.

Misjafnt er hvernig sýn­ing­ar­rétti er háttað og hvernig íþrótta­sam­bönd haga sér í þeim efnum. Hilmar segir að sömu ströngu reglur hafi gilt um Ólymp­íu­leik­ana en þá hafi verið bannað að leka merki útsend­inga út fyrir land­stein­ana.

Sér­stakur HM-vefur mun opna á næstu dögum á RÚV þar sem hægt verður að fylgj­ast með mót­inu, fá upp­lýs­ingar um leiki o.s.frv.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár