100 milljónir aukalega í gatnaviðgerðir

Vega­gerðin áætlar að eyða 100 millj­ónum króna auka­lega í við­gerðir vega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og nágrenni í sumar. Vegir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa komið veru­lega illa undan vetri vegna lélegs við­halds und­an­farin ár sem skýrist af fjár­skorti hjá borgar- og vega­mála­yf­ir­völdum.

Tjóna­til­kynn­ingum vegna hins lélega ástands rignir inn til trygg­inga­fé­laga, borg­ar­yf­ir­valda og Vega­gerð­ar­innar og hefur fjöldi til­kynn­inga marg­fald­ast milli ára. Þá hefur Bíl­greina­sam­bandið meðal ann­ars vakið athygli á þess­ari „alvar­legu stöðu sem [...] gæti endað með banaslysi.“

Vega­gerðin hefur umsjón með fram­kvæmdum og við­haldi þjóð­vega í þétt­býli. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sér Vega­gerðin um helstu stofn­brautir; götur á borð við Miklu­braut, Kringlu­mýr­ar­braut og Sæbraut. Ráðgert er að alls 36 veg­kaflar á suð­ur­svæði verði lag­færðir í sumar, lang­flestir í þétt­býli.

G. Pétur Matth­í­as­son, upp­lýs­inga­full­trúi Vega­gerð­ar­innar, sagði í sam­tali við Kjarnann að tæpir 53 kíló­metrar af bundnu slit­lagi verði lag­færðir eða end­ur­nýj­aðir í sumar. Nú verður gam­alt slit­lag fræst upp og nýtt mal­bik lagt, ólíkt því sem gert hefur verið und­an­farin ár þegar gamla slit­lagið hefur verið lag­fært.

Vega­gerðin mun halda tvö útboð fyrir við­hald vega á suð­ur­svæði í sumar. Ekki er hægt að segja til um hvenær við­gerðir hefj­ast, enda ræðst það tölu­vert af veðri, að sögn G. Péturs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár