Viðskipti með bréf Iceland Seafood hefjast á aðalmarkaði

Félögin sem skráð eru á aðal­markað Kaup­hallar Íslands eru orðin 20 tals­ins eftir að Iceland Seafood flutti sig í dag yfir af First North. Kynja­hlut­fall for­stjóra á mark­aðnum helst óbreytt, karl­arnir eru 20 en kon­urnar engar.

Hluta­bréf í Iceland Seafood International voru tekin til við­skipta á aðal­mark­aði Kaup­hallar Íslands í morgun. Áður var Iceland Seafood skráð á First North mark­að­inn. Bjarni Ármanns­son, for­stjóri og einn aðal­eig­enda Iceland Seafood, hringdi inn við­skiptin.

Stjórn Iceland Seafood International hf. óskaði eftir því að öll hluta­bréf í félag­inu verði tekin til við­­skipta á Aðal­­­mark­að­inum í byrjun októ­ber­mán­að­ar.

Í til­kynn­ingu frá Kauphöll vegna þessa segir að starf­semi Iceland Seafood megi rekja alveg til árs­ins 1932. „Félagið er í dag leið­andi þjón­ustu­að­ili og sölu­að­ili sjáv­ar­fangs úr norður-Atl­ants­haf­inu til mark­aða um allan heim. Félagið vinnur hágæða sjáv­ar­fang á Spáni, Bret­landi og Írlandi og er einn stærsti útflutn­ings­að­ili fiskaf­urða frá Íslandi. Helsta sölu­vara Iceland Seafood eru ýmis­konar fiskaf­urðir; ferskt sjáv­ar­fang og fryst á landi og sjó; saltað, létt­saltað og þurrkað. Auk þess þjón­ustar félagið við­skipta­vini sína með tækni­lausnum og birgða­stjórnun, sem og tryggir gæði þjón­ustu og vöru. Höf­uð­stöðvar Iceland Seafood eru á Íslandi, en félagið hefur 12 skrif­stofur í 8 löndum í bæði Evrópu og Norður- og Suður-Ameríku. Starfs­menn eru 620 tals­ins.“

[adspot]Bjarni Ármanns­son segir að það sé ánægju­legt að hafa náð þessum áfanga í veg­ferð Iceland Seafood. „Við sjáum fram á mikla vaxt­ar­mögu­leika og erum þakk­lát fyrir þau góðu við­brögð sem hluta­fjár­út­boðið okkar fékk frá fjár­festum, en það mun skjóta styrk­ari stoðum undir áætl­anir okkar. Við bjóðum nýja fjár­festa vel­komna og hlökkum til að vinna með þeim í fram­tíð­inni.“

Magnús Harð­ar­son, nýr for­stjóri Kaup­hall­ar­innar, segir að Iceland Seafood hafi sýnt svo ekki verði um villst hvernig hægt sé að nýta hluta­bréfa­mark­að­inn til að hrinda í fram­kvæmd áætl­unum sínum. „Félagið hefur verið skráð á First North síðan árið 2016 og frá þeim tíma til dags­ins í dag hefur mark­aðsvirði þess hækkað um 250 pró­sent. Við óskum Iceland Seafood inni­lega til ham­ingju með frá­bæran árangur, flutn­ing félags­ins á Aðal­mark­að­inn og hlökkum til að styðja við félagið í veg­ferð þess til vaxtar og auk­ins sýni­leika.”

Kynjahlutföll forstjóra óbreytt

Bjarni Ármanns­­son, sem eitt sinn var for­stjóri Glitn­is, er líkt og áður sagði for­­stjóri Iceland Seafood. Kynja­hlut­föll for­stjóra skráðra félaga í Kauphöll Íslands, sem hafa verið umtals­vert til umfjöll­unar á und­an­förnum árum, verða því áfram óbreytt. Alls stýra 20 karlar félög­unum 20 sem þar eru skráð. Kjarninn greindi frá því í sumar að á lista Frjálsrar versl­unar yfir 100 launa­hæstu for­stjóra lands­ins hafi verið átta konur.

Félag í eigu Bjarna, Sjáv­ar­sýn ehf., er líka stærsti eig­andi Iceland Seafood eftir nýlegt hluta­fjár­út­boð, með 11,05 pró­sent eign­ar­hlut. Félagið Nes­fiskur ehf. á 10,7 pró­sent hlut, FISK Seafood, sjáv­ar­út­vegs­armur Kaup­fé­lags Skag­firð­inga á sömu­leiðis 10,7 pró­sent hlut og Jakob Val­geir ehf., í eigu útgerð­ar­manns­ins Jak­obs Val­geirs Flosa­son­ar, er fjórði stærsti eig­and­inn með 10,24 pró­sent hlut.

Félagið Solo Hold­ing ehf. sem var með 8,9 pró­sent hlut fyrir útboðið, er hins vegar ekki á meðal eig­enda lengur. Það félag er í eigu Sjáv­ar­sýn­ar, FISK Seafood, Jak­obs Val­geirs, Nes­fisks og Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur ehf., sem keypti þriðj­ung í því í nóv­em­ber í fyrra. Helsti eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur er Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri Brims, en félagið er langstærsti eig­andi Brims með yfir helm­ings­eign­ar­hlut. Nú á Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur 1,96 pró­sent hlut í Iceland Seafood.

Stærstu eigendur Iceland Seafood:

Sjáv­ar­sýn ehf

11,05%

Nes­fiskur ehf.


10,70%

FISK-Seafood ehf


10,70%

Jakob Valgeir ehf

10,24%

Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn


4,85%

Lífsverk líf­eyr­is­sjóður


4,00%

Arion banki hf.


3,70%

Birta líf­eyr­is­sjóður

3,58%

Kvika banki hf.

3,07%

Vátrygg­inga­fé­lag Íslands hf.

2,76%

Sjóvá-Almennar trygg­ingar hf.


2,57%

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hf.

1,96%

Líf­eyr­issj.starfsm.rík. A-deild


1,59%

Stefnir - ÍS 15


1,55%

9. S ehf.

1,28%

Hof­garðar ehf.

1,17%

Íshóll ehf.

1,17%

Akta HL1

1,07%

Akta HS1

1,05%

Akta Stokkur

0,99%

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár