Flúði Hvíta-Rússland með röntgenmyndir særðra rússneskra hermanna

Hví­trúss­neskur læknir sem hefur fengið hæli í Litáen ásamt fjöl­skyldu sinni lýsir því að hörm­ung­ar­á­stand hafi verið á spít­ölum í suð­ur­hluta Hvíta-Rúss­lands í upp­hafi inn­rásar Rússa í Úkraínu.

Hvítrússneski læknirinn er kallaður Andrei í umfjöllun CNN.
Hví­trúss­neski lækn­ir­inn er kall­aður Andrei í umfjöllun CNN. Mynd: Skjáskot úr myndskeiði frá CNN

Læknir frá borg­inni Mazyr í suð­ur­hluta Hvíta-Rúss­lands, sem flúði til Litáen með fjöl­skyldu sinni í upp­hafi sum­ars, segir að hví­trúss­neskum læknum í grennd við landa­mæri Úkraínu hafi verið gert að taka á móti miklum fjölda rúss­neskra her­manna á fyrstu dögum inn­rásar rúss­neska hers­ins í nágranna­landið í suðri.

Í við­tali við CNN segir lækn­ir­inn, sem kall­aður er Andrei í umfjöllun banda­ríska fjöl­mið­ils­ins til að vernda auð­kenni hans, að á borg­ar­spít­al­anum í Mazyr hafi læknum verið sagt að hafa 250 sjúkra­rúm laus undir rúss­neska her­menn við upp­haf inn­rás­ar­innar, fresta skipu­lögðum skurð­að­gerðum og útskrifa hví­trúss­neska sjúk­linga ef kostur væri.

Hví­trúss­neski lækn­ir­inn segir að hol­skefla særðra her­manna hafi komið inn á fyrstu dögum inn­rás­ar­innar, og að á milli 40 og 50 rúss­neskir her­menn farið inn og út af spít­al­anum á degi hverjum í upp­hafi mars­mán­aðar „eins og á færi­bandi“. Þangað hafi rúss­neskir her­menn einnig reynt að koma með látna félaga sína. „Þeir vissu ekki hvað þeir áttu að gera við þá.“

Hótað eftirliti FSB

Læknum á spít­al­anum í Mazyr, sem sam­kvæmt umfjöllun CNN var einn að minnsta kosti þriggja spít­ala í Gomel-hér­aði í suð­ur­hluta lands­ins sem falið var að taka á móti særðum Rússum á fyrstu mán­uðum inn­rás­ar­innar, var að sögn lækn­is­ins gert að skrifa undir þagn­ar­skyldu­samn­inga varð­andi þjón­ust­una sem þeir veittu rúss­neska her­lið­inu.

Þeim var strang­lega bannað að deila myndum og gögnum og hótað með því að rúss­neska leyni­þjón­ustan FSB væri með lækna­liðið undir eft­ir­liti og gæti fylgst með símum þeirra.

[adspot]

Þrátt fyrir þetta ákvað hví­trúss­neski lækn­ir­inn að taka raf­ræn afrit af röntgen­myndum rúss­neskra her­manna, sem hann tók með sér á USB-kubbi sem hann faldi í leik­fangi dóttur sinnar á flótta fjöl­skyld­unnar til Litáen.

Það gerði hann til þess að hafa sönn­un­ar­gögn um þau verk sem hví­trúss­neskum læknum var falið að sinna í þágu rúss­neska hers­ins í upp­hafi stríðs­ins, sem lítið hefur heyrst af til þessa þrátt fyrir að Aleksandr Lukashenko for­seti lands­ins hafi við­ur­kennt strax í byrjun inn­rás­ar­innar að særðir rúss­neskir her­menn hefðu verið fluttir á spít­ala í suð­ur­hluta lands­ins.

Óttaðist að verða sendur á vígvöllinn

Andrei var hand­tek­inn í lok mars, ásamt fleiri þar­lendum læknum og sak­aður um spill­ingu og mútu­þægni. Það segir hann upp­lognar sakir, til þess fallnar að ógna lækn­unum og sýna þeim hvað gæti beðið þeirra ef þeir reyndu að fara úr landi.

Hann var vistaður í fang­elsi í höf­uð­borg­inni Minsk í einn og hálfan mánuð og ákvað í kjöl­farið, eftir að hafa verið beð­inn um að skrá sig í hví­trúss­neska her­inn, að kom­inn væri tími á að flýja heima­landið – enda byrj­aður að ótt­ast að stuðn­ingur hví­trúss­neskra yfir­valda við stríð Pútíns í Úkraínu myndi á end­anum leiða til þess að hví­trúss­neskir læknar eins og hann yrðu sendir á víg­völl­inn til að hjúkra rúss­neska inn­rás­ar­lið­inu.

Samkvæmt því sem kemur fram í umfjöllun CNN er talið að mun fleiri rúss­neskir her­menn hafi verið fluttir særðir eða látnir til Hvíta-Rúss­lands í upp­hafi inn­rás­ar­innar í Úkraínu en stjórn­völd þar hafa viljað meina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár