Stærsta veitingafyrirtækið í Leifsstöð notar vinnuafl frá starfsmannaleigu

Rík­is­fyr­ir­tækið Isavia bannar verk­tökum að nota starfs­manna­leigur í Leifs­stöð en fyr­ir­tæki með þjón­ustu­samn­inga við Isavia mega það. Um þriðj­ungur starfs­fólks Lag­ar­d­ére Travel Retail í Leifs­stöð yfir sum­ar­tím­ann kemur frá starfs­manna­leigu.

Tæpur þriðjungur frá starfsmannaleigu
Tæpur þriðj­ungur frá starfs­manna­leigu Tæplega þriðj­ungur starfs­fólks Lagárdere Travel Retail, sem meðal ann­ars rekur Mathús í Leifs­stöð, yfir sum­ar­tím­ann kemur frá starfs­manna­leig­unni Elju.

Stærsta veit­inga­fyr­ir­tækið í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar notar starfs­fólk frá starfs­manna­leig­unni Elju yfir mesta anna­tím­ann í flug­stöðv­ar­bygg­ing­unni. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins Lag­ar­d­ére Travel Retail ehf. sem rekur nokkra veit­inga­staði í Leifs­stöð, meðal ann­ars Mathús, Nord og Sega­fredo-kaffi­húsið. Um þetta segir í árs­reikn­ingnum: „Enn þá er mikil umfram­eft­ir­spurn eftir starfs­fólki á flug­vall­ar­svæð­inu, sér­stak­lega á háanna­tímum. Hefur þurft að brúa starfs­manna­vöntun með starfs­fólki frá starfs­manna­leigu. Opn­un­ar­tími er langur og er opið allan sól­ar­hring­inn þegar mest er að gera.“

Samkvæmt reglum Isavia, rekstr­ar­að­ila Leifs­stöðvar sem er í eigu rík­is­ins, er verk­tökum sem starfa beint fyrir Isavia bannað að nota starfs­fólk frá starfs­manna­leigum en þessar reglur gilda ekki um þá einka­að­ila, eins og Lag­ar­d­ére Travel Retail sem er með þjón­ustu­samn­inga við Isavia um leigu á hús­næði í flug­stöð­inni. Af hverju þetta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár