„Nú getur þú flogið án þess að fá móðu á gleraugun“

Flug­fé­lög í Noregi hafa ákveðið að afnema grímu­skyldu um borð í vélum sínum í flugi innan Skand­in­avíu. „Við hlökkum til að geta tekið á móti nýjum og gömlum far­þegum okkar með stóru brosi á vör – án grímunnar. Velkomin um borð.“

Farþegar geta að sjálfsögðu áfram valið að bera grímur um borð í flugvélum.
Farþegar geta að sjálf­sögðu áfram valið að bera grímur um borð í flug­vélum. Mynd: Norwegian

Norsk flug­fé­lög hafa sam­mælst um að hætta að skylda fólk til að vera með grímur um borð í velum þeirra í inn­an­lands­flugi og í flugi til ann­arra landa Skand­in­avíu. Þetta var nið­ur­staða fundar full­trúa þeirra í dag en aflétt­ing grímu­skyld­unnar verður að veru­leika eftir helgi.

Þann 5. maí í fyrra beindi IATA, alþjóða­sam­tök flug­fé­laga, þeim til­mælum til áhafna og flug­far­þega að bera grímur í flugi. 18. maí ákvað norska flug­fé­lagið SAS að setja á grímu­skyldu og hin norsku flug­fé­lögin; Norwegian, Widerøe og Flyr, fylgdu í kjöl­farið.

[adspot]

Grímu­skyldan er enn við lýði, rúmu ári síðar, en nú líður hún senn undir lok. Líkt og segir í frétt norska rík­is­út­varps­ins um málið: Nú getur þú flogið á ný án móðu á gler­aug­unum þínum.

„Við hlökkum til að geta tekið á móti nýjum og gömlum far­þegum okkar með stóru brosi á vör – án grímunnar. Velkomin um borð,“ segir Silje Brand­voll, upp­lýs­inga­full­trúi Widerø.

Engar aðgerðir og engin krafa um grímur um borð

Öllum sótt­varna­að­gerðum var aflétt í Noregi 25. sept­em­ber og því er þess ekki lengur kraf­ist af yfir­völdum að far­þegar inn­an­lands beri grímur. Það er að sögn Brand­voll, grund­vallar breytan sem varð til þess að ákvörðun um aflétt­ingu grímu­skyld­unnar var tekin af norsku flug­fé­lög­unum.

Eins og áður segir nær aflétt­ingin til inn­an­lands­flugs og flug­ferða innan Skand­in­avíu. Enn er far­þegum skylt að vera með grímu í flugi til Færeyja, Spánar og Bret­lands, svo dæmi séu tekin. Brandwoll segir það helg­ast af reglum á þeim áfanga­stöðum sem flogið er til. Séu þar í gildi sótt­varna­að­gerðir sem skylda fólk við ákveðnar aðstæður að hylja nef sitt og munn í var­úð­ar­skyni vegna far­ald­urs­ins þurfi far­þegar að hlýta því.

Enn skylt að bera grímur á flugvöllum

Tals­maður Norwegian bendir á að enn geti grímu­skylda átt við á flug­völlum og það þurfi far­þegar áfram að hafa í huga. Þannig er t.d. enn grímu­skylda á Gardermoen, stærsta flug­velli Noregs.

Enn er grímu­skylda í inn­an­lands­flugi á Íslandi sam­kvæmt nýj­ustu reglu­gerð yfir­valda sem og á öllum öðrum stöðum þar sem ekki er unnt að tryggja 1 metra nálægð­ar­mörk með minni­háttar und­an­tekn­ingum.

Á vef Icelandair stendur að allir verði að setja upp and­lits­grímur fyrir flug Icelandair, bæði far­þegar og áhöfn. „Nauð­syn­legt er að hafa grímuna á sér frá því að gengið er um borð og þar til gengið er frá borði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár