Brá sér í gervi grísks heimspekings

Elsa Björg Magn­ús­dóttir lenti í lær­dóms­ríkum sam­tölum um ham­ingj­una og til­gang lífs­ins í gjörn­ingi.

Eitt af því sem hefur haft tölu­verð áhrif á mitt líf og mín við­horf er þegar ég brá mér í hlut­verk Sofíu heim­spek­ings hér á menn­ing­arnótt í miðbæ Reykja­vík­ur­borgar.

Ég bauð fólki að koma inn í tjald í einka­við­tal við Sofíu, heim­spek­ing frá Grikk­landi. Það reynd­ist mun skemmti­legra en ég ímynd­aði mér að það gæti orðið. Sér­stak­lega vegna þess að hóp­ur­inn sem vald­ist inn í tjald Sofíu var gríð­ar­lega ólíkur og það var hrika­lega mikið álag að ná til allra. 

Þetta var kannski korter í mesta lagi með hverjum og einum. Alla þyrsti þá í að tala við heim­spek­ing, allir voru fullir af spurn­ingum og alla lang­aði að læra eitt­hvað nýtt, fá ein­hverja við­bót við sitt líf.

Það var svaka­lega gaman en brjál­æð­is­lega mikil áskorun. Á svona stuttum tíma átti ég, liggur við, að segja fólki hver til­gangur lífs­ins er og allir vildu mis­mun­andi svar.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár