Hvað varð um apabóluna?

Google leit­ar­vélin fann nán­ast engar fréttir í maí um apa­bólu og spurði hvort við­kom­andi væri kannski að leita að apar­ólu? Það hefur sann­ar­lega breyst, apa­bólan er um allt inter­netið en far­aldur hennar í raun­heimum er að dvína.

Samtök hinsegin fólks í Mexíkó mótmælti í sumar seinum viðbrögðum yfirvalda í landinu að senda út skýr skilaboð til áhættuhópa. Þau gagnrýndu einnig að bóluefni kom seint og um síðir til Mexíkó.
Samtök hinsegin fólks í Mexíkó mót­mælti í sumar seinum við­brögðum yfir­valda í land­inu að senda út skýr skila­boð til áhættu­hópa. Þau gagn­rýndu einnig að bólu­efni kom seint og um síðir til Mexíkó. Mynd: EPA

Allt frá því að apa­bóla fór skyndi­lega að grein­ast í auknum mæli utan Afríku í maí fluttu fjöl­miðlar, íslenskir sem erlendir, hverja frétt­ina á fætur annarri um útbreiðsl­una. Talað var um far­aldur, að sjúk­dóm­ur­inn væri eitt­hvað „sem allir ættu að hafa áhyggjur af“ og að heil­brigð­is­yf­ir­völd á vest­ur­löndum væru ugg­andi.

En svo hefur allt (að mestu) fallið í dúna­logn og lítið bólar orðið á hinu furðu­lega orði „apa­bólu“ (sem leit­ar­vélin Google vildi leið­rétta í „apar­ólu“ í byrjun far­ald­urs­ins) í fréttum. Það á sér skýr­ingar, sann­ar­lega, og það nokkuð jákvæðar.

[adspot]

Apabóla er veiru­sýk­ing sem berst frá dýrum til manna, rétt eins og flestir smit­sjúk­dómar. Ein­kennin eru svipuð og hjá bólu­sótt­ar­sjúk­lingum, en þó ekki eins slæm. Sjúk­dóm­ur­inn var þar til á þessu ári algengastur í Mið- og Vestur-Afríku, oft í nágrenni regn­skóga, en hefur orðið vart í vax­andi mæli í þétt­býli.

Frá því að far­ald­ur­inn hóf að breið­ast út í Evrópu og Norður-Ameríku í vor hafa rúm­lega 68 þús­und til­felli af sjúk­dómnum greinst, segir Guðrún Aspelund sótt­varna­læknir við Kjarnann. Um 20 þús­und til­felli hafa greinst í 29 löndum Evrópu „en grein­ingum hefur farið fækk­andi síðan í lok júlí í Evrópu og einnig í Banda­ríkj­unum,“ segir hún.

[links]Fyrsta til­fellið greind­ist hér á landi í byrjun júní. Sam­an­lagt hafa síðan þá sextán manns greinst. Nýjasta til­fellið greind­ist fyrir um þremur vikum. „Það er enn hætta á frek­ari útbreiðslu í áhættu­hópum en lítil hætta á almennri útbreiðslu,“ segir sótt­varna­læknir.

Umtals­vert stór hluti til­fella hefur greinst hjá körlum sem stunda kyn­líf með körlum og þá þeim sem skipta oft um ból­fé­laga. Þótt sjúk­dóm­ur­inn sé alvar­legur er hann hvorki bráðsmit­andi né mjög lífs­hættu­legur. Í frétta­skýr­ingu New York Times frá því í byrjun októ­ber kom fram að 28 dauðs­föll hafi orðið meðal tug­þús­unda smit­aðra.

Í sömu grein er rakið hvað varð til þess að far­aldur sem var á allra vörum fyrir nokkrum vikum hefur dvínað mjög – að nýgrein­ingum í Banda­ríkj­unum hafi til að mynda fækkað um 85 pró­sent frá því að þær voru flestar í byrjun ágúst.

Bólusetningar

Bóluefni er til sem gagn­ast gegn apa­bólu­smiti og þrátt fyrir brös­uga byrjun í bólu­setn­ingum, m.a. í Banda­ríkj­unum, er talið að hún hafi gert sitt til að hægja á útbreiðsl­unni.

Skilaboðin komust til skila

Fólk í áhættu­hópum tók var­úð­ar­orð heil­brigð­is­yf­ir­valda alvar­lega. Það dró úr úr fjölda ból­fé­laga sinna, dró úr fjölda skyndikynna og kyn­lífs með ókunn­ugum. Þannig axl­aði fólk sína ábyrgð á því að draga úr hættu á útbreiðslu veirunnar sem veldur apa­bólu.

Veiran dó út

Veiran sem veldur apa­bólu smit­ast fyrst og fremst með lík­ams­vessum í mjög nánum sam­skiptum fólks. Hún smit­ast ekki, eða minnsta kosti mjög sjaldan, með lofti og úða líkt og kór­ónu­veirur til dæmis. Þess vegna á hún erfitt upp­dráttar, ef svo má segja. Hún getur ekki stokkið frá einum lík­ama í annan, líkt og hin bráðsmit­andi CoV-SARS-2 veira sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum. Risa­vaxin bylgja smita var því alltaf ansi ólík­leg, sér­stak­lega í ljósi þess sem að framan greinir: Bólu­setn­ing virk­aði vel og fólk í áhættu­hópum greip til sinna ráða til að verj­ast smiti.

Vís­inda­menn telja að reynsla okkar af heims­far­aldri COVID-19 hafi líka gert sitt gagn. Fólk er orðið fær­ara í að með­taka skila­boð um áhættu á ákveðnum sjúk­dómum.

Óttuðust smánun áhættuhópa

Það sem hins vegar gerð­ist var að yfir­völd víða hik­uðu við að útskýra nákvæm­lega fyrir almenn­ingi hverjir væru í mestri hættu á að fá apa­bólu. Það er að segja að greina frá því að flestir þeir sem smit­uð­ust í upp­hafi voru karl­menn sem áttu kyn­mök við karla, og þá eðli máls­ins sam­kvæmt voru þeir sem skiptu oft um ból­fé­laga mest útsettir fyrir veirunni.

Það er skilj­an­legt að yfir­völd hafi á stundum hikað við að setja slíkar upp­lýs­ingar fram. Reynslan í HIV-far­aldr­inum á átt­unda og níunda ára­tug síð­ustu aldar var sú að slíkt varð til þess að for­dómar í garð sam­kyn­hneigðra og tví­kyn­hneigðra karl­manna stig­mögn­uð­ust. Á þessu vildu yfir­völd nú vara sig og stigu því var­lega til jarðar. Þau og stjórn­völd almennt báru líka að mörgu leyti ábyrgð á þeim for­dómum sem spruttu upp í far­aldri HIV. For­dæm­ingin var oft aug­ljós eða sett fram undir rós og við þekkjum öll afleið­ing­arnar.

Og eins og heil­brigð­is­yf­ir­völd í New York-borg sögðu í upp­hafi apa­bólu­far­ald­urs­ins þá hafa sam­kyn­hneigðir fengið alltof stóran skammt af því að kyn­líf þeirra sé sett undir smá­sjána. Þess vegna vildu þau ekki fyrst í stað gefa út skila­boð um að það myndi gagn­ast að þessir hópar tak­mörk­uðu fjölda ból­fé­laga sinna.

Heil­brigð­is­yf­ir­völd á lands­vísu og á alþjóða­vett­vangi sáu þó er líða tók á far­ald­ur­inn að skila­boðin þyrftu að vera alveg skýr. Að þeir sem væru í mestri áhættu á að smit­ast þyrftu að fá að vita það. Það væri þeirra réttur.

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin reið á vaðið og gaf það út er langt var liðið á júlí­mánuð að karl­menn sem hefðu kyn­mök við karla ættu að taka það til skoð­unar að fækka ból­fé­lögum sínum. Banda­ríska smit­sjúk­dóma­stofn­unin, CDC, tók í kjöl­farið undir þessi var­úð­ar­orð og það gerðu heil­brigð­is­yf­ir­völd í New York-borg að end­ingu líka. Áhættu­hópar voru svo einnig hvattir sér­stak­lega til að láta bólu­setja sig.

Og þá fóru hlut­irnir að ger­ast. Far­ald­ur­inn náði hámarki í byrjun ágúst en hefur síðan þá verið á hröðu und­an­haldi.

En ábyrgð okkar, allra þegna sam­fé­laga heims­ins, er mikil. Heil­brigð­is­yf­ir­völd verða að geta sent út skýr skila­boð um áhættu­hópa án þess að for­dómar og smánun þeirra sem þeim til­heyra fari að grass­era. Fræðsla og stuðn­ingur eru þar lyk­il­at­riði.

[adspot]

UNAIDS, Alnæm­is­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna, sagði í yfir­lýs­ingu í sumar að mik­il­vægt væri að læra af reynslu bar­átt­unnar gegn alnæmi. Þar hafi smánun og ásak­anir gegn ákveðnum hópum grafið undan við­brögðum á sviði lýð­heilsu.

„Að leita blóra­böggla og smána grefur undan trausti og get­unni til að bregð­ast við far­sótt af þessu tagi “ sagði Matthew Kavanagh, starf­andi vara­for­stjóri UNAIDS. „Reynslan sýnir okkur að smán­un­ar­orð­ræða getur ótrú­lega hratt hindrað við­brögð, sem byggj­ast á stað­reyndum. Slíkt vekur ótta, fælir fólk frá heilsu­gæslu, og kemur í veg fyrir að til­felli séu greind, auk þess að ýta undir til­gangs­lausar refs­ingar.“

Hegðun okkar

Apa­bólu­far­ald­ur­inn hefur sýnt okkur rétt eins og far­aldur COVID að mann­leg hegðun er stærsta breytan þegar kemur að útbreiðslu. Við sáum það ber­sýni­lega í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum að hverskyns sam­komur og mann­fagn­aðir, hópa­myndun eins og það var stundum kallað, eru óska­staða veira sem smit­ast í nánum sam­skiptum fólks.

Þannig gæti apa­bólan aftur náð vopnum sínum ef ekki er gætt að við­eig­andi smit­vörnum. Bólu­setn­ing er mjög áhrifa­rík, sögð veita 85 pró­sent vörn. Henni þarf að beita af krafti gegn apa­bólunni en ekki má þá gleyma að þótt hún hafi fyrst komið af alvöru til tals á Vest­ur­löndum í maí hefur hún verið land­læg í sumum Afr­íku­ríkjum í ára­tugi og valdið þar mann­tjóni. Bólu­setn­ingar á þeim svæðum eru því enn einn lyk­ill­inn að því að halda veirunni í skefjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

apabóla

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár