Fimm staðreyndir um apabólu

Apabóla er orð sem Íslend­ingar höfðu fæstir heyrt þar til nýverið er til­felli af þessum sjúk­dómi hófu að grein­ast í Evrópu og Norður-Ameríku. Sjúk­dóm­ur­inn er hins vegar vel þekktur í fátæk­ustu ríkjum heims þar sem þús­undir sýkj­ast árlega.

Myndir af börnum í Austur-Kongó með alvarleg einkenni apabólu.
Myndir af börnum í Austur-Kongó með alvar­leg ein­kenni apa­bólu. Mynd: Smitsjúkdómastofnun Bandaríkjanna

Sýkingar af apa­bólu hafa greinst í Kanada og Evrópu síð­ustu daga og að minnsta kosti eitt til­felli hefur greinst í Banda­ríkj­unum, það fyrsta á þessu ári. Apabóla er veiru­sjúk­dómur sem er land­lægur í sumum hlutum Afríku en líkt og aðrir smit­sjúk­dómar stingur hún sér reglu­lega niður í öðrum heims­álfum. Í þetta sinn er fólk sem ekki hefur dvalið í Afríku að sýkj­ast sem vís­inda­mönnum þykir nokkuð óvenju­legt og spurn­ingar hafa vaknað um smit­leið­irnar.

Í það minnsta níu til­felli hafa greinst í Bret­landi og aðeins einn smit­aðra hafði verið í Afríku nýverið, nánar til­tekið í Nígeríu. Þrír hinna smit­uðu búa í sama hús­næði. Á Spáni er grunur um að minnsta kosti 23 til­felli apa­bólunnar og í Portúgal er grunur um álíka fjölda. Í Kanada hafa fimm til­felli verið stað­fest og grunur er um fimmtán til við­bótar, öll meðal fólks sem býr í Montreal. Þá hafa sýk­ingar einnig verið greindar í Svíþjóð og á Ítalíu.

Hér að neðan fara fimm stað­reyndir um þennan dul­ar­fulla sjúk­dóm.

Aparnir á rannsóknarstofunni

Apa­bólu­veiran er skyld veirunni sem veldur bólu­sótt, bráðsmit­andi og lífs­hættu­legum sjúk­dómi sem talið er að tek­ist hafi að útrýma á níunda ára­tug síð­ustu aldar. Apabóla er hins vegar hættu­minni en bólu­sótt og ekki talin jafn smit­andi.

Veiran finnst í villtum dýrum, bæði nag­dýrum og prímötum og getur smit­ast í fólk. Apabóla er útbreidd­ust í Mið- og Vestur-Afríku og þá helst meðal fólks sem veiðir villt dýr sér til matar eða með­höndlar kjöt slíkra dýra. Vís­inda­menn upp­götv­uðu sjúk­dóm­inn fyrst árið 1958 er hópsmit kom upp meðal apa á rann­sókn­ar­stofu. Og þaðan er auð­vitað nafnið komið: Apabóla. Fyrsta til­fellið í manni greind­ist árið 1970, raunar níu ára gömlu barni, í Austur-Kongó.

Einkennin eru nokkuð dæmigerð

Sjúk­dóms­ein­kenni apa­bólu eru mild­ari en af bólu­sótt. Flestir sjúk­lingar fá flensu­lík ein­kenni; hita, bein­verki, hroll og verða slappir. Eftir nokkra daga geta sjúk­lingar fengið útbrot, fyrst í and­lit og jafn­vel inni í lóf­ana. Þessi útbrot geta breiðst út um allan lík­amann, bólgnað og í þau kom­ist sýk­ing. Ein­kennin eru almennt talin gera vart við sig um fimm dögum eftir smit. Flestir ná sér af veik­ind­unum á 2-4 vikum án þess að þurfa á sjúkra­húsinn­lögn að halda. Talið er að ein­kennin séu almennt verri hjá börnum en full­orðnum.

Apabóla getur verið hættu­leg og jafn­vel ban­væn ef hún er ekki með­höndluð en erfitt er að segja nákvæm­lega til um dán­ar­tíðni, hún gæti verið allt frá 1 pró­senti upp í 15 pró­sent.

Bólu­setn­ing gegn bólu­sótt hefur virkað vel gegn apa­bólu. Smit­sjúk­dóma­stofnun Evrópu hvetur heil­brigð­is­fyri­völd í álf­unni til að setja fólk sem grein­ist með apa­bólu­veiruna í ein­angrun og bjóða fólki sem það hefur umgeng­ist bólu­setn­ingu.

Apa­bólu­veiran hefur hingað til ekki valdið útbreiddum far­öldrum líkt og veiran sem veldur COVID-19, svo dæmi sé tekið.

Þúsundir tilfella á ári

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin telur að árlega sýk­ist þús­undir manna af apa­bólu, fyrst og fremst í um tíu Afr­íku­löndum. Flestir veikj­ast í Austur-Kongó en þar grein­ast um 6.000 til­felli á ári. Nígería kemur þar á eftir.

Grein­ingu smit­sjúk­dóma í flestum Afr­íku­ríkjum er veru­lega ábóta­vant enda heil­brigð­is­kerfi þess­ara fátæk­ustu landa ver­aldar mörg hver mjög veik­byggð, fjársvelt og und­ir­mönnuð á mæli­kvarða sem við Vest­ur­landa­búar getum vart ímyndað okkur. Þess vegna er mjög lík­legt, nán­ast víst, að apa­bóla sé mun útbreidd­ari en opin­berar tölur segja til um.

Flestir þeir sem grein­ast utan Afríku hafa dvalið þar og verið í snert­ingu við dýr á þeim svæðum þar sem sjúk­dóm­ur­inn er útbreiddur.

Nokkuð stór hóp­sýk­ing varð í Banda­ríkj­unum árið 2003. 47 manns greindust með apa­bólu og talið er að fólkið hafi smit­ast af veirunni úr sléttu­hundum sem haldnir voru sem gælu­dýr. Hund­arnir höfðu verið í húsi í nálægð við inn­flutt spen­dýr frá Gana.

Smitleiðirnar ekki að fullu kunnar

Dropa­smit í augu, nef og munn hefur hingað til verið talin algeng­asta smit­leiðin en einnig getur veiran kom­ist inn í lík­amann t.d. í gegnum sár á húð. En í raun má segja að smit­leið­irnar séu ekki kunnar að fullu.

Vís­inda­menn hafa enn ekki fundið greini­leg tengsl við Afríku í öllum þeim til­fellum sem upp hafa komið í Evrópu og Kanada síð­ustu daga. Heil­brigð­is­stofnun Bret­lands seg­ist svo ekki heldur hafa fundið tengsl milli allra til­fell­anna sem þar hafa greinst og leiðir líkur að því að smit­leið­irnar séu nokkrar.

Grunur er um að í ein­hverjum til­vikum hafi veiran smit­ast með kyn­mökum en vís­inda­menn eru ragir við að full­yrða nokkuð um það að svo stöddu. Sú smit­leið hefur hingað til ekki verið þekkt þegar kemur að veirunni sem veldur apa­bólu en hins vegar er talið að hún geti smit­ast með mik­illi nánd við sýkta.

AP-frétta­stofan hefur eftir veiru­fræð­ingi við Imerpial College í London að kyn­ferð­is­mök kalli vissu­lega á nánd milli fólks sem auki þar með líkur á smiti og undir þetta taka fleiri veiru­fræð­ingar. Því þurfi ekki að vera um ein­hverja nýja smit­leið að ræða, veiran finn­ist í lík­ams­vessum hvers konar og geti því, tækni­lega séð, smit­ast með kyn­mökum, eða með dropa­smiti úr önd­un­ar­færum við þær aðstæður.

Útbreiðslan gæti verið miklu meiri

Þar sem til­felli hafa verið að grein­ast í nokkrum Evr­ópu­löndum sem og í Kanada og Banda­ríkj­unum á svip­uðum tíma telja vís­inda­menn að útbreiðsla apa­bólunnar gæti verið mun víð­tæk­ari. „Okkar til­finn­ing er sú að eng­inn hafi allar þær stað­reyndir sem til þarf svo hægt sé að full­yrða nokkuð um útbreiðsl­una núna og hversu mikil hún gæti orðið,“ hefur vís­inda­tíma­ritið Nature eftir Jennifer McQuiston sem starfar hjá Smit­sjúk­dóma­stofnun Banda­ríkj­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár