Fjöldi undirskrifta hjá Orkunni okkar langt frá því að standast samanburð

Und­ir­skrifta­safn­anir eru leið sem oft er notuð til að reyna að sýna fram á þjóð­ar­vilja í málum. Það sást í Icesave, þegar umsókn að ESB var dregin til baka, vegna veru flug­vallar í Vatns­mýr­inni.

Orkan okkar, félags­skapur sem barist hefur gegn sam­þykkt þriðja orku­pakk­ans, afhenti vara­for­seta Alþingis í gær áskorun um að hafna þriðja orku­pakk­anum. Undir hana höfðu um 16.814 manns skrifað. Orku­pakk­inn var samt sem áður sam­þykktur með yfir­gnæf­andi meiri­hluta atkvæða þing­manna. Einungis fimmt­ungur þeirra greiddi atkvæði gegn pakk­anum. Söfnun und­ir­skrifta hefur staðið yfir frá því 7. apríl.

Næsta skref sam­tak­anna er að skora á for­seta Íslands að stað­festa ekki upp­töku þriðja orku­pakk­ans í EES-samn­ing­inn nema að sam­eig­in­lega EES-nefndin hafi veitt Íslandi und­an­þágu frá inn­leið­ingu eða að íslensk þjóð hafi í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu fall­ist á að und­ir­gang­ast þær skuld­bind­ingar sem þriðji orku­pakk­inn felur í sér.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem und­ir­skriftum er safnað vegna auð­linda­mála. Í jan­úar 2011 var til að mynda var blásið til slíkrar gegn sölu á HS Orku til kanadíska fyr­ir­tæk­is­ins Magma. Þegar hún var yfir­staðin höfðu rúm­lega 47 þús­und manns skrifað und­ir. Á þeim tíma voru það rétt um 15 pró­sent þjóð­ar­innar. Frá byrjun árs 2011 hefur íbúum á Íslandi fjölgað um 41.310. Sá fjöldi sem skrif­aði undir áskorun Orkunnar okkar eru því 4,7 pró­sent þjóð­ar­innar. Ef horft er ein­ungis á þá lands­menn sem eru 18 ára og eldri, og gert ráð fyrir því að allir sem skrifa undir list­anna séu á þeim aldri, var hlut­fallið í HS Orku söfn­un­inni tæp­lega 19 pró­sent en í und­ir­skrifta­söfnun Orkunnar okkar um sex pró­sent.

Árið 2015 var for­seti Íslands líka hvattur til þess að koma í veg fyrir var­an­lega kvóta­setn­ingu á mak­ríl á meðan að auð­lind­ar­á­kvæði væri ekki í stjórn­ar­skrá. Tæplega 52 þús­und manns skrif­uðu undir þá áskorun.

Þegar saga áskor­ana, þar sem stjórn­mála­menn voru hvattir til þess að hafna ýmsum málum, er skoðuð þá á und­ir­skrifta­söfnun Orkunnar okkar ansi langt i land með að stand­ast sam­an­burð.

Málskotsréttur en óvissa um virkni

Þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur eru sögu­lega ekki stór hluti af lýð­ræð­is­hefð Íslend­inga. Líkt og flest allar aðrar vest­rænar þjóðir völdu Íslend­ingar að setja á fót full­trúa­lýð­ræði þar sem kjörnum full­trúum var falin ákvörð­un­ar­taka fyrir hönd þjóð­ar­inn­ar. Í kjöl­far upp­lýs­inga­bylt­ing­ar­innar sem varð sam­hliða útbreiðslu inter­nets­ins jókst aðgengi almennra borg­ara að upp­lýs­ingum og geta þeirra til að taka upp­lýstar og vel ígrund­aðar ákvarð­anir sömu­leið­is.

Í stjórn­ar­skrá Íslands er ákvæði um mál­skots­rétt for­seta. Ákvæð­ið, sem oft hefur verið kall­aður örygg­is­vent­ill þjóð­ar­vilj­ans, virkar þannig að sitj­andi for­seti getur synjað lögum um und­ir­skrift og vísað þeim þannig til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Fyrstu 60 árin eftir sjálf­stæði Íslend­inga var mál­skots­rétt­ur­inn ónýtt­ur. Í raun má segja að ein­ungis einu sinni á því tíma­bili hafi mynd­ast mik­ill þrýst­ingur á sitj­andi for­seta að beita hon­um.

Þrýst á for­seta vegna EES

Árið 1992 tók stjórn­ar­and­staðan á Alþingi sig saman og lagði fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að aðild Íslands að Evr­ópska efna­hags­svæð­inu (EES) yrði borin undir þjóð­ar­at­kvæði. Flutn­ings­menn til­lög­unar voru Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir, Stein­grímur Her­manns­son, Ólafur Ragnar Gríms­son, Kristín Ein­ars­dótt­ir, Páll Pét­urs­son og Ragnar Arn­alds.

Sum­arið áður, 1991, hafði verið hrint af stað und­ir­skrifta­söfnun á lands­vísu gegn aðild að EES. Þegar und­ir­skrift­irnar voru afhentar þáver­andi for­seta Alþing­is, Sal­ome Þor­kels­dótt­ur, rúmu ári síðar höfðu safn­ast um 34 þús­und. Þetta var fyrir tíma inter­nets­ins og því voru allar und­ir­skrift­irnar hand­skrif­að­ar. Þær breyttu því þó ekki að þingið sam­þykkti aðild­ina og snér­ust and­ófs­menn hennar sér að þáver­andi for­seta Íslands, Vig­dísi Finn­boga­dótt­ur. Eftir umhugs­un­ar­frest ákvað Vig­dís að beita ekki mál­skots­rétt­in­um. Í grein eftir Baldur Þór­halls­son, sem birt­ist í bók­inni „Evr­ópu­stefna íslenskra stjórn­valda: Stefnu­mót­un, átök og afleið­ing­ar“, kom fram að Vig­dís taldi sig hafa átt gríð­ar­lega erfitt með að fara gegn þjóð­kjörnu þingi.

Allt breyt­ist með Ólafi Ragn­ari

Árið 1996 var Ólafur Ragnar Gríms­son kjör­inn for­seti. Á svip­uðum tíma var net­notkun að verða almenn og sam­hliða varð auð­veld­ara fyrir fólk sem hafði sam­eig­in­lega skoðun á ákveðnum málum að ná saman og mynda fylk­ing­ar. Í maí 2004 reyndi í fyrsta sinn af alvöru á hvort Ólafur Ragnar myndi nota mál­skots­rétt­inn. Þá safn­aði félags­skapur sem kall­aði sig Fjöl­miðla­sam­bandið 31.752 und­ir­skriftum á tólf dög­um. Hóp­ur­inn vildi að Ólafur Ragnar myndi neita að und­ir­rita lög um fjöl­miðla sem Alþingi hafði skömmu áður sam­þykkt, en þau tak­mörk­uðu eign­ar­hald á fjöl­miðlum þannig að eng­inn mætti eiga meira en fjórð­ungs­hlut í slíkum rekstri.

Ólafur Ragnar Grímsson var oft í sviðsljósinu á meðan hann gegndi forsetaembættinu. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Ólafur Ragnar Grímsson var oft í sviðs­ljós­inu á meðan hann gegndi for­seta­emb­ætt­inu. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Annan dag júní­mán­aðar boð­aði for­set­inn til blaða­manna­fundar á Bessa­stöðum og til­kynnti að hann hefði ákveðið að stað­festa ekki lög­in. Þar með var brotið blað í Íslands­sög­unni, enda í fyrsta sinn sem for­seti beitti synj­un­ar­valdi sínu.

Í yfir­lýs­ingu Ólafs Ragn­ars kom meðal fram að „því miður hefur skort á sam­hljóm­inn sem þarf að vera milli þings og þjóðar í svo mik­il­vægu máli. Fjöl­miðlar eru sá horn­steinn í lýð­ræð­is­skipan og menn­ingu okkar Íslend­inga að ekki er far­sælt að var­an­lega verði djúp gjá milli þing­vilja og þjóð­ar­vilja. Slíka gjá þarf að brú­a“.

Rík­is­stjórn Dav­íðs Odds­sonar dró lögin síðar til baka og lagði fram ný. Með því var komið í veg fyrir að málið færi í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Samdráttur í aðdraganda hruns

Und­ir­skrifta­safn­anir um ákveðnar þjóð­fé­lags­breyt­ingar urðu ekk­ert sér­lega margar næstu árin, þrátt fyrir sett for­dæmi. Doði sem fylgdi ímynd­aðri vel­sæld útrás­ar­ár­anna spil­aði þar stórt hlut­verk. Und­ir­liggj­andi var til­finn­ing um að Ísland væri bara hárs­breidd frá því að verða rík­asta og besta land í heimi.

Sú und­ir­skrifta­söfnun sem vakti mesta athygli á þessum tíma var áskorun á dag­blaðið DV að breyta rit­stjórn­ar­stefnu sinni sem hrint var af stað í jan­úar 2006. Undir hana skrif­uðu 32 þús­und Íslend­ingar á tveimur dög­um. Söfn­unin var sett í gang í kjöl­far þess að síðar dæmdur barn­a­níð­ingur svipti sig lífi eftir að DV hafði haft sam­band og greint honum frá vænt­an­legri umfjöllun. Sú umfjöllun hafði þó ekki verið birt þegar mað­ur­inn tók eigið líf. Und­ir­skrifta­söfn­unin leiddi til þess að þáver­andi rit­stjórar DV, Jónas Krist­jáns­son og Mik­ael Torfa­son, sögðu upp störf­um.

Hrunið hrinti af stað bylt­ingu

Eftir hrunið sem varð haustið 2008, bús­á­hald­ar­bylt­ing­una sem fylgdi og háværar kröfur um breytta stjórn­ar­hætti hafa und­ir­skrifta­safn­anir notið auk­inna vin­sælda sem tól til að reyna að þrýsta á breyt­ing­ar. Í raun varð algjör bylt­ing á notkun þeirra til að reyna að breyta þjóð­fé­lag­inu í eina eða aðra átt.

Strax í októ­ber 2008 var sett á fót söfnun með kröfu um þing­kosn­ing­ar. Á nokk­urra mán­aða tíma­bili skrif­uðu á sjö­unda þús­und manns undir hana. Kosn­ingar fóru síðan fram vorið 2009 og skömmu síðar var til­kynnt um að Ísland hefði náð sam­komu­lagi í hinni svoköll­uðu Icesave-­deilu.

Rík­is­á­byrgð á lögum þess efnis var sam­þykkt um haustið og Ólafur Ragnar skrif­aði undir þau í byrjun sept­em­ber. Þá höfðu um tíu þús­und manns þegar skrifað undir áskorun til hans um að gera það ekki. Málið hlaut þó ekki braut­ar­gengi og sam­komu­lag, sem í dag­legu tali er oft­ast kallað Icesave II, var sam­þykkt á Alþingi í lok árs 2009.

Þann 5. jan­úar 2010 beitti Ólafur Ragnar mál­skots­rétt­inum í annað sinn og synj­aði lög­unum stað­fest­ing­ar. Í rök­stuðn­ingi fyrir þeim gjörn­ingi vís­aði hann meðal ann­ars í að honum hafi verið afhentar und­ir­skriftir um 56 þús­und manns sem höfðu skorað á hann að taka þessa ákvörð­un. For­set­inn sagð­ist hafa látið fram­kvæma stikkprufur úr list­an­um, enda hafði komið fram gagn­rýni á að bæði Mikki mús og Andrés önd væru á hon­um. Í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni sem fylgdi á eft­ir, þeirri fyrstu í lýð­veld­is­sög­unni eftir beit­ingu mál­skots­réttar for­seta, höfn­uðu 93,2 pró­sent þeirra sem kusu samn­ingn­um.

Tæpu ári eftir að Icesave II var afgreitt náði ný samn­inga­nefnd undir for­ystu banda­ríska lög­manns­ins Lee Buchheit nýjum samn­ingi sem þótti mun álit­legri. And­staðan í sam­fé­lag­inu gegn því að semja um Icesave, sama hversu góður samn­ingur lá á borð­inu, var þó áfram víð­tæk. Enn var hlaðið í und­ir­skrifta­söfnun og í þetta sinn söfn­uð­ust rúm­lega 37 þús­und und­ir­skrift­ir. For­set­inn neit­aði aftur að skrifa undir og bar fyrir sig að þjóðin hefði farið með lög­gjaf­ar­valdið í þessu máli ásamt Alþingi.

Spreng­ing á und­an­förnum tveimur árum

Á 2011-2012 fjölg­aði und­ir­skrifta­söfn­unum gríð­ar­lega. Í jan­úar 2011 var, líkt og áður sagði, blásið til slíkrar gegn sölu á HS Orku til kanadíska fyr­ir­tæk­is­ins Magma. Þegar hún var yfir­staðin höfðu rúm­lega 47 þús­und manns skrifað und­ir.

Skömmu síðar skráðu 41.525 sig í söfnun á vegum FÍB þar sem hug­myndum um vega­tolla á þjóð­vegi var mót­mælt. Á svip­uðum tíma skil­uðu Hags­muna­sam­tök heim­il­anna Alþingi inn 37.743 und­ir­skrift­um. Yfir­skrift þeirrar söfn­unar var: „Í nafni almanna­hags­muna krefj­umst við und­ir­rituð almennra og rétt­látra leið­rétt­inga á stökk­breyttum lánum heim­il­anna og afnáms verð­trygg­ing­ar“. Í apríl sama ár var reynt að hrinda af stað söfnun gegn nýjum fjöl­miðla­lög­um. Ein­ungis fjögur þús­und manns skrif­uðu undir hana áður en lögin voru sam­þykkt á Alþingi.

Þegar Jóni Gnarr, þáver­andi borg­ar­stjóra Reykja­vík­ur, voru afhentar und­ir­skriftir um að halda Reykja­vík­ur­flug­velli í Vatns­mýr­inni höfðu 69.802 manns skrifað und­ir. Sú und­ir­skrifta­söfn­un, sem fór fram undir nafn­inu „Hjartað í Vatns­mýr­inn­i“, var sú fjöl­menn­asta sem ráð­ist hefur verið í á Ísland­i á þeim tíma.

Í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna 2012 tók hópur manna sig saman og setti af stað und­ir­skrifta­söfnun til að skora á Ólaf Ragnar Gríms­son að bjóða sig fram aft­ur. Alls skrif­uðu 30.773 undir og Ólafur Ragnar gaf sig. Þegar hann til­kynnti um þessa afstöðu sína sagði hann í sam­tali við Morg­un­blaðið að „höfðað [hefði ver­ið] með mjög skýrum hætti til mín um það að ég geti nán­ast ekki leyft mér að að fara af vett­vangi við þessar aðstæð­ur“.

Því er ljóst að í þessu sam­hengi, þar sem verið var að skora á hann, voru rúm­lega 30 þús­und und­ir­skriftir stað­fest­ing á því að höfðað væri til for­set­ans með mjög skýrum hætti. Síðar á árinu var ráð­ist í und­ir­skrifta­söfnun til að hvetja Jóhönnu Sig­urð­ar­dótt­ur, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, til að biðj­ast lausnar fyrir ráðu­neyti sitt. Í byrjun júní það ár höfðu 9.556 manns ritað undir þá kröfu.

Öll met slegin

Á árinu 2013 fór fjöldi und­ir­skrifta­safn­anna síðan út fyrir allan þjófa­bálk. Stutt leit á net­inu sýndi að á því ári var hlaðið í und­ir­skrifta­söfnun um verndun Mývatns, gegn nið­ur­skurði fjár­fram­laga til LÍN (5.821) og með því að flytja Edward Snowden til Íslands (2.014). 
Þá eru ótaldar ýmsar safn­anir um að flýta hinum og þessum sam­göngu­fram­kvæmd­un­um, til stuðn­ings atvinnu­lausum (22), gegn því að íslenskum börnum yrði skilað til erlends for­ráða­for­eldris (2.391),til stuðn­ings Priyönku (1.060) og fyrir björgun Ing­ólfs­torgs og NASA (tæp­lega 18 þús­und). Síðar bætt­ist svo við áskorun á Vig­dísi Hauks­dóttur, þáver­andi for­mann fjár­laga­nefndar, um að segja af sér (3.448), eftir að hafa, að því er virt­ist, hótað að skerða fjár­fram­lög til RÚV vegna þess að frétta­flutn­ingur þess var henni ekki að skapi.

Undirskriftarsöfnun þar sem krafist var afsagnar Vigdísar Hauksdóttur náði ekki miklu flugi. Mynd: Anton Brink
Und­ir­skrift­ar­söfnun þar sem kraf­ist var afsagnar Vigdísar Hauks­dóttur náði ekki miklu flugi. Mynd: Anton Brink

Þrjár safn­anir sem ráð­ist var í á því ári vöktu mesta athygli og söfn­uðu flestum und­ir­skrift­um, þótt þær hafi á end­anum ekki skilað neinum til­finn­an­legum árangri. Sú fyrsta var söfnun SÁÁ vegna áskor­unar á stjórn­völd um að verja tíu pró­sent af áfeng­is­gjaldi til að byggja upp úrræði fyrir vers settu áfeng­is- og vímu­efna­sjúk­ling­anna og fleiri til­greind úrræði sem heyra undir sama mála­flokk. Í júní 2013 afhentu sam­tökin um 31 þús­und und­ir­skrift­ir.

Önnur var áskorun á for­seta Íslands um að synja lögum um breyt­ingar á veiði­leyfagjöldum um und­ir­skrift. Í júlí 2013 var for­set­anum afhentar 34.882 und­ir­skrift­ir vegna þessa. Það kom þó ekki í veg fyrir að hann skrif­aði undir lögin. Sam­stundis var sett í gang ný und­ir­skrifta­söfnun sem bar nafnið „Áskorun til for­seta Íslands um afsögn“ (1.668).

Þriðja var und­ir­skrifta­söfnun sem fram for á heima­síð­unni www.lending.is og snérist um að halda flug­vell­inum í Vatns­mýr­inni. Þegar Jóni Gnarr, þáver­andi borg­ar­stjóra Reykja­vík­ur, voru afhentar und­ir­skrift­irnar höfðu 69.802 manns skrifað und­ir. Sú und­ir­skrifta­söfn­un, sem fór fram undir nafn­inu „Hjartað í Vatns­mýr­inn­i“, var sú fjöl­menn­asta sem ráð­ist hafði verið í á Íslandi á þeim tíma.

Meiri þungi í söfn­unum

Næsti árin hægð­ist umtals­vert á und­ir­skrifta­söfn­un­ar­ofsa íslensku þjóð­ar­inn­ar. Þ.e. fjöldi und­ir­skrifta­safn­anna sem vöktu athygli hefur dreg­ist mjög sam­an.

Á árinu 2014 vakti í raun ein­ungis ein und­ir­skrifta­söfnun mikla athygli og náði að hrífa fjöld­ann með sér. Það var áskorun til stjórn­valda um að setja áfram­hald við­ræðna um Evr­ópu­sam­bands­að­ild í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, sem 53.555 manns skrif­uðu und­ir.

Ýmis­legt annað var reyndar reynt, án þess að það hafi náð miklu flugi. Ást­þór Magn­ús­son, fyrrum for­seta­fram­bjóð­andi, safn­aði til dæmis und­ir­skriftum um að krefj­ast afsagnar Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur sem þing­manns. Alls skrif­uðu 597 manns undir hana. Þá var reynt að fá íslensk stjórn­völd til að slíta stjórn­mála­sam­starfi við Ísra­el, en ein­ungis 6.916 skrif­uðu undir þá kröfu.

Árið 2015 var sett á fót áskorun til for­seta Íslands um að setja ráð­stöfun á fisk­veiði­auð­lind­inni til lengri tíma en eins árs í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu ætla að ná miklu flugi. Tilefnið var fyr­ir­liggj­andi frum­varp Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, um að ráð­stafa mak­ríl­kvóta til lengri tíma en eins árs án þess að komið væri í stjórn­ar­skrá ákvæði sem tryggði eign þjóð­ar­innar á auð­lind­inni og að hún fengi fullt gjald fyrir afnot hennar. Að­stand­endur átaks­ins voru Agnar K. Þor­steins­son, Bolli Héð­ins­son, Guð­rún Pét­urs­dótt­ir, Henný Hinz, Jón Sig­urðs­son, Jón Steins­son og Þor­kell Helga­son.

Þegar for­seta Íslands voru afhentar und­ir­skrift­irnar í júlí 2015 voru þær orðnar 53.571. Það reyndi þó ekki á synj­un­ar­vald for­set­ans. Málinu var frestað og varð ekki að lögum. Makríl var síðan kvóta­settur fyrr á þessu ári, 2019, með lögum. Það var gert þrátt fyrir að enn skorti á ákvæði í stjórn­ar­skrá sem segi til um þjóð­ar­eign yfir auð­lindum lands­ins.

Árið 2016 var hins vegar sett en eitt metið. Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ing­ar, stóð þá að und­ir­skrift­ar­söfnun um end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins með því að hvetja stjórn­völd til að verja ell­efu pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu til heil­brigð­is­kerf­is­ins. Á þeim tíma var varið um það bil 8,7 pró­sentum í mála­flokk­inn.

Þegar Kári afhenti Sig­urði Inga Jóhanns­syni, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, und­ir­skrifta­list­ann í lok apríl 2016 höfðu rúm­lega 85 þús­und skrifað undir hann. Það gerði und­ir­skrifta­söfnun Kára að stærstu und­ir­skrift­ar­söfnun Íslands­sög­unnar.

Ákvarð­anir teknar með und­ir­skrifta­listum

Þann 20. októ­ber 2012 var kosið um hvort ýmsar til­lögur stjórn­laga­ráðs ættu að verða lagðar til grund­vallar frum­varpi að nýrri stjórn­ar­skrá. Ein spurn­ing­anna sem þar var undir var svona: „Vilt þú að í nýrri stjórn­ar­skrá verði ákvæði um að til­tekið hlut­fall kosn­ing­ar­bærra manna geti kraf­ist þess að mál fari í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu?“. Tæp­lega 2/3 þeirra 72.523 manna sem svör­uðu þess­ari spurn­ingu gerðu það ját­andi. Í henni var ekki til­tekið hvaða hlut­fall ætti að vera um að ræða.

Það var hins vegar gert í til­lögum stjórn­laga­ráðs. Í 65. grein þess frum­varps sem ráðið vildi leggja fram er fjallað um mál­skots­rétt þjóð­ar­inn­ar.

Þar stend­ur: „Tíu af hundraði kjós­enda geta kraf­ist þjóð­ar­at­kvæðis um lög sem Alþingi hefur sam­þykkt. Kröf­una ber að leggja fram innan þriggja mán­aða frá sam­þykkt lag­anna. Lögin falla úr gildi, ef kjós­endur hafna þeim, en ann­ars halda þau gildi sínu. Alþingi getur þó ákveðið að fella lögin úr gildi áður en til þjóð­ar­at­kvæðis kem­ur“.

Kári Stefánsson stóð fyrir stærstu undirskriftarsöfnun Íslandssögunnar.
Kári Stef­áns­son stóð fyrir stærstu und­ir­skrift­ar­söfnun Íslands­sög­unnar.

Í Alþing­is­kosn­ing­unum í apríl 2013 voru kosn­inga­bærir Íslend­ingar um 238 þús­und tals­ins. Það hefði því þurft um 23.800 manns til að knýja á um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu ef til­lögur stjórn­laga­ráðs hefðu orðið að veru­leika. Í dag er sú tala lík­ast til í kringum 27.000 manns og und­ir­skrift­ar­söfnun Orkunnar okkar því ansi langt frá því að upp­fylla það skil­yrði.

Ef þetta við­mið væri í stjórn­ar­skrá hefði hins vegar verið nóg að gera hjá íslenskum almenn­ingi að kjósa yfir sig þjoð­fé­lags­breyt­ingar. Að kjósa um eign­ar­hald á fyr­ir­tækj­um. Um flug­velli og allskyns mál sem ann­að­hvort skuld­binda rík­is­sjóðs til fjár­út­láta eða skikka hann til að gefa frá sér tekj­ur. Frá árs­byrjun 2010 hefði íslenskur almenn­ingur kosið um Icesave II, Icesave III, sölu á HS Orku, vega­tolla, almenna skulda­nið­ur­fell­ingu og afnám verð­trygg­ing­ar, um að skuld­binda rík­is­sjóð til að eyða hluta áfeng­is­gjalds til til­greindra verk­efna, um breyt­ingar á veiði­leyfagjaldi, um fram­tíð flug­vallar í Vatns­mýr­inni, um að áfram­hald við­ræðna um aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu, um ráð­stöfun á fisk­veiði­auð­lind­inni til lengri tíma en eins árs og um hversu mikið af pen­ingum ættu að renna til heil­brigð­is­kerf­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið undanfarið ár