Friðarsinninn Trump?

Donald Trump teflir því nú fram í kosn­inga­bar­áttu sinni að hann hafi náð miklum árangri í frið­ar­málum. Þegar nánar er að gáð kemur í ljós að raun­veru­leik­inn er í algerri and­stöðu við þá mynd sem hann vill mála upp.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur alið á sundrungu og kynt undir ófriði á þeim tæpu fjórum árum sem liðin eru frá því að hann tók við embætti sínu.
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur alið á sundr­ungu og kynt undir ófriði á þeim tæpu fjórum árum sem liðin eru frá því að hann tók við emb­ætti sínu. Mynd: EPA

Nú líður að for­seta­kosn­ingum í Banda­ríkj­unum og eitt af því sem Donald Trump hefur reynt að halda á lofti í kosn­inga­bar­átt­unni er hversu miklum árangri hann hefur náð í frið­ar­málum. Hann seg­ist m.a. hafa tek­ist að leysa ýmis erfið mál í Mið-Aust­ur­löndum sem for­verum hans hafi mis­tek­ist og stærir sig af frið­ar­sam­komu­lögum sem marka eigi ný tíma­mót. Hann seg­ist geta tryggt frið með því að sýna styrk, sem vissu­lega er hægt og hefur verið gert. Þegar málið er skoðað kemur hins vegar í ljós að hann virð­ist ekki fær um slíkt og raun­veru­leik­inn er í algerri and­stöðu við þá mynd sem hann vill mála upp.

Banda­ríkin hafa lengi hlut­ast til um mál ann­arra ríkja og á stundum setið undir harðri gagn­rýni vegna afskipta, í versta falli meintra ólög­legra inn­rása og stríðs­rekstrar. Eftir mis­jafnan árangur í Afganistan, Írak og víðar reyndu banda­rísk stjórn­völd undir stjórn Baracks Obama að beygja af leið og forð­ast slíkt eins og kostur væri. Þau vildu m.a. ekki fara fyrir inn­rás í Líbýu þó Banda­ríkja­her neydd­ist á end­anum til að taka yfir stjórn aðgerða.

Jafn­framt var farið að not­ast meira við svo­kall­aða dróna í stað þess að senda inn mann­aðar sveitir. Það eru fjar­stýrð loft­för sem beina má með nokk­urri nákvæmni að til­teknum skot­mörkum, t.d. búðum meintra hryðju­verka­manna. Það er um margt ódýr­ari lausn og virð­ist hrein­legri á yfir­borð­inu, því eigið mann­fall er lág­markað og minni líkur eru á að drag­ast inn í enda­laus stríð – nokkuð sem Banda­ríkja­menn þekkja best allra. Hin hliðin er að með þessu verða ger­endur fjar­lægir skot­mörk­unum og þar með afleið­ing­unum – fórn­ar­lömbunum. Þegar fjöldi sak­lausra borg­ara týndi lífi í dróna­árásum, sem stundum misstu marks, urðu því margir til þess að gagn­rýna þessa stefnu.

Yfirlýsingaglaður forseti

Í aðdrag­anda for­seta­kosn­inga í Banda­ríkj­unum árið 2016 var orð­ræðan tals­vert á þá lund að næði Donald Trump kjöri yrði horfið frá þess­ari dráps­stefnu dróna­kóngs­ins Obama, að hin íhalds­sama utan­rík­is­stefna Donalds Trump myndi bæta þar úr. Þetta hefur leitt til þess skiln­ings sumra að Donald Trump hafi tek­ist – betur en fyr­ir­renn­urum hans – að halda Banda­ríkj­unum frá stríðs­á­tökum og koma þeim út úr þeim ógöngum sem þeir virð­ast enda­laust koma sér í, sér­stak­lega í Mið-Aust­ur­löndum. Því er gjarnan við­kvæðið þegar Trump hefur verið gagn­rýndur fyrir hin ýmsu afglöp að hann hafi þó alla vega ekki byrjað nein stríð og sé í raun frið­ar­sinni. Þetta er þó mjög fjarri sann­leik­anum, í besta falli mikil ein­földun.

[adspot]

Það er vissu­lega stað­reynd að Donald Trump hefur lagt sig fram um að fram­fylgja í þaula stefnu sem kall­ast „America First“ – sem miðar að því að ein­beita sér að inn­an­rík­is­málum og vera ekki að vasast í málum ann­arra ríkja. Nóg sé af verk­efnum heima fyrir sem krefj­ist úrlausna; hnign­andi iðn­aður og sam­keppn­is­staða Banda­ríkj­anna sem átti að hafa leitt til verri lífs­kjara almenn­ings. Þessi stefna felur þó einnig í sér ákveðna ein­angr­un­ar­hyggju og að draga Banda­ríkin út úr ýmsu alþjóða­sam­starfi, -stofn­unum og -samn­ingum – því slík þátt­taka, bind­andi fjöl­þjóða­samn­ingar o.þ.h. hefti full­veld­is­rétt Banda­ríkj­anna.

Rök­styðja má að til langs tíma sé slík stefna þó síst til að bæta hag, eða tryggja frið og öryggi, hvorki Banda­ríkja­manna né ann­arra. Stað­reyndin er einnig sú að þrátt fyrir að Trump hafi ekki hafið ný stríð hafa umsvif banda­ríska hers­ins erlendis síst minnkað. Yfir­stand­andi stríðs­rekstur hefur þvert á móti verið auk­inn og hefur Trump með stefnu sinni verið nálægt því að koma af stað nýjum alvar­legum stríðs­á­tökum.

Baráttan við Íslamska ríkið stóð sem hæst í aðdrag­anda for­seta­kosn­inga árið 2016 og Obama, sem mjög var gagn­rýndur fyrir auknar dróna­árásir, hafði unnið að því að gera ferlið við þær gagn­særra. Sér í lagi var reynt að setja reglur um notkun dróna á svæðum þar sem ekki voru bein stríðs­á­tök, eins og í Sómalíu og Líbýu, en eins og gjarnan ger­ist með jafn flókin mál urðu þær reglur þó aldrei meira en við­mið.

Átti Trump­stjórnin því mjög auð­velt með að snúa frá því aðhalds­sam­ara verk­lagi sem Obama hafði reynt að koma á. Hinn yfir­lýs­ingaglaði Trump hafði sagt í kosn­inga­bar­átt­unni að leiðin til að ráða nið­ur­lögum hryðju­verka­mann­anna væri að drepa fjöl­skyldur þeirra og hann myndi ekki fylgja eftir hinni „póli­tískt réttu“ aðferða­fræði for­set­ans næði hann kjöri. Stefna Trumps felur það m.a. í sér að her­for­ingjar og lægra settir her­stjórn­endur hafa frjáls­ari hendur með að gera árás, telji þeir þess þurfa með, og þurfa ekki að fara í gegnum form­leg ferli í Hvíta hús­inu.

„Trump hefur ekki byrjað ný stríð“ – er það svo einfalt?

Donald Trump hafði uppi stór orð í aðdrag­anda kosn­inga um það hversu illa Barack Obama og Hillary Clinton héldu á málum er vörð­uðu banda­rískt her­lið og stríðs­rekstur, sér í lagi hversu illa gekk að enda við­veru Banda­ríkja­manna í Afganistan og Írak. Eftir að Trump tók við emb­ætti lof­aði hann ítrekað að draga Banda­ríkin út úr kostn­að­ar­sömum stríðum, losa þau við íþyngj­andi skuld­bind­ingar erlendis og koma her­liðum heim.

Nú þegar hillir undir lok fyrsta kjör­tíma­bils Donalds Trump í emb­ætti má segja að enn sé sami fjöldi her­stöðva og her­manna á erlendri grund. Hefur jafn­vel bæst við þá byrði, því hann jók ýmist eða við­hélt þátt­töku Banda­ríkj­anna í átök­unum í Afganistan, Sýrlandi og víðar – Trump vék nán­ast í öllum málum af leið þeirri sem for­veri hans hafði farið nema þeirri sem snýr að hern­aði og slíkum skuld­bind­ingum erlendis, þar hefur hann haldið sömu stefnu – og gefið í.

Fljót­lega eftir að Trump tók við völdum árið 2017 var til­kynnt að Banda­ríkin myndu senda fleiri sveitir til Afganistan, sem fjölg­aði banda­rískum her­mönnum um helm­ing þegar mest var. Samkvæmt yfir­stjórn Banda­ríkja­hers hefur fleiri sprengjum og eld­flaugum verið skotið í Afganistan í valda­tíð Donalds Trump en á fyrstu kjör­tíma­bilum George W. Bush eða Baracks Obama. Náðu loft­árásir þar sögu­legu hámarki á árunum 2018–19, bæði hvað varðar magn og einnig mann­fall.

Trump sendi einnig umtals­verðan fjölda banda­rískra bar­daga­sveita til Sýrlands og gaf Jim Mattis, fyrr­ver­andi varn­ar­mála­ráð­herra, frjálsar hendur til að beita banda­rískum her­sveitum og auka lofthernað gegn ISIS. Hann sendi jafn­framt hund­ruð nýrra banda­rískra her­manna til Íraks þar sem þeim var beitt nær víg­lín­unum og veitti aukið frelsi til loft­árása í land­inu. Að sama skapi hefur for­set­inn einnig tíst um að hefja fyr­ir­byggj­andi eld­flauga­árásir gegn Norður-Kóreu ef stjórn­völd haldi áfram að ógna Banda­ríkj­unum og banda­mönnum þeirra. Trump hefur einnig beitt neit­un­ar­valdi gegn frum­vörpum sem Banda­ríkja­þing sam­þykkti til að draga banda­rískt her­lið út úr stríði Sádi-Arabíu í Jemen.

Jafn­framt hefur hann hindrað laga­setn­ingu sem átti að stöðva her­gagna­sölu, m.a. her­þotur, eld­flauga­búnað og sprengjur til Sádi-Arabíu vegna hörm­ung­ar­á­stands­ins í Jemen.Trump hefur heldur ekki náð að létta byrðum af Banda­ríkja­mönnum sem snúa að skuld­bind­ingum um vernd til handa banda­mönnum þeirra. Viðvera banda­rísks her­afla í Evrópu, undir merkjum Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, hefur einnig auk­ist, svo og þátt­taka í her­æf­ingum á evr­ópsku land­svæði.

Nú síð­ast í sept­em­ber lof­aði Trump því í ávarpi að liðs­afli Banda­ríkja­manna í Afganistan yrði kom­inn heim fyrir jól. Þetta kom flatt upp á her­mála­yf­ir­völd sem gáfu út um svipað leyti að mögu­lega væri hægt að fækka í her­lið­inu niður í 2500 manns snemma næsta ár. Trump-stjórnin hefur ítrekað talað um að verið sé að vinna í því að fækka niður í 4500 manns fyrir kjör­dag. Það mun þó ekki ger­ast og er ljóst að yfir­lýs­ingar for­set­ans eru ekki sann­leik­anum sam­kvæmt, frekar en margt annað, og settar fram í þeim til­gangi styrkja stöðu hans meðal kjós­enda.

Kjarnorkuvopnabúrið endurnýjað og uppfært

Að sama skapi hefur stjórn Trumps uppi áætl­anir um að stór­efla kjarn­orku­vopna­búr Banda­ríkj­anna. Það felur m.a. í sér í áætl­anir um þróun nýrra með­al­drægra eld­flauga en Trump dró Banda­ríkin út úr sam­komu­lagi við Rússa sem bann­aði slík vopn, að sögn vegna þess að Rússar höfðu ekki virt samn­ing­inn og því ekki ástæða lengur fyrir Banda­ríkja­menn að taka þátt.

Obama hafði lagt fram tals­vert umfangs­miklar til­lögur að end­ur­nýjun og upp­færslu kjarn­orku­vopna­við­bún­að­ar­ins en það sneri meira að end­ur­bótum á þeim vopnum sem til voru. Það sem nú er á ferð­inni snýst um að þróa með­færi­legri kjarna­vopn sem rök­styðja má að lækki þann þrösk­uld sem komið hefur í veg fyrir kjarn­orku­stríð. Hafa ber í huga að Banda­ríkin hafa nú þegar getu til að eyða hvaða skot­marki sem er, hvar sem er á jörð­inni. Sú við­bót og nýja tækni sem boðuð er mun ekki bæta neinu við eða fæla önnur ríki frá árásum á Banda­ríkin, nema síður sé.

Friðarsamkomulög – eru þau einhvers virði?

For­set­inn hefur einnig reynt að styrkja sig í sessi sem sátta­for­ingi með því að ýmist reyna að hafa for­göngu um mála­miðlun eða smeygja sér inn í sam­komu­lag ríkja sem átt hafa í deilum. Frið­ar­sam­komu­lag við Talibana sem gert var í febr­úar s.l. og Trump stærði sig af er dæmi um hvernig hann telur sig geta, nán­ast af eigin ramm­leik, leyst flókin mál. Það var blásið út sem tíma­móta­sam­komu­lag sem binda myndi enda á 19 ára löng átök í Afganistan. Ýmsir gagn­rýndu sam­komu­lagið fyrir að vera lítið annað en skipu­legt und­an­hald og ekki leið á löngu áður en blóðug átök brut­ust út, ein­hver þau mann­skæð­ustu frá upp­hafi.

Trump náði einnig að lát­ast stilla til friðar í Mið-Aust­ur­löndum. Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmin og Barein und­ir­rit­uðu nýlega í Hvíta hús­inu samn­inga um stjórn­mála­sam­band við Ísrael, en fyrir áttu Egypta­land og Jórdanía í slíku sam­bandi. Donald Trump for­seti stýrði athöfn­inni og sagði þetta vera „mik­il­vægan dag fyrir frið“ og sá til þess hann allir vissu að hann hefði náð að gera „frið­ar­samn­ing“ á milli Ísraels og arabaríkis, eins og nokkrum for­setum hefur tek­ist á síð­ustu 72 árum.

Þó þessir samn­ingar séu í sjálfu sér sögu­legir þá eru þetta alls engir frið­ar­samn­ingar. Ísrael hafði ekki átt í neinum deilum hvað þá stríði við Barein og Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmin, eins og reyndin er með mörg önnur Arabaríki á svæð­inu. Ríkin tvö höfðu þó haft horn í síðu Ísraels, eins og Arabaríki hafa gjarnan, en höfðu gert ýmsa samn­inga á bak við tjöldin á und­an­förnum árum. Samn­ing­ur­inn nú gerir ríkj­unum kleift að eiga ýmsa opin­bera sam­vinnu á sviði ferða­mála með beinu flugi milli land­anna og meiri við­skipti.

Talsmenn Palest­ínu­manna segja sam­komu­lagið vera sorg­legt og eina raun­veru­lega skrefið til friðar sé að enda her­nám Ísraels í Palest­ínu og við­ur­kenna ófrá­víkj­an­legan rétt þeirra til sjálfs­stjórnar. Trump seg­ist hins vegar bjart­sýnn á að fleiri arabaríki muni fylgja í kjöl­farið og ná eðli­legu sam­bandi við Ísrael, en tals­maður stjórn­valda í Quatar sagði að styrk­ing stöðu Ísraels á svæð­inu geti ekki verið leiðin að lausn átak­anna milli Ísrael og Palest­ínu.

Karim Sadjadpour, sér­fræð­ingur í Mið­aust­ur­löndum sagði samn­ing Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmanna og Ísraels vera runn­inn undan rifjum Banda­ríkj­anna, drif­inn áfram af gagn­kvæmum ótta við Íran. Hann líkti aðkomu Trumps að þessum samn­ingum við að hann hefði smellt nafni sínu á hótel sem hafi í raun þegar verið byggt. Sér­fræð­ingar hafa bent á að ef Banda­ríkin vildu raun­veru­lega beita sér fyrir friði þá gætu þau notað sér það vog­ar­afl sem þau hafa gagn­vart Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum og Sádi-Arabíu til að draga úr hern­aði þeirra í Jemen, sem Banda­ríkin styðja sjálf.

Hið sama má segja um sam­komu­lag milli Kósóvó og Serbíu sem und­ir­ritað var nýverið í Hvíta hús­inu, það virð­ist varla vera papp­írs­ins virði. Jafnvel þó sam­komu­lagið, sem virð­ist hafa verið klastrað saman í flýti, feli í sér lægsta mögu­lega sam­nefn­ara gátu ríkin tvö ekki komið sé saman um sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu, enda var sam­komu­lagið ritað á tvö ólík skjöl. Aleksander Vucic Serbíu­for­seti leit á sam­komu­lagið sem tví­hliða við­ræður undir stjórn Banda­ríkj­anna og virt­ist koma af fjöllum þegar Trump, sem notar samn­ing­ana til að kaupa stuðn­ing við Ísrael, til­kynnti að Serbía myndi flytja sendi­ráð sitt til Jer­úsalem eftir að und­ir­ritun lauk.

Hafa ber í huga að ríkin á Balkanskaga eru í við­kvæmri stöðu eftir að Júgóslavía nán­ast tætt­ist í sundur í blóð­ugu stríði á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Ríkin reyna því hvert um sig að fóta sig í alþjóða­sam­fé­lag­inu með því að halla sér að til­teknum banda­mönnum, en um leið forð­ast áhrif og yfir­gang frá öðrum. Þarna reyna að teygja anga sína Rússar, Kín­verjar, Banda­ríkja­menn og ýmis ríki Mið-Aust­ur­landa, sem toga úr öllum áttum og reyna að stíga inn í það tóma­rúm sem mynd­að­ist.

[adspot]

Bent hefur verið á að Banda­ríkin séu þarna að „Mið­aust­ur­landa­væða­“ Balkanskag­ann, m.a. með því að skil­greina Kósóvó sem múslima­ríki, nokkuð sem það hefur forð­ast hingað til. Það sem hékk á spýt­unni fyrir Kósóvó var að hljóta við­ur­kenn­ingu frá Ísrael á sjálf­stæði en bar­áttan fyrir sjálf­stæði hefur staðið í 15 ár. En það sem Serbía sæk­ist mögu­lega eftir er að verða megin banda­maður Banda­ríkj­anna á Balkanskaga í gegnum Ísrael.

Rétt er þó að hafa í huga að Slóvenía og Króatía eru þegar aðilar að ESB og þau ásamt Svart­fjalla­landi, Norður Makedóníu og Albaníu eru aðilar að NATO. Serbía, ásamt Albaníu, Norður Makedóníu og Svart­fjalla­landi, eru form­leg umsókn­ar­ríki aðildar að ESB (candidate countries). Trump sætir þarna lagi og hættir sér inn í eld­fimt ástand sem engan veg­inn verður lagað með ein­földum lausnum – og allra síst með valdaplotti sem er lík­legra til að gera illt verra. Til­gang­ur­inn virð­ist ekki vera að stuðla að friði heldur að tryggja áhrif Banda­ríkj­anna og Ísraels á Balkanskaga. En ekki síður til að geta skreytt sig með fjöðrum frið­ar­boð­ans í aðdrag­anda kosn­inga.

Trump elur á sundrungu og kyndir undir ófriði

Þegar kemur að ímynd, trausti og vel­vilja, sem þrátt fyrir allt hlýtur að vera ákveð­inn grunnur að því að eiga í frið­sam­legum sam­skiptum, skilur Trump eftir sig sviðna jörð. Þetta á ekki aðeins við um utan­rík­is­mál heldur einnig mál­efni heima fyrir, sem er afleið­ing America First-stefn­unnar. Segja má að hún hafi farið í handa­skolum og valdið Banda­ríkj­unum tals­verðum skaða því Trump hefur náð að útmála stór­veldið Banda­ríkin sem ein­hvers­konar fórn­ar­lamb sem hafi farið hall­oka í viður­eign sinni við önnur ríki.

Í stað þess að sam­eina þjóð­ina notar Trump hvert tæki­færi til að hella olíu á eld ófriðar sem hefur m.a. reynst Banda­ríkj­unum dýr­keypt í bar­átt­unni við COVID-19. Fullyrða má að hegðun og fram­koma Trumps þar hafi verið mjög skað­leg. Hann upp­fyllti ekki hlut­verk sitt sem leið­togi fyrir hið marg­þætta dreifða stjórn­kerfi Banda­ríkj­anna. Í stað þess að sam­ræma aðgerðir og beita þeim styrk sem ríki eins og Banda­ríkin búa yfir, kynti hann undir deilum við póli­tíska and­stæð­inga í röðum rík­is­stjóra og gróf undan því trausti sem þeir sann­ar­lega þurftu á að halda á sínum heima­velli.

Honum hefur tek­ist að auka hætt­una á stríði, komið Íran til þess að end­ur­vekja kjarn­orku­á­ætlun sína, tek­ist að vekja veru­lega efa­semdir um dóm­greind og áreið­an­leika banda­rískra stjórn­valda. Hann hefur sent traustum banda­mönnum í Evrópu fing­ur­inn og tek­ist að láta Rússland og Kína líta út sem vöggu rétt­lætis og stjórn­visku. Stjórn Trumps hefur látið í ljós að hún telji að morð á erlendum emb­ætt­is­mönnum séu lög­mæt og eðli­legur hluti af utan­rík­is­stefnu ríkja. Einnig hefur Trump fund­ist eðli­legt að upp­hefja stríðs­glæpa­menn og hampa ein­ræð­is­herrum.

Stríðstrumbu­sláttur Trump gagn­vart Kína er síðan kap­ít­uli út af fyrir sig þó fram­koma Kína á alþjóða­vett­vangi og gagn­vart minni­hluta­hópum inn­an­lands sé um margt veru­lega aðfinnslu­verð. Trump­stjórnin hefur, í mis­heppn­uðu við­skipta­stríði og með óhöndug­legum aðferðum gagn­vart vax­andi tækni­for­skoti Kína, sem jú byggir m.a. á hug­verka­stuldi, gert það að verkum að sam­skiptin milli Beijing og Washington hafa sjaldan staðið verr. Nýleg þjóðar­ör­ygg­is­stefna Banda­ríkj­anna bein­línis stillir Kína upp sem höf­uð­ó­vini Banda­ríkj­anna.

Það er ljóst að Donald Trump vék í engu frá þeirri stefnu sem Barack Obama var hvað mest gagn­rýndur fyrir heldur gekk hann enn lengra en for­veri hans. Í því ljósi verður full­yrð­ingin um að Trump hafi ekki hafið nein ný stríð hjáróma og vill­andi. Í raun má halda því fram að hann hafi kom­ist mun nær því að hefja ný stríð en að binda endi á þau sem hann erfði frá fyr­ir­renn­urum sínum. Fullyrða má að Trump hafi með fram­ferði sínu, hinni mis­tæku America First stefnu, gert illt verra. Ekki bara skaðað sína eigin þjóð heldur einnig hina frjáls­lyndu alþjóð­legu skipan heims­mála sem ríkt hefur síðan eftir lok heims­styrj­ald­ar­innar síð­ari. Það eitt og sér hefur stór­aukið mögu­leika á ófriði – stríði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár