Neysla stúlkna á framhaldsskólastigi á orkudrykkjum fjórfaldast

Neysla barna og ung­menna á orku­drykkjum hefur auk­ist gríð­ar­lega á síð­ustu tveimur árum. Mat­væla­stofnun hefur óskað eftir því að nýsett áhættu­nefnd um mat­væli meti áhættu af koff­ín­n­eyslu ung­menna.

Gríð­ar­leg aukn­ing hefur orðið í neyslu orku­drykkja bæði á meðal fram­halds­skóla­nema og meðal nem­enda í 8 til 10 bekk grunn­skóla. Meiri en helm­ingur fram­halds­skóla­nema neytti orku­drykkja dag­lega í fyrra og rúm­lega þriðj­ungur tíunda bekk­inga. Land­læknir telur að ekki ætti að selja drykki með meira en 150 mg af koff­íni börnum yngri en 18 ára.

Þetta kemur fram í svari heil­brigð­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dóttur, þing­manni Vinstri grænna.

Rúmlega helmingur neytir orkudrykkja daglega

Í svari ráð­herra er vitnað í nið­ur­stöður úr rann­sókn á vegum Rann­sókna og grein­ingar við Háskól­ann í Reykja­vík á neyslu orku­drykkja meðal barna og ung­menna. Samkvæmt nið­ur­stöðum meðal fram­halds­skóla­nema var hlut­fall þeirra sem dag­lega eða oftar neytti orku­drykkja 55 pró­sent árið 2018. Í fyrri könnun, sem gerð var árið 2016, var hlut­fallið 22 pró­sent og er aukn­ingin því gríð­ar­leg milli ára.

Orku­drykkir eiga það sam­eig­in­legt að inni­halda koffín og flestir þeirra inni­halda auk þess önnur virk efni. Magn koff­íns getur þó verið nokkuð mis­mun­andi eftir drykkj­ar­teg­undum. 

Þá jókst neysla stelpna í fram­halds­skóla mun meira en stráka en neysla þeirra nærri fjór­fald­að­ist á milli ára, fór úr 14 pró­sentum árið 2016 í 54 pró­sent árið 2018. Hjá strákum fór dag­leg neysla úr 30 pró­sent árið 2016 í 55 pró­sent í fyrra.

Fjórir eða fleiri orkudrykkir á dag

Í rann­sókn­inni kom jafn­framt fram að 78 pró­sent þeirra sem sofa of lítið (um 7 klukku­stundir eða minna) drekka fjóra eða fleiri orku­drykki dag­lega sem inni­halda koffín.

Þegar nið­ur­stöður meðal grunn­skóla­nema eru skoð­aðar sést að alls neyttu 28 pró­sent nem­enda í 8 til 10 bekk orku­drykkja dag­lega í fyrra. Það er tölu­verð aukn­ing frá fyrri könnun sem gerð var 2016 en þá var hlut­fallið 16 pró­sent.

Í nið­ur­stöð­unum má jafn­framt sjá að dag­leg neysla orku­drykkja eykst með hækk­andi aldri hjá báðum kynjum en þó neyta fleiri strákar en stelpur orku­drykkja. Árið 2018 var hlut­fallið 20 pró­sent í 8. bekk, 29 pró­sent í 9. bekk og 35 pró­sent í 10. bekk.

Hagnaðurinn aukist um 740 prósent

Nocco er ein þeirra orku­drykkja­teg­unda sem notið hefur hvað mestra vin­sælda hér á landi á síð­ustu árum. Heild­salan sem flytur þá inn til lands­ins, ásamt öðrum vörum, er Core og hafa rekstr­ar­tekjur Core auk­ist gíf­ur­lega á síð­ustu árum.

Í frétt Við­skipta­blaðs­ins um tekjur Core segir að rekstr­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins hafi numið 440 millj­ónum króna árið 2016 en árið 2018 voru þær komnar í tæpa 1,8 millj­arða króna. Á tveimur árum juk­ust tekj­urnar því um 310 pró­sent. Á sama tíma­bili jókst hagn­að­ur­inn úr 23 millj­ónum króna í 193 millj­ónir, eða um 740 pró­sent.

Meta áhættu af koffínneyslu ungmenna

Í svari ráð­herra við fyrr­nefndri fyr­ir­spurn Rósu Bjarkar um hvort að ráðu­neytið hafi upp­lýs­ingar um til­vik þar sem neysla orku­drykkja hafi haft bein áhrif á heilsu­far neyt­enda segir að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Land­spít­ala hafa komið upp nokkur til­vik þar sem ein­stak­lingar hafa leitað á bráða­mót­töku með almenn ein­kenni vegna neyslu orku­drykkja. Algeng­ustu ein­kenni eru hraður hjart­sláttur, óró­leika­til­finn­ing, svimi, eirð­ar­leysi og kvíði en engin stað­fest alvar­leg ein­kenni af völdum orku­drykkja meðal ein­stak­linga sem hafa leitað á bráða­deild.

Embætti Land­læknis telur að banna ætti sölu á orku­drykkjum sem inni­halda 320 mg eða meira af koff­íni á hvern lítra en slíka drykkja má ekki selja hér á landi nema með sér­stöku­leyfi Mat­væla­stofn­unar. Nokkrar slíkar vörur hafa fengið slíkt leyfi. Jafn­framt telur Land­læknir að ekki ætti að selja drykki með koff­íni á bil­inu 150 til 230 mg börnum yngri en 18 ára.

Í svari ráð­herra kemur jafn­framt fram að Mat­væla­stofnun hefur óskað eftir því að nýsett áhættu­nefnd mat­væla meti áhættu af koff­ín­n­eyslu ung­menna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár