Kaupmáttur ráðstöfunartekna ekki dregist jafn mikið saman í næstum tólf ár

Í fyrsta sinn síðan í lok árs 2012 og byrjun árs 2013 gerð­ist það í ár að kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna dróst saman tvo árs­fjórð­unga í röð. Á þriðja árs­fjórð­ungi dróst hann saman um 6,1 pró­sent, sem er mesti sam­dráttur sem hefur mælst frá 2010.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Eyþór Árnason

Í fyrsta sinn síðan í lok árs 2012 og byrjun árs 2013 gerð­ist það í ár að kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna dróst saman tvo árs­fjórð­unga í röð. Á þriðja árs­fjórð­ungi dróst hann saman um 6,1 pró­sent, sem er mesti sam­dráttur sem hefur mælst á þremur mán­uðum frá lokum árs 2010.

Ráð­stöf­un­ar­tekjur eru þeir pen­ingar sem standa eftir þegar búið er að draga skatta og önnur gjöld frá launum við­kom­andi og kaup­máttur þeirra lýsir því hvað hver getur keypt fyrir þær tekjur. Þegar kaup­mátt­ur­inn dregst saman þá getur við­kom­andi keypt minna fyrir krón­urnar sem hann hefur til ráð­stöf­unar í hverjum mán­uði.

Þetta var annar árs­fjórð­ung­ur­inn í röð sem kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna dróst saman, en hann var mínus 2,7 pró­sent á öðrum fjórð­ungi árs­ins 2022. Það er í fyrsta sinn síðan í lok árs 2012 og byrjun árs 2013 sem kaup­máttur dregst saman tvo árs­fjórð­unga í röð og sam­drátt­ur­inn í kaup­mætti á síð­ustu mán­uðum er sá mesti sem mælst hefur síðan í lok árs 2010, eða í næstum tólf ár.

Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hagstofu Íslands um tekju­skipt­ing­ar­upp­gjör heim­il­is­geirans.

[adspot]Í sam­an­tekt hennar segir að áætlað sé að ráð­stöf­un­ar­tekjur heim­ila­geirans hafi auk­ist um 5,8 pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi 2022 í sam­an­burði við sama tíma­bil fyrra árs. „Gert er ráð fyrir því að ráð­stöf­un­ar­tekjur á mann hafi numið rúm­lega 1,2 millj­ónum króna á árs­fjórð­ungnum og hafi auk­ist um 2,9 pró­sent frá sama tíma­bili í fyrra.

Að teknu til­liti til verð­lags­þró­unar er hins vegar áætlað að kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna á mann hafi dreg­ist saman um áður­nefnd 6,1 pró­sent á tíma­bil­inu en vísi­tala neyslu­verðs, sem mælir verð­bólgu, hækk­aði um 9,7 pró­sent á sama tíma­bili.

Vaxtagjöld vigta inn í útgjöldin

Í töl­unum eru vaxta­gjöld heim­il­anna dregin frá tekjum við útreikn­ing ráð­stöf­un­ar­tekna. Þannig er í töl­unum tekið til­lit til áhrifa vaxta­hækk­ana á heim­ilin. Miklar stýri­vaxta­hækk­anir hafa hækkað vaxta­gjöld heim­ila grið­ar­lega á und­an­förnum mán­uðum, en vext­irnir hafa farið úr 0,75 pró­sent í maí í fyrra í sex pró­sent nú.

Í frétt fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins af birt­ingu taln­anna er ekki minnst á 6,1 pró­sent sam­drátt í kaup­mætti ráð­stöf­un­ar­tekna á síð­asta árs­fjórð­ungi heldur sagt að af þeim megi „ráða að ráð­stöf­un­ar­tekjur séu enn með mesta móti þrátt fyrir vaxta­hækk­anir og kaup­máttur mik­ill þrátt fyrir hækkun verð­bólgu.“

Gera megi ráð fyrir að tekjur haldi áfram að vaxa í kjöl­far launa­hækk­ana sem taki gildi með nýjum kjara­samn­ingum á almennum vinnu­mark­aði og aðgerða stjórn­valda til stuðn­ings við­kvæmum hópum, hækk­unar hús­næð­is­bóta og styrk­ingar barna­bóta­kerf­is­ins. „Tölur Hag­stof­unnar benda til þess að þrátt fyrir hækkun vaxta und­an­farið séu vaxta­gjöld heim­il­anna enn lág í sögu­legu sam­hengi. Með breyt­ingum á vaxta­bóta­kerf­inu sem taka gildi á næsta ári munu fleiri heim­ili njóta vaxta­bóta en áður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár