Ríflega helmingur hlynntur því að leyfa staðgöngumæðrun á Íslandi

Tæplega 52% eru hlynnt því að leyfa stað­göngu­mæðrun á Íslandi, en 23-24% eru mót­fallin því, sam­kvæmt nýrri könnun frá Maskínu. Karla eru hlynnt­ari stað­göngu­mæðrun en konur, rúm­lega 56% karla eru hlynntir því en 47 til 48% kvenna.

Stuðn­ingur við stað­göngu­mæðrun minnkar með hækk­andi aldri, 69% fólks undir 25 ára aldri er hlynnt stað­göngu­mæðrun en 39% þeirra sem eru 55 ára og eldri. Þá er fólk með háskóla­próf síður hlynnt því að leyfa stað­göngu­mæðrun en þeir sem hafa styttri skóla­göngu. 

Kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri-grænna skera sig frá kjós­endum ann­arra flokka, þar sem um 41% kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­in­arr eru hlynntir því að leyfa stað­göngu­mæðrun og 26% kjós­enda Vinstri-grænna. Hjá öðrum flokkum var hlut­fallið á bil­inu 54 til 58%, hæst hjá kjós­endur Bjartrar fram­tíðar. And­staðan við það að heim­ila stað­göngu­mæðrun er lang­mest hjá VG, 55,6% segj­ast and­víg. Minnst and­staða er hjá kjós­endum Fram­sókn­ar­flokks­ins, 17%.

Í spurn­ing­unni var stað­göngu­mæðrun skil­greind þannig að stað­göngu­mæðrun í víðum skiln­ingi sé þegar kona (stað­göngu­móðir) gengur með barn fyrir par eða ein­stak­ling (verð­andi for­eldra eða for­eldri) og hefur fall­ist á fyrir með­göng­una að afhenda þeim barnið eftir fæð­ingu.

Nú liggur inni í þing­inu frum­varp um að heim­ila stað­göngu­mæðrun í vel­gjörð­ar­skyni.

Þetta er miklu minni stuðn­ingur en mæld­ist þegar tvær kann­anir voru gerðar á stuðn­ingi við heim­ilun stað­göngu­mæðr­unar árið 2011, þegar umræða um málið var mikil. Þá gerði MMR könnun þar sem 87% sögð­ust fylgj­andi því að leyfa stað­göngu­mæðrun en 13% voru and­víg því. Frétta­blaðið gerði einnig könnun sem sýndi tæp­lega 85% stuðn­ing við það að stað­göngu­mæðrun yrði heim­iluð. 15,3% voru and­víg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár