Vilja þjóðaratkvæði um auðlindarákvæði fyrir mitt ár 2020

Hópurinn sem safn­aði á sjötta tug þús­unda und­ir­skrifta gegn afhend­ingu mak­ríl­kvóta í meira en eitt ár í senn á árinu 2015 hefur sent áskorun til Alþingis um að fram fari þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um tvær til­lögur um auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá.


Hópur sem stóð að átak­inu „Þjóð­ar­eign“ árið 2015, og und­ir­skrifta­söfnun gegn afhend­ingu mak­ríl­kvóta í meira en eitt ár í senn, hefur sent áskorun til for­seta Alþingis og allra þing­flokks­for­manna, þar sem þeir fara fram á að fram fari fram fari þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um tvær til­lögur um orða­lag auð­linda­á­kvæðis í stjórn­ar­skrá. Lagt er til að atkvæða­greiðslan fari fram ekki síðar en í lok júní 2020.

Hópurinn sendi með til­lögu til þings­á­lykt­unar sem hann beinir til for­sætis­nefndar Alþingis og þing­flokks­for­manna að lögð verði fyrir þingið. Að­stand­endur átaks­ins eru Agnar K. Þor­steins­son, Bolli Héð­ins­son, Guð­rún Pét­urs­dótt­ir, Jón Sig­urðs­son, Jón Steins­son og Þor­kell Helga­son.

Til­lög­urnar tvær eru eft­ir­far­andi:

I. Tillaga Stjórn­laga­ráðs í 34. gr. í frumvarpi til stjórnarskipunarlaga, sbr. þingskjal 3, 3. mál á 140. löggjafarþingi:

Auð­lindir í nátt­úru Íslands, sem ekki eru í einka­eigu, eru sam­eig­in­leg og ævar­andi eign þjóð­ar­innar. Enginn getur fengið auð­lind­irnar, eða rétt­indi tengd þeim, til eignar eða var­an­legra afnota og aldrei má selja þær eða veð­setja.
Til auð­linda í þjóð­ar­eign telj­ast nátt­úru­gæði, svo sem nytja­stofnar, aðrar auð­lindir hafs og hafs­botns innan íslenskrar lög­sögu og upp­sprettur vatns- og virkj­un­ar­rétt­inda, jarð­hita- og náma­rétt­inda. Með lögum má kveða á um þjóð­ar­eign á auð­lindum undir til­tek­inni dýpt frá yfir­borði jarðar.
Við nýt­ingu auð­lind­anna skal hafa sjálf­bæra þróun og almanna­hag að leið­ar­ljósi.
Stjórn­völd bera, ásamt þeim sem nýta auð­lind­irnar, ábyrgð á vernd þeirra. Stjórn­völd geta á grund­velli laga veitt leyfi til afnota eða hag­nýt­ingar auð­linda eða ann­arra tak­mark­aðra almanna­gæða, gegn fullu gjaldi og til til­tek­ins hóf­legs tíma í senn. Slík leyfi skal veita á jafn­ræð­is­grund­velli og þau leiða aldrei til eign­ar­réttar eða óaft­ur­kall­an­legs for­ræðis yfir auð­lind­unum.

II. Tillaga sem forsætis­ráðu­neytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda, mál nr. 128/2019, birt 10. maí 2019.

Auð­lindir nátt­úru Íslands til­heyra íslensku þjóð­inni. Nýting auð­linda skal grund­vall­ast á sjálf­bærri þróun.
Nátt­úru­auð­lindir og lands­rétt­indi sem ekki eru háð einka­eign­ar­rétti eru þjóð­ar­eign. Enginn getur fengið þessi gæði eða rétt­indi tengd þeim til eignar eða var­an­legra afnota. Hand­hafar lög­gjaf­ar­valds og fram­kvæmd­ar­valds fara með for­ræði og ráð­stöf­un­ar­rétt þeirra í umboði þjóð­ar­innar.
Veiting heim­ilda til nýt­ingar á nátt­úru­auð­lindum og lands­rétt­indum sem eru í þjóð­ar­eign eða eigu íslenska rík­is­ins skal grund­vall­ast á lögum og gæta skal jafn­ræðis og gagn­sæis. Með lögum skal kveða á um gjald­töku fyrir heim­ildir til nýt­ingar í ábata­skyni.

Nauðsynlegt að fá álit þjóðar

Í grein­ar­gerð til­lög­unnar segir að lagt sé til að efnt verði til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um nýtt ákvæði í stjórn­ar­skrá sem taki af skarið um auð­lindir í almanna­eigu, þær auð­lindir sem ekki eru þegar háðar einka­eign­ar­rétti. Um ára­tuga­skeið hafi verið rætt um nauð­syn þess að setja í stjórn­ar­skrá skýr og skil­merki­leg ákvæði þessu skyni. „Orðalag auð­linda­á­kvæðis hefur verið til umfjöll­unar hjá þjóð­inni um langa hríð og meðal þeirra við­fangs­efna sem hlutu hvað mesta umfjöllun á þjóð­fund­inum sem efnt var til 2010 og síðan hjá Stjórn­laga­ráði sem starf­aði sum­arið 2011. Tillaga um auð­linda­á­kvæði Stjórn­laga­ráðs er því önnur þeirra hug­mynda sem lagt er til að kjós­endur fái að tjá sig um.

[adspot]Í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni 20. októ­ber 2012 guldu nær 83% þeirra sem afstöðu tóku jáyrði við því að slíkar auð­lindir yrðu lýstar þjóð­ar­eign. Jafn­framt höfðu 67% kjós­enda sem afstöðu tóku sagt sig fylgj­andi því að til­lögur Stjórn­laga­ráðs yrðu lagðar til grund­vallar og vænt­an­lega auð­linda­á­kvæðið líka.

Nú hefur for­sæt­is­ráðu­neytið kynnt til­lögu að auð­linda­á­kvæði sam­kvæmt ákvörðun 13. fundar for­manna stjórn­mála­flokka, sem sæti eiga á Alþingi, um stjórn­ar­skrár­mál hald­inn föstu­dag­inn 10. maí 2019.
Ljóst er að mikið ber á milli þess­ara til­lagna og því nauð­syn­legt að fá álit þjóð­ar­innar, hins nátt­úru­lega stjórn­ar­skrár­gjafa, þó það verði ekki nema með ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Efna mætti til slíkrar atkvæða­greiðslu sam­hliða for­seta­kosn­ingum sem kunna að verða haldnar 27. júní n.k. þótt for­seta­kosn­ing­arnar séu ekki nauð­syn­leg for­senda þess að efnt sé til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um jafn brýnt mál­efni og hér um ræðir.“

Söfnuðu næstum 54 þúsund undirskriftum

Árið 2015 var sett á fót áskorun til for­seta Íslands um að setja ráð­stöfun á fisk­veiði­auð­lind­inni til lengri tíma en eins árs í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu ætla að ná miklu flugi. Tilefnið var fyr­ir­liggj­andi frum­varp Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, um að ráð­stafa mak­ríl­kvóta til lengri tíma en eins árs án þess að komið væri í stjórn­ar­skrá ákvæði sem tryggði eign þjóð­ar­innar á auð­lind­inni og að hún fengi fullt gjald fyrir afnot hennar.

[links]Að­stand­endur átaks­ins voru Agnar K. Þor­steins­son, Bolli Héð­ins­son, Guð­rún Pét­urs­dótt­ir, Henný Hinz, Jón Sig­urðs­son, Jón Steins­son og Þor­kell Helga­son.

Þegar for­seta Íslands voru afhentar und­ir­skrift­irnar í júlí 2015 voru þær orðnar 53.571. Það reyndi þó ekki á synj­un­ar­vald for­set­ans. Málinu var frestað og varð ekki að lögum. Makríl var síðan kvóta­settur fyrr á þessu ári, 2019, með lögum. Það var gert þrátt fyrir að enn skorti á ákvæði í stjórn­ar­skrá sem segi til um þjóð­ar­eign yfir auð­lindum lands­ins.

Makríl var svo kvóta­settur í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár