Forstjóri ÁTVR falaðist eftir viðbótarlaunum en fékk ekki

Samkvæmt svörum frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu og ÁTVR hefur for­stjóri ÁTVR und­an­farin miss­eri verið í við­ræðum við ráðu­neytið um starfs­sam­band sitt og launa­kjör. Af svari ráðu­neyt­is­ins má ráða að hann hafi fal­ast eftir við­bót­ar­launum en ekki fengið.

Ívar J. Arndal, forstjóri ÁTVR.
Ívar J. Arndal, for­stjóri ÁTVR. Mynd: ÁTVR

Ívar J. Arndal for­stjóri ÁTVR hefur und­an­farin miss­eri verið í við­ræðum við fjár­mála­ráðu­neytið um starfs­sam­band sitt, meðal ann­ars um launa­kjör. Launum for­stjór­ans var hins vegar ekki breytt, sam­kvæmt svari sem Kjarninn fékk frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu.

Heim­ildir Kjarnans herma að for­stjór­inn hafi fal­ast eftir álags­greiðslum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins ofan á reglu­leg laun sín, sem eru 1.620 þús­und krónur á mán­uði sam­kvæmt launa­töflu for­stöðu­manna, en það fæst hvorki stað­fest frá ÁTVR né fjár­mála­ráðu­neyt­inu.

Báðir aðilar vísa til þess að sam­skipti for­stjór­ans við ráðu­neytið vegna þess­ara mála séu und­an­þegin upp­lýs­inga­rétti almenn­ings og hafna þar af leið­andi að láta af hendi sam­skipti á milli for­stjór­ans og ráðu­neyt­is­ins.

„Ráðu­neytið hefur átt í sam­skiptum við for­stjóra ÁTVR um starfs­sam­band hans und­an­farin miss­eri. For­stjóra ÁTVR hafa aftur á móti ekki verið ákvörðuð við­bót­ar­laun, sbr. reglu­gerð 491/2019,“ segir í svari frá ráðu­neyt­inu til Kjarnans.

Reglu­gerðin sem vísað er til snýst um greiðslu við­bót­ar­launa til for­stöðu­manna rík­is­stofn­ana, en þar segir meðal ann­ars að heim­ild til greiðslu við­bót­ar­launa sé „bundin við sér­stakt álag, t.d. vegna óvæntra eða ófyr­ir­séðra ytri atvika, eða verk­efna sem eru veru­lega umfram reglu­bundnar starfs­skyldur og rúm­ast ekki innan venju­bund­innar starf­semi stofn­un­ar­innar.“

Í reglu­gerð­inni segir einnig að taka megi beiðni um greiðslu við­bót­ar­launa til með­ferðar „að ósk hlut­að­eig­andi for­stöðu­manns eða að frum­kvæði hlut­að­eig­andi ráð­herra eða stjórnar“ og að ákvörðun um greiðslu skuli byggð á mál­efna­legum sjón­ar­miðum, auk þess sem afla skuli nauð­syn­legra gagna og upp­lýs­inga.

Samkvæmt lista sem birtur er af hálfu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins fengu sex for­stöðu­menn rík­is­stofn­ana ákvörðuð við­bót­ar­laun á síð­asta ári, þar af fjórir for­stöðu­menn vegna álags vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Það voru land­læknir auk for­stöðu­manna Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, Lyfja­stofn­unar og Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða.

Forstjóri frá 2005

Ívar J. Arndal hefur verið for­stjóri ÁTVR allt frá árinu 2005, en hefur þó starfað hjá versl­un­inni mun lengur, eða allt frá árinu 1990, sam­kvæmt því sem fram kom í til­kynn­ingu um ráðn­ingu hans í for­stjóra­starfið á sínum tíma.

[adspot]

Áður en hann varð for­stjóri var hann aðstoð­ar­for­stjóri frá árinu 2000, auk þess að vera settur for­stjóri á árunum 2003-2004.

Nokkra athygli hefur vakið að Ívar kemur sjaldan eða aldrei fram fyrir hönd stofn­un­ar­innar opin­ber­lega, nema í árs­skýrslum og umsögnum stofn­un­ar­innar til opin­berra aðila, á meðan að aðstoð­ar­for­stjór­inn Sigrún Ósk Sig­urð­ar­dóttir ann­ast sam­skipti við fjöl­miðla.

Lýsti álagi vegna veirufaraldursins í ársskýrslu

Áfeng­is­salan í land­inu tók stakka­skiptum í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum, er veit­inga­stöðum og krám var gert að loka og ferða­lög lögð­ust af að mestu sem leiddi til þess að fáir birgðu sig upp af víni í Frí­höfn­inni í Kefla­vík­ur­flug­velli. Á móti jókst salan hjá ÁTVR all­veru­lega.

Áhrif far­ald­urs­ins voru fyr­ir­ferða­mikil í pistli for­stjór­ans í árs­skýrslu ÁTVR fyrir árið 2020, en þar var rakið hvaða áhrif veiru­far­ald­ur­inn hafði á starf­sem­ina, með til­heyr­andi sölu­aukn­ingu og sótt­varna­ráð­staf­anir á öllum starfs­stöðvum.

„Með ótrú­legu átaki og sam­vinnu allra tókst að láta starf­sem­ina ganga upp við þessar erf­iðu aðstæður,“ skrif­aði Ívar í pistli sínum og sagði hann einnig að það væri „með ólík­indum“ að dreif­ing vöru til Vín­búð­anna hafi gengið upp „miðað við hvernig ástandið var.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár