Hvetur ríki til að gefa eftir sæti sitt í biðröðinni að bóluefnum

Ýmislegt hefur áunn­ist frá því að COVAX-sam­starf­inu var ýtt úr vör með það að mark­miði að tryggja öllum jarð­ar­búum aðgang að bólu­efni gegn COVID-19. En staðan er þó enn algjör­lega óásætt­an­leg.

Fólk á Indlandi bíða í röð eftir að fá bóluefni.
Fólk á Indlandi bíða í röð eftir að fá bólu­efni. Mynd: EPA

Fyrir tólf mán­uðum síðan sam­ein­að­ist heims­byggðin um það að styðja COVAX, alþjóð­legan vett­vang með það að mark­miði að tryggja öllum jarð­ar­búum aðgang að lífs­nauð­syn­legum bólu­efnum gegn COVID-19.

Þrátt fyrir að margt hafi áunn­ist með sam­starf­inu er mis­skipt­ingin enn gríð­ar­leg: 80 pró­sent íbúa hátekju­þjóða hafa fengið að minnsta kosti einn skammt bólu­efnis en aðeins 20 pró­sent lág­tekju­þjóða.

[links]Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni (WHO) sem gefin var út í dag. Ísland hefur nú þegar gefið 125.726 umfram­skammta af bólu­efni AstraZeneca inn í COVAX og þegar vett­vang­ur­inn fer að taka við bólu­efni Janssen verða sam­kvæmt upp­lýs­ingum úr utan­rík­is­ráðu­neyt­inu 153.500 skammtar af því gefnir. Ísland hefur auk þess varið rúmum millj­arði króna til að tryggja þró­un­ar­ríkjum aðgang að bólu­efnum og til að flýta þróun, fram­leiðslu og jöfnum aðgangi að skimun­ar­bún­aði og með­ferðum við COVID-19.

Heil­brigð­is­ráðu­neytið sagði nýverið við Kjarnann að frek­ari „geta Íslands“ til að gefa bólu­efni inn í sam­starfið verði metin á þeim grunni að hér séu hafnar örv­un­ar­bólu­setn­ingar og bólu­setn­ingar barna.

[adspot]

Um leið og sam­starfs­grund­völlur ríkja heims var tryggður fyrir ári síðan hóf COVAX að tryggja fjár­mögnun verk­efn­is­ins og að semja við bólu­efna­fram­leið­endur. Árangur af þeirri vinnu er aug­ljós, segir í yfir­lýs­ingu WHO: COVAX hefur tryggt sér 10 millj­arða Banda­ríkja­dala, samið um afhend­ingu 4,5 millj­arða bólu­efna­skammta og þegar afhent 240 millj­ónir þeirra til 139 ríkja á síð­ustu sex mán­uðum.

„En þrátt fyrir þetta er heims­myndin hvað aðgang að bólu­efni gegnum COVID-19 óásætt­an­leg,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Eitt af því sem staðið hefur COVAX fyrir þrifum er sú stað­reynd að þegar vett­vang­ur­inn hóf að semja um kaup bólu­efna af fram­leið­endum höfðu rík­ari þjóðir þegar keypt meiri­hlut­ann af því sem stóð til boða. „Enn þann dag í dag er geta COVAX til að vernda við­kvæm­asta fólk heims­ins tak­mörkuð vegna útflutn­ings­banna, for­gangs­röð­unar tví­hliða samn­inga milli fram­leið­enda og ákveð­inna ríkja, áfram­hald­andi hind­r­ana lykil hrá­efna­fram­leið­enda svo auka megi fram­leiðslu bólu­efna og töfum á sam­þykki eft­ir­lits­stofn­ana.“

[adspot]

COVAX stefnir á að hafa yfir 1,4 millj­arði bólu­efna­skammta að ráða á þessu ári. Þetta myndi duga til að verja 20 pró­sent íbúa 92 fátæk­ustu þjóða heims ef Indland er und­an­skilið.

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin skorar á alla sem taka þátt í COVAX, stjórn­völd ríkja sem og fram­leið­endur bólu­efna, að stað­festa að nýju stuðn­ing sinn og koma í veg fyrir frek­ari tafir á fram­gangi sam­starfs­ins með því að tryggja eft­ir­far­andi:

  • Í þeim til­fellum þar sem ríki, sem þegar eru langt komin með bólu­setn­ingar, eru framar en COVAX í for­gangs­röð­inni við kaup á bólu­efnum hjá fram­leið­endum, gefi þau sæti sitt eftir svo að hægt sé að koma bólu­efnum fljótt og vel í gegnum COVAX til þeirra sem þurfa mest á því að halda.
  • Ríki sem þegar eru vel á veg komin í bólu­setn­ingum auki við og hraði afhend­ingu gjafa­skammta. Þetta þurfi að gera skipu­lega, með fyr­ir­sjá­an­leika og það tryggt að skammtar séu aðgengi­legir í meira magni og bólu­efnið nálgist ekki fyrn­ing­ar­tíma sinn.

„Á sama tíma og far­aldur COVID-19 heldur áfram að heimta manns­líf, eyði­leggja lífs­við­ur­væri fólks og tefja efna­hags­legan bata, höldum við áfram að leggja áherslu á að eng­inn er öruggur fyrr en allir eru öruggir. Samvinna er eina leiðin til að stöðva far­ald­ur­inn og koma í veg fyrir að ný og skæð afbrigði komi fram,“ segir í yfir­lýs­ingu WHO vegna COVAX-sam­starfs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár