Lögreglan finnur ekki egypsku fjölskylduna sem vísa átti á brott í morgun

Ekki er vitað um dval­ar­stað sex manna egyp­sku fjöl­skyld­unnar sem vísa átti úr landi í morgun.

Ekki var unnt að fram­kvæma frá­vísun egypskrar fjöl­skyldu frá land­inu sem fara átti fram í morgun. Fólkið var ekki á fyr­ir­fram ákveðnum stað þar stoð­deild hugð­ist fylgja þeim úr landi. Þetta kemur fram í til­kynn­ing frá stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra í morgun.

Ekki er vitað um dval­ar­stað fólks­ins, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni. Málið verður áfram á borði stoð­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra en hún mun ekki veita frek­ari upp­lýs­ingar um málið að svo stöddu.

Málið hefur vakið mikla athygli en til stóð að vísa sex manna egyp­skri fjöl­skyldu úr landi í dag. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra sagði í sam­tali við RÚV í síð­ustu viku að ekki væri ástæða til að beita sér sér­stak­lega í mál­inu.

Láta reyna á brottvísunina fyrir dómi

Magnús Norðdahl, lög­maður Kehdr-fjöl­skyld­unnar frá Egypta­landi, sagði í sam­tali við RÚV í morgun að látið yrði reyna á brott­vísun þeirra fyrir dómi. Hann gagn­rýndi enn fremur ummæli sviðs­stjóra Útlend­inga­stofn­unar í Kast­ljósi í gær, stofn­unin hefði vel getað vísað fjöl­skyld­unni fyrr úr landi.

[links]Magnús sagði að lög­regla hefði átt að sækja fjöl­skyld­una á heim­ili þeirra á Ásbrú klukkan hálfsex í morgun og að þau hefðu átt að fljúga héðan til Amster­dam og þaðan til Kaíró í Egypta­landi. Hann gagn­rýndi ummæli sviðs­stjóra Útlend­inga­stofn­unar og sagði að með þeim væri verið að reyna að skella skuld­inni á fjöl­skyld­una.

„Þar sem hann fer með rangt mál að mínum dómi. Og vísar til þess að það hafi verið fjöl­skyld­unni að kenna að þau voru ekki flutt úr landi með vísan í vega­bréf þeirra sem þau hafi ekki viljað end­ur­nýja. Hið rétta er að vega­bréf tveggja þess­ara barna runnu út 28. jan­úar, úrskuðrur kæru­nefndar útlend­inga­mála var kveð­inn upp 14. nóv­em­ber og birtur fjöl­skyld­unni 18. nóv­em­ber þar sem þau fengu 30 daga til að yfir­gefa landið. Það voru þau ekki búin að gera 30 dögum síðar , 18. des­em­ber og frá þeim degi og fram til 28. jan­úar voru vega­bréf fjöl­skyld­unnar gild. Á þeim tíma hefði Útlend­inga­stofnun getað staðið að því, að koma fjöl­skyld­unni úr landi. Það var ekki gert. Þannig að ég tel það mjög ódýrt hjá svið­stjóra Útlend­inga­stofn­unar að benda á fjöl­skyld­una í þessu sam­hengi,“ sagði Magnús við RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár