Íbúðalánasjóður láni bara þeim sem fá ekki lán annars staðar

Íbúða­lána­sjóður mun aðeins veita sér­tæk lán á sam­fé­lags­legum for­sendum eða vegna mark­aðs­brests, sam­kvæmt frum­varpi Eyglóar Harð­ar­dóttur um breyt­ingar á lögum um hús­næð­is­mál. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Íbúða­lána­sjóðs til kaup­hall­ar­innar.

Íbúða­lána­sjóður mun þannig hætta að lána almenn íbúða­lán nema til þeirra sem „ekki eiga kost á fast­eigna­lánum á ásætt­an­legum kjörum hjá öðrum lána­stofn­unum svo sem vegna stað­setn­ingar fast­eign­ar­innar eða af öðrum ástæðum. Núgild­andi ákvæði um hámarks­lán og hámarks­verð fast­eigna mun hald­ast óbreytt og sama máli gegnir um greiðslu­getu lán­taka og veð­hæfi fast­eignar,“ segir í til­kynn­ing­unni. Fyr­ir­komu­lagið á að vera líkt og það sem tíðkast í Noregi og Finn­landi, þar sem Hus­banken og ARA sinna svona hlut­verki.

Sjóð­ur­inn mun áfram lána til leigu­fé­laga sem eru rekin án hagn­að­ar­sjón­ar­miða og til sveit­ar­fé­laga.

Þetta er veru­leg breyt­ing á hlut­verki sjóðs­ins, en hann lánar nú til allra.

Íbúða­lána­sjóði verður einnig gert að hafa skýran bók­halds­legan aðskilnað á milli eldra lána­safns og skuld­bind­inga og nýrra lána og stofn­fram­laga.

Íbúða­lána­sjóður fær nýtt hlut­verk með lög­unum um almennar íbúðir, sem var eitt þeirra hús­næð­is­mála sem Alþingi sam­þykkti fyrr í sumar. Íbúða­lána­sjóður á að ann­ast veit­ingu stofn­fram­laga til bygg­inga almennra íbúða og á að hafa eft­ir­lit með þeim aðilum sem fá slík fram­lög. Íbúða­lána­sjóði er ætlað að hafa umsjón með fram­kvæmd lag­anna, honum er ætlað að taka við umsóknum og taka ákvarð­anir um veit­ingu stofn­fram­laga rík­is­ins. Sjóð­ur­inn metur því hvort mál­efna­leg sjón­ar­mið leiði til þess að unnt sé að veita umsækj­endum stofn­fram­lög til bygg­ingar eða kaupa á almennum íbúð­um, hvort umsóknir sam­ræm­ist lögum og reglu­gerðum og jafn­framt hvort umrætt hús­næði telj­ist hag­kvæmt og full­næj­andi sem íbúða­hús­næði. Sjóð­ur­inn á líka að meta það hvort þörf sé á leigu­hús­næði fyrir efna­minni leigj­endur á við­kom­andi svæði og hvort fjár­mögnun hafi verið tryggð með full­nægj­andi hætt­i.

Enn­fremur á sjóð­ur­inn að hafa eft­ir­lit með þeim sem hafa fengið stofn­fram­lög frá rík­inu og rekar almennar íbúð­ir, sam­kvæmt frum­varp­inu. Hann mun geta beint til­mælum um úrbætur til eig­enda íbúð­anna ef hann telur rekstur ekki í sam­ræmi við lög og geta til­nefnt eft­ir­lits­menn til að fylgj­ast með íbúð­unum og úrbót­u­m.

Skýrir framtíðarhlutverk sjóðsins

Frum­varpið skýrir að ein­hverju leyti fram­tíð­ar­hlut­verk sjóðs­ins, sem hefur verið í tals­verðri óvissu vegna ýmissa þátta. Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur talað fyrir því að sjóð­ur­inn yrði leystur upp

Afkoma Íbúða­lána­­sjóðs var um margt jákvæð á síð­­asta ári, eins og Kjarn­inn fjall­aði um í mars. ­Sjóð­­ur­inn skil­aði 1,8 millj­­arða króna rekstr­­ar­hagn­aði á árinu 2015, og er það annað árið í röð sem hann skil­aði hagn­aði eftir að hafa grætt 3,2 millj­­arða króna árið 2014. Árin þar á undan höfðu hins vegar verið afar slæm. Alls tap­að­i ­sjóð­­ur­inn tæpum 58 millj­­örðum króna frá árs­lokum 2008 og út árið 2013. ­Rík­­is­­sjóður þurfti að leggja honum til 53,5 millj­­arða króna á árinu 2009 til að halda sjóðnum gagn­andi.

Á árinu 2014 var þorri þess hagn­aðar sem Íbúða­lána­­sjóður sýnd­i ­vegna breyt­inga á virð­is­rýrnun útlána. Þ.e. inn­­heimt­an­­leiki lána hans jókst um 2,5 millj­­arða króna. Sama var upp á ten­ingnum í fyrra. Virð­is­rýrnun útlána ­lækk­­aði um 4,4 millj­­arða króna og útskýrir því vel rúm­­lega allan hagn­að Í­­búða­lána­­sjóðs á síð­­asta ári líka. Í til­­kynn­ingu vegna árs­­reikn­ings sjóðs­ins ­seg­ir: „Breyt­ing virð­is­rýrn­unar teng­ist umtals­verðri lækkun van­skila heim­ila og ­sterk­­ari trygg­ing­­ar­­stöðu lána­safns­ins vegna hækk­­ana á fast­­eigna­­mark­að­i.“

Útlán sjóðs­ins héldu hins vegar árfram að lækka á síð­­asta ári líkt og árin á und­­an. Þau lækk­­uðu um tæpa 80 millj­­arða króna í fyrra. Þar af voru, líkt og áður sagði, 33,8 millj­­arðar króna vegna leið­rétt­ing­­ar­inn­­ar. ­Í­­búða­lána­­sjóður er samt sem áður langstærsti íbúða­lána­veit­andi á land­inu, þrátt ­fyrir litla útlána­veit­ingu og miklar upp­­greiðslur árum sam­­an. Mark­aðs­hlut­­deild hans, sam­­kvæmt útreikn­ingum Kjarn­ans, er rúm­­lega 40 pró­­sent á íbúða­lánum til­ ein­stak­l­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár