Króatar skelltu Argentínu - Allt opið í riðli Íslands

Ísland mætir Nígeríu á morgun og getur kom­ist í 2. sæti rið­ils­ins með sigri. Króatar sýndu styrk sinn og unnu 3-0.

Króatar lögðu Argent­ínu­menn í D-riðli HM í Rúss­landi, og tryggðu þar með sæti sitt í 16 liða úrslitum. Leik­ur­inn end­aði 3-0. Króatar hafa unnið sína leiki, gegn Nígeríu og Argent­ínu, og hafa ekki ennþá fengið á sig mark. Liðs­heild þeirra virkar heil­steypt og sterk, en Argent­ínu­menn eru heillum horfnir.

Caballero, mark­vörður Argent­ínu, gerði sekan um ótrú­leg mis­tök í fyrsta marki Króata sem Rebic skor­aði í byrjun seinni hálf­leiks. Hann reyndi þá að sparka bolt­ann yfir leik­mann Króata en gaf þess í stað beint á hann, og átti Rebic ekki í vand­ræðum með að koma bolt­anum í markið.

Eftir það opn­að­ist leik­ur­inn meira, Króatar lágu til baka og beittu skynd­i­sóknum sem Argent­ína átt í miklum vand­ræðum með að verj­ast.

Modric, hinn frá­bæri leik­stjórn­andi og fyr­ir­liði Króata, skor­aði frá­bært mark, með skoti fyrir utan teig og annar frá­bær miðju­maður, Rakitic, skor­aði síðan þriðja markið.

Staðan í riðl­inum núna er sú að Króatar eru í efsta sæti með 6 stig, Ísland í öðru með 1 stig eins og Argent­ínu­menn, en marka­hlut­fall Íslands er betra eftir tap Argent­ínu gegn Króatíu.

Nígería er neðst með ekk­ert stig. Ef Ísland vinnur Nígeríu á morgun, þá er Ísland komið með 4 stig, en á Króata eftir í síð­ustu umferð. Þrátt fyrir afleita tvo fyrstu leiki hjá Argent­ínu, þá gæti sigur á Nígeríu samt tryggt sæti í 16 liða úrslitum. Það fer eftir því, hvernig leikur Íslands og Nígeríu fer á morgun.

Gríð­ar­leg spennan er því ennþá í riðl­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár