Þjónusta við hælisleitendur boðin út á EES – Kostnaður metinn á 830 milljónir

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefur birt foraug­lýs­ingu þar sem leitað er eftir til­boðum í aðstoð og þjón­ustu við hæl­is­leit­endur. Samkvæmt aug­lýs­ing­unni er virði samn­ings­ins metið á 830 millj­ónir króna án virð­is­auka­skatts.

Sigríður Andersen er dómsmálaráðherra.
Sigríður Andersen er dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur birt foraug­lýs­ingu á Evrópska efna­hags­svæð­inu (EES) um samn­ing um aðstoð og þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd. Í aug­lýs­ing­unni er áhuga­sömum aðilum boðið að láta áhuga sinn í ljós til 1. sept­em­ber næst­kom­andi. Samkvæmt henni er virði samn­ings­ins metið 830 millj­ónir króna án virð­is­auka­skatts. Aug­lýs­ingin var birt 1. ágúst þrátt fyrir að dóms­mála­ráðu­neytið hafi ekki greint frá til­urð hennar í frétt á heima­síðu sinni fyrr en í gær.

Í aug­lýs­ing­unni kemur fram að samn­ing­ur­inn sem sé í boði, náist saman við áhuga­sama, sé til 36 mán­aða með mögu­leika á tólf mán­aða fram­leng­ingu í tvígang.

Í frétt á vef ráðu­neyt­is­ins segir að mark­mið samn­ings­ins sé að „tryggja öllum umsækj­endum um alþjóð­lega vernd félags­legan stuðn­ing, upp­lýs­inga­gjöf og sjálf­stæða og óháða hags­muna­gæslu. Til­gang­ur­inn er að jafn­ræðis sé gætt, umsækj­endur fái vand­aða máls­með­ferð, við­eig­andi þjón­ustu og eigi greiðan aðgang að stuðn­ingi og upp­lýs­ingum.“ Í aug­lýs­ing­unni kemur einnig frá hvers konar þjón­usta skuli veitt í þessu sam­bandi, til dæmis varð­andi félags­lega aðstoð og rétt­ar­gæslu.

Sam­­kvæmt tölum sem birtar eru á vef Útlend­inga­­stofn­unar sóttu 1.132 um vernd hér­­­lendis á árinu 2016. Af þeim var alls 111 manns veitt vernd, við­­bót­­ar­vernd eða mann­úð­­ar­­leyfi til að dvelja á Íslandi. Öðrum var annað hvort synj­að, þeir end­­ur­­send­ir, veitt vernd í öðru ríki eða drógu til baka umsóknir sín­­ar.

Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2017 sóttu alls 500 manns um vernd. Á árinu hafa 61 fengið vernd, við­­bót­­ar­vernd eða mann­úð­­ar­­leyfi. Í des­em­ber 2016 voru 820 umsækj­endur hér­­­lendis annað hvort þjón­u­staðir af sveit­­ar­­fé­lögum eða Útlend­inga­­stofn­un.

Haraldur Bene­dikts­son, for­maður fjár­laga­nefndar, sagði í útvarps­þætti á Útvarpi Sögu í síð­ustu viku að horfur séu á því að kostn­aður vegna mót­töku hæl­is­leit­enda hér­lendis fari rúm­lega þrjá millj­arða króna fram úr fjár­lögum á þessu ári. Í fjár­lögum fyrir 2017 sam­þykkti Alþingi 2,5 millj­arða króna í mála­flokk­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár