Icelandair beri að framfylgja ákvörðunum stjórnvalda bóki þau flug fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd

Icelandair svarar því ekki hvort flug­fé­lagið muni flytja þá umsækj­endur um alþjóð­lega vernd sem til stendur að vísa úr landi á næst­unni. Því sé ekki heim­ilt að svara fyrir hönd við­skipta­vina sinna um mögu­leg eða fyr­ir­huguð flug.

Stjórn­völd hafa í gegnum tíð­ina bókað flug meðal ann­ars hjá Icelandair fyrir fólk sem hefur fengið synjun um alþjóð­lega vernd á Íslandi. Slíkar ákvarð­anir eru alfarið í höndum stjórn­valda og ber Icelandair að fram­fylgja þeim séu slík flug bókuð hjá félag­inu.

Þetta kemur fram í svari Icelandair við fyr­ir­spurn Kjarnans en til stendur að brott­vísa tæp­lega 200 umsækj­endum um alþjóð­lega vernd úr landi á næst­unni.

Kjarninn spurði hvort flug­fé­lagið hefði flogið með umsækj­endur um alþjóð­lega vernd, sem fengið hafa synjun hér á landi, og hvort það væri með tölur yfir hversu margir þeir væru og hvert þeir hefðu verið fluttir. Í svari Icelandair segir að þau haldi ekki utan um þær tölur.

Icelandair ekki heimilt að svara fyrir hönd viðskiptavina um möguleg flug

Kjarninn spurði einnig hvort Icelandair myndi fljúga með þá ein­stak­linga sem flytja á til Grikk­lands á næstu dögum og vikum. Ef svo er, hversu margir væru það og hvernig myndi fyr­ir­tækið fram­kvæma þá aðgerð? Yrðu sér­stakar vélar fengnar fyrir þetta fólk og fylg­is­menn eða myndi það fljúga í almennum ferðum?

Icelandair vísar á stjórn­völd varð­andi það sem komið hefur fram í fjöl­miðlum um fyr­ir­hug­aðan flutn­ing fólks á næst­unni en „Icelandair er ekki heim­ilt að svara fyrir hönd við­skipta­vina sinna um mögu­leg eða fyr­ir­huguð flug,“ segir í svar­inu.

Kjarninn spurði einnig hvort Icelandair hefði myndað sér stefnu gagn­vart því að fljúga með þessa ein­stak­linga sem hlotið hafa synjun hér á landi og hvort fyr­ir­tækið hefði fengið kvart­anir vegna þess­ara fluga.

Icelandair svarar ekki þeim spurn­ingum í svari sínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár