Dauði geisladisksins, tilkoma Spotify og upprisa vínylplötunnar

Áætlað er að Spotify hafi haft um 700 millj­ónir króna í tekjur af íslenskum not­endum á árinu 2019, og að 90 pró­sent allra tekna vegna sölu á tón­list hafi verið vegna streym­isveitna. Sala á vín­yl­plötum hefur þó líka tekið kipp, og átján­fald­ast á fáum árum.

Árið 1999 náði geisla­diska­sala hámarki á Íslandi. Það ár seld­ust alls 855 þús­und slíkir á land­inu, eða rúm­lega þrír geisla­diskar á hvern þeirra 279 þús­und lands­manna sem hér bjuggu í lok þess árs.

Tíu árum síðar hafði þessi sala helm­ing­ast, enda átti geisla­disk­ur­inn undir högg að sækja vegna ólög­legs nið­ur­hals og nýrra staf­rænna leiða til að hlusta á tón­list. Þegar tutt­ugu ár voru liðin frá tind­inum í geisla­diska­sölu, árið 2019, seld­ust 30 þús­und geisla­diskar á Íslandi. Það þýðir að salan þá var 3,5 pró­sent af því sem hún var 1999.

Heild­ar­sölu­verð­mæti allra hljóð­rita náði líka sinni hæstu krónu­tölu árið 1999, þegar sala diska, platna, snælda og staf­rænna skráa skil­aði 757 millj­ónum króna í kass­ann. Tíu árum síðar var sú krónu­tala komin niður í 591 milljón króna. Krónu­tölu­metið stóð óhaggað þangað til í hitteð­fyrra, þegar salan skil­aði 802 millj­ónum króna í kass­ann.

Þegar tekið er til­lit til verð­bólgu breyt­ist þessi mynd þó auð­vitað umtals­vert. Á verð­lagi árs­ins 1999 skil­aði salan 2019 enda um 329 millj­ónum króna, og því ljóst að hún hefur rúm­lega helm­ing­ast að raun­virði.

Aldrei fleiri með Spotify

Botninum í heild­sölu­verð­mæti tón­listar á diskum, plötum, snældum og staf­rænum skrám var náð árið 2014 þegar það var ein­ungis 430 millj­ónir króna. Síðan þá hefur sölu­verð­mætið hækkað ár frá ári, bæði í krónum og oft­ast að raun­virði.

Þannig hefur heild­sölu­verð­mætið auk­ist milli 2014 og 2019 um 66,5 pró­sent. Skýr­ingin á því er nokkuð ljós: Spotify.

Talið er að um 100 þúsund manns á Íslandi séu áskrifendur að Spotify.
Talið er að um 100 þús­und manns á Íslandi séu áskrif­endur að Spotify.

Sölu­aukn­ingu und­an­far­innar ára má nán­ast alfarið rekja til greiðslna á staf­rænum skrám í streymi, og um 98 pró­sent af allri streymdri tón­list á Íslandi fer í gegnum Spotify. Talið er að um 100 þús­und Íslend­ingar séu með áskrift að Spotify, en áskrift­ar­kostn­aður að keðj­unni hélst óbreytt frá því að Spotify varð aðgengi­legt á Íslandi 2013 og þangað til nýlega. Árið 2019 er áætlað að Spotify hafi haft um 700 millj­ónir króna í tekjur af íslenskum not­endum.

Nýverið var gjaldið sem er tekið fyrir áskrift að Spotify hækkað um tíu pró­sent. Eiður Arnarson, fram­kvæmda­stjóri félags íslenskra hljóm­plötu­út­gef­anda, sagði í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í byrjun síð­asta mán­aðar að hækk­unin ætti að þýða um 350 millj­óna króna veltu­aukn­ingu hjá Spotify á Íslandi og að stærstur hluti þeirrar upp­hæðar myndi skila sér til rétt­hafa.

Platan snýr aftur

Það er ekki ein­ungis þróun í geisla­diska­sölu, streym­is­á­skriftum og heild­sölu­verð­mæti sem hafa farið í gegnum rús­sí­bana und­an­farin ár. Það hefur vín­yl­plötu­sala einnig gert.

Vín­yl­plötur deila flokki með hljóð­snældum, einnig þekktum sem kassettum, í talna­safni Hagstofu Íslands. Slá má því nokkuð föstu að lít­ill mark­aður, ef ein­hver, sé fyrir snældum lengur, enda gæðin ekki góð og fátt eigu­legt við snældu­hulstur.

Öðru máli gegnir um vín­yl­plötur. Þær hafa gengið í gegnum end­ur­nýjun líf­daga.

Í byrjun tíunda ára­tug­ar­ins er áætlað að um 200 þús­und plötur og snældur hafi selst á ári hverju hér­lendis. Þeim tók að snar­fækka þegar leið á ára­tug­inn og á ald­ar­mót­ar­ár­inu 2000 seld­ust ein­ungis 13 þús­und plötur og snældur. Fjórum árum síðar var salan komin niður í um eitt þús­und á ári og helst um eða undir þeirri tölu næstu ár, eða út árið 2010.

En síðan gerð­ist eitt­hvað. Frá árinu 2011 hefur nefni­lega verið upp­taktur í sölu á plötum á hverju ári. Heild­ar­sölu­tölur fyrir plötur og snældur fóru aftur yfir tíu þús­und árið 2014 og fimm árum síðar, árið 2019, seld­ust 18 þús­und ein­tök á Íslandi. Salan hefur því átján­fald­ast á níu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár