Friðland Þjórsárvera fjórfaldað

Björt Ólafs­dóttir, starf­andi umhverf­is­ráð­herra, hyggst und­ir­rita yfir­lýs­ingu þess efnis í dag að friðland Þjórs­ár­vera verði stækkað.

Björt Ólafsdóttir er umhverfis- og auðlindaráðherra í starfstjórninni.
Björt Ólafs­dóttir er umhverfis- og auð­linda­ráð­herra í starf­stjórn­inni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Friðlandið í Þjórs­ár­verum verður stækkað í dag, . Verður það gert með því að umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, Björt Ólafs­dóttir, und­ir­ritar aug­lýs­ingu þess efnis.

Hið nýja friðland verður tæpir 1.563 fer­kíló­metrar að stærð.

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Í frétt blaðs­ins kemur fram að til­laga að mörkum og frið­lýs­ing­ar­skil­málum stækk­aðs friðlands í Þjórs­ár­verum hafi verið aug­lýst í júlí, og frestur til að skila inn athuga­semdum rann út 3. októ­ber síð­ast­lið­inn. Samkvæmt þeim til­lögum verður hið nýja friðland 1.563 fer­kíló­metrar, en er nú 358 fer­kíló­metrar.

Lengi hefur verið deilt um Þjórs­ár­ver og virkj­ana­hug­myndir sem þar hafa verið, og segir for­maður Land­verndar í við­tali við Frétta­blaðið að nú sé mál­inu von­andi lokið. „Þetta hefur verið bar­áttu­mál í ára­tugi og er löngu, löngu, löngu tíma­bært enda er svæðið eitt af krúnu­djásnum Íslands,“ segir Snæbjörn Guð­munds­son, for­maður Land­verndar. „Allt hið ein­staka við hálendi Íslands er þarna sam­an­komið. Und­ir­rit­unin er von­andi loka­punkt­ur­inn í að vernda svæðið algjör­lega og losna við allar virkj­ana­hug­myndir.“

Þjórs­ár­ver voru fyrst frið­lýst árið 1981.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár