Krakkaveldi – Krakkar stofna stjórnmálaflokk

Klukkan sex í dag ætlar hópur krakka að mót­mæla fyrir utan Alþingi og krefj­ast valda. Kröfu­gangan er skipu­lögð af átta krökkum undir hand­leiðslu Salvarar Gullbrár sviðs­höf­undar en í des­em­ber ætlar hóp­ur­inn að stíga á svið og stofna stjórn­mála­flokk.

Í dag þegar klukk­una vantar tíu mín­útur í sex ætla krakkar að safn­ast saman og ganga kröfu­göngu frá Hall­gríms­kirkju niður á Aust­ur­völl og halda í fram­hald­inu á mót­mæla­fund á Aust­ur­velli. Krakk­arnir ætla að krefj­ast valda en öllum krökkum er boðið að slást í hóp­inn og mæta með mót­mæla­skilti þar sem fram kemur hverju þau vilja breyta á Íslandi. Mót­mæla­fund­ur­inn er skipu­lagður af átta krökkum sem taka nú þátt í gerð sviðs­verks undir stjórn Sal­varar Gull­brár Þór­ar­ins­dótt­ur.

Vildi veita börnum vett­vang til að tjá sig um stjórn­mál

Sal­vör Gull­brá Þór­ar­ins­dóttir er á loka­ári sínu á sviðs­höf­und­ar­braut í Lista­há­skóla Íslands og fyrir ein­stak­lings­verk sitt á þess­ari önn ætlar hún í sam­starfi við átta krakka á aldr­inum átta til ell­efu ára að setja á svið gjörn­ing og stofna stjórn­mála­flokk krakka. Verkið verður sýnt í Lista­há­skól­anum í Laug­ar­nesi dag­ana 9. og 10. des­em­ber næst­kom­and­i.

Sal­vör segir í sam­tali við Kjarn­ann að hug­myndin að verk­inu hafi fæðst út frá því að hún hafi vilja gera verk ­með­ ­börnum en þegar hún vann sem blaða­maður þá tók hún stundum við­töl við börn og fannst þau oft hafa mikið til mál­anna að leggja.

„Ég vissi að ef ég ynni verkið með börnum þá myndi ég vilja gera það á póli­tískum ­for­sendum af því börn er hópur sem hefur engin völd í sam­fé­lag­inu. En all­ar á­kvarð­an­ir ­stjórn­valda hafa með ein­hverjum hætt­i á­hrif á börn hvort sem það er núna eða í fram­tíð­inn­i,“ segir Salvör.

Sal­vör bendir á að mörg af stærstu póli­tísku mál­efnum nútím­ans ­snúa að rétt­indum barna, þar á meðal loft­lags­mál en ljóst er að það gríð­ar­stóra vanda­mál muni verða þeirra í fram­tíð­inni. Sal­vör segir að í und­ir­bún­ings­vinn­unni með börn­unum fyrir verkið hafi komið í ljós í sam­ræðum þeirra að börn séu með­vituð um allskyns sam­fé­lags­leg mál­efni, til dæmis nefndu börnin hung­ursneyð­ina í Jemen.

„Mig lang­aði að heyra hvað þau hefðu að segja, gefa þeim vett­vang til að tjá sig um stjórn­mál og eigin stöðu,“ segir Sal­vör enn frem­ur.

[adspot]

Stofna stjórnmálaflokk fyrir krakka

Í íslensku stjórn­ar­skránni má finna ákvæði um félaga og funda­frelsi. Í því felst að að allir eiga rétt á því að stofna félög í lög­legum til­gangi, þar með talið stjórn­mála­flokk án þess að sækja um leyfi fyrir því. Það eru engin skil­yrði í lögum sem þarf að upp­fylla til að stofna stjórn­mála­flokk, enda er það réttur hvers og eins að stofna flokk eða sam­tök um til­tekin mark­mið eða hug­sjón­ir. Þetta ákvæði gildir um alla þátt­tak­end­ur ­sam­fé­lags­ins, líka börn en sér­stakt ákvæði um funda- og félaga­frelsi er að finna í Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Sal­vör bendir á að þó börn megi ekki kjósa þá þurfi það ekki að koma í veg fyrir þau taki þátt í stjórn­mál­um. Stjórn­mála­fé­lög án kosn­inga­réttar geti til dæmis haldið fundi og sam­þykkt yfir­lýs­ingar sem mögu­legt sé síðan að senda til fjöl­miðla og þannig megi hafa áhrif á umræð­una í þjóð­fé­lag­in­u. Einnig geti stjórn­mála­fé­lög staðið fyrir mót­mælum og öðrum gjörn­ing­um, til þess að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi. „Mér finnst ekk­ert galið við það athuga hvað börn hafa að segja, að þau hafi fleiri tæki­færi til að tjá sig og öðlist meiri völd í sam­fé­lag­in­u,“ segir Sal­vör.

Hvernig væri heimurinn ef börn hefðu meiri völd?

Sal­vör auglýsti eftir krökkum fyrir verkið á Face­book, tal­aði við krakka sem hún þekkti og bað kenn­ara að láta krakka vita að til boða stæði að taka þátt í stofnun stjórnmálaflokks. Aðspurð segir hún að mörg börn hafi sótt um en hún ákvað að láta regl­una „fyrstir koma fyrstir fá“ gilda og að lok­um voru átta krakkar á aldr­in­um 8 til 11 ára sem taka þátt í verk­inu. Sam­kvæmt Sal­vöru taka krakk­arnir þátt af mis­mun­andi ástæð­um, sum hafa áhuga á stjórn­mál­um, aðrir á leik­list eða frétta­mennsku. Að sögn Salvarar hafa krakk­arnir ólíkar skoð­anir sem þau eru ekki hrædd við að deila sín á milli. Börnin skipu­lögðu mót­mæla­göng­una sjálf og báðu hana um að stofna Face­book-við­burð til að aug­lýsa göng­una og bjóða öðrum krökkum að slást í hóp­inn.

Í sviðs­verk­inu sem sett verður á stokk í des­em­ber munu krakk­arnir taka völd á svið­inu og stofna sinn eigin stjórn­mála­flokk. Sal­vör segir hug­mynd­ina vera þá að á­horf­end­ur ­sem og þátt­tak­end­ur ­geti ímyndað sér hver þró­unin gæti orðið ef börn hefðu meiri völd í sam­fé­lag­inu. „Yrði heim­ur­inn grimmari eða rétt­lát­ari?“ Áhuga­vert verður að sjá hvernig atburða­rásin þróast á sviðinu og hver áherslu­mál hins nýja stjórn­mála­flokks krakka verða.

Meðal þeirra baráttumála sem komið hafa upp í umræðum krakkanna er jafnrétti fyrir karla og konur, lengri fangelsisdómar og að götur borgarinnar verði fylltar af sælgæti. Salvör segir að ekkert virðist börnunum óviðkomandi og því virðist sem þau hafi að mörgu leyti auðugra ímyndunarafl og fleiri hugmyndir um hvað hægt sé að gera í stjórnmálum en fullorðnir.

Hvetur alla til að mæta

Aðspurð segir Sal­vör að það geti vel verið að verk­efnið haldi áfram eftir sýn­ing­una ef áhugi er fyrir því. Hún hvetur alla sem vilja að mæta fyrir framan Hall­gríms­kirkju klukkan 17:50 í dag og taka þátt í kröfu­göngu Krakka­veld­is­ins. Hún segir að öllum sé einnig vel­komið að mæta á sýn­ing­una hennar og krakk­anna þann 9. og 10. des­em­ber í Lista­há­skól­anum í Laug­ar­nesi. Nánari upp­lýs­ingar um mót­mæla­fund­inn má finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár