Facebook skandallinn stærri en áður var talið

Cambridge Analytica komst yfir meira af not­enda­upp­lýs­ingum frá Facebook, með óeðli­legum hætti, en áður var talið.

Grein­ingar- og ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Cambridge Analytica komst yfir meira af upp­lýs­ingum um not­endur Facebook, með óeðli­legum hætti, heldur en áður var talið.

Í fyrstu var frá því greint að fyr­ir­tækið hefði kom­ist yfir upp­lýs­ingar um 50 millj­ónir not­enda, en nú er talið að tæp­lega 90 millj­ónir hafi verið undir, að því er breska rík­is­út­varpið BBC greindi frá í kvöld.

Á meðal þess­ara tæp­lega 90 millj­óna er um 1,1 millj­ónir í Bret­landi, en lang­sam­lega flestir voru í Banda­ríkj­unum.

Mark Zuckerberg, for­stjóri og stofn­andi Facebook, mun koma fyrir þing­nefnd í Banda­ríkj­unum 11. apríl, og mun hann þar svara spurn­ingum sem lúta að per­sónu­frelsi not­enda og hvernig á því stóð að fyr­ir­tækið komst yfir meira af gögnum en leyfi­legt er að deila, sam­kvæmt skil­málum Facebook.

Cambridge Analytica hefur unnið fyrir ýmis fyr­ir­tæki og sam­tök, þar á meðal fram­boð Donalds Trumps og Brexit hreyf­ing­una í Bret­landi. Fyr­ir­tækið er nú til rann­sóknar, bæði í Bret­landi og Banda­ríkj­unum, en það hefur varist ásök­unum og hafnað því að hafa gert nokkuð rangt.

Zuckerberg hefur hins vegar við­ur­kennt, að Facebok hafi farið illa að ráði sínu og deilt of miklu magni gagna, miðað við það sem skil­málar fyr­ir­tæk­is­ins segja til um. Hann segir hins vegar, að nú standi yfir rann­sókn á þessum málum, bæði innan Facebook og hjá yfir­völdum, og hann vilji bíða með nán­ari skýr­ingar.

Verð­mið­inn á Facebook hefur fallið um 20 pró­sent frá því málið komst í hámæli, fyrir rúm­lega þremur vikum, en mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins er nú 450 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 45 þús­und millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár