1.200 skammtar af bóluefni Moderna væntanlegir á morgun

Fyrstu skammt­arnir af bólu­efni Moderna gegn COVID-19 eru vænt­an­legir til lands­ins á morgun. Fleiri skammtar munu svo ber­ast reglu­lega næstu vikur.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

„Það hefur gengið vel yfir helg­ina,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir við upp­haf upp­lýs­inga­fundar almanna­varna í dag. Þrír greindust með veiruna í gær og voru þeir allir í sótt­kví.

Hins vegar greindust sautján á landa­mær­unum sem er áhyggju­efni að sögn sótt­varna­læknis en end­ur­speglar vöxt­inn í far­aldr­inum erlendis.

Í ljósi stöð­unnar inn­an­lands hefur Þórólfur því sent ráð­herra til­lögur um ýmsar til­slak­anir frá og með mið­viku­deg­inum. Þá mega 20 koma saman og til­slak­anir eru einnig gerðar á ýmissi starf­semi, svo sem heilsu­rækt með skil­yrðum og menn­ing­ar­starf­semi sömu­leiðis. Þórólfur lagði hins vegar áherslu á, og það gerði Alma Möller land­læknir einnig, að allir ættu að forð­ast ónauð­syn­legar hópa­mynd­anir. Enn er grímu­skylda og tveggja metra regl­una skal virða áfram.

Aukning í smitum sem eru að grein­ast á landa­mær­unum er að mati sótt­varna­læknis „helsta hættan sem steðjar að okkur núna, að við fáum smit inn í landið í gegnum landa­mærin“.

Þórólfur hefur því sent heil­brigð­is­ráð­herra til­lögur um hertar aðgerðir á landa­mær­unum eins og fram hefur komið í fréttum um helg­ina. Hann lagði til að ferða­menn fengju ekki lengur val um að sleppa skimun og fara í fjórtán daga sótt­kví. Ef því væri ekki við­komið skal fólk sem velur sótt­kví að taka hana út í sótt­varna­húsum. Þá hefur Þórólfur lagt til að börn sem komi með for­eldrum sínum til lands­ins verði skylduð til að dvelja í sótt­kví ásamt for­eldrum sínum.

Í fjórða lagi verði aukið eft­ir­lit með fólki í sótt­kví og ein­angrun „og á þann hátt munum við reyna að tryggja eins og hægt er að aukn­ing verði ekki í smitum erlendis frá“. Hann sagði að fólki yrði gefnar skýr­ari og betri leið­bein­ingar og að hringt yrði oftar í fólk til að kanna hvernig gangi. Ef ástæða þykir er svo hægt að senda eft­ir­lits­fólk til fólks í sótt­kví og ein­angrun til að kanna stöð­una.

Þórólfur sagði einnig ástæðu til þess að hvetja alla Íslend­inga til að fara ekki í ferða­lög erlendis að nauð­synja­lausu.

Fleiri skammtar á leiðinni

Von er á 1.200 skömmtum af bólu­efni lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Moderna til lands­ins á morgun. Þeir skammtar verði nýttir til að halda áfram bólu­setn­ingu fram­línu­starfs­fólks. Í fram­hald­inu er von á 1.200 skömmtum frá fyr­ir­tæk­inu reglu­lega næstu vik­urnar. Bólu­setja þarf tvisvar með efn­inu og því duga 1.200 skammtar til að bólu­setja 600 manns.

Auk þess er von á tæp­lega 3.000 skömmtum bólu­efnis frá Pfizer-BioNtech í næstu viku og tæp­lega 2.000 eftir tvær vikur. Þessir skammtar verða not­aðir til að halda áfram að bólu­setja eldri íbúa lands­ins.

Tvö bólu­efni til við­bótar eru til skoð­unar hjá Evrópsku lyfja­stofn­un­inni og í fram­hald­inu verður gefin út dreif­ing­ar­á­ætlun hvað þau varðar.

„Meg­in­á­skorun okkar allra núna felst í því að við­halda per­sónu­bundnum sótt­vörnum,“ sagði Þórólfur. Þannig mun takast að byggja upp ónæmi með bólu­setn­ingu. Samhliða fram­gangi bólu­setn­ingar verður smám saman hægt að slaka meira á tak­mörk­unum en hvernig það verður nákvæm­lega gert er ekki hægt að segja til um á þess­ari stundu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár